Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2008, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2008
Fréttir DV
SANDKORIV
■ Kristinn lakobsson, einn allra
besti knattspyrnudómari lands-
ins, er nú staddur í Sviss og Aust-
urríki þar sem Evrópumótið fer
fram. Kristinn er fjórði dómari á
mótinu. Ef eitthvað kemur fyrir
dómara
leikjanna
eða aðstoð-
ardómar-
ana, meiðsli
eða annað
slíkt, þarf
Kristinn
að hlaupa
í skarðið.
Fyrsti leikur
Kristins er viðureign Austurrík-
is og Króatíu á sunnudag. Þess
má geta að Kristinn á afmæli á
sunnudag og mun því líklega
standa í ströngu á afmælisdag-
inn.
■ Breskir netmiðlar eru eins
misjafnir og þeir eru margir. f
vikunni birtist á einum sh'kum
miðli saga Guðna Bergssonar.
Þar er með-
al annars
komið inn
á að Terry
Venables
hafi keypt
hinn 23 ára
Guðna til
Tottenham.
Á sex árum
hafi Guðni
spilað 70 leiki með liðinu. Þegar
Ossie Ardiles hafi komið til Tott-
enham hafi hann farið til Bolton.
Þegar Guðni hafi síðan hætt hafi
Sam Allardyce reynt tvisvar að fá
Guðna til að hætta við að hætta.
Það hafi ekki gengið. Svo kemur
djúsið, því í þriðja sinn segir sag-
an að Allardyce eigi að hafa fyllt
Guðna og boðið honum gull og
græna skóga í Dubai.
■ Sagan um Mindaugas Stank-
evicius, sem berst fyrir lífi
hundsins síns,
Sustriss, fyrir
dómstólum er
hvergi nærri
lokið. Eins og
DV greindi
frá í síðasta
mánuði felldi
Hæstiréttur
íslands úr gildi
úrskurð Hér-
aðsdóms Suð-
urlands um
að aflífa skyldi
hundinn. Mál-
inu hefur aftur
verið vísað til
héraðsdóms
og því bíður
Sustriss enn
örlaga sinna. Fyrirtaka í málinu
fer fram á mánudag og þá verður
framhald málsins ákveðið. Máls-
kostnaður hleypur á hundruðum
þúsunda króna.
■ Björk og Sigur Rós munu
ekki þiggja greiðslu fyrir þegar
þau koma fram á útitónleikum í
Laugardalnum 28. júní. Borgar-
stjóri fagnar frumkvæði tón-
leikahaldaranna og segir þetta
einstakt tækifæri fyrir borgar-
búa að njóta tónlistar frægustu
tónlistarmanna landsins í einni
af útivistarperlum borgarinnar.
Reykjavíkurborg ákvað að styrkja
tónleikana um fjórar milljónir
króna á fundi í gær. Bæði Björk
og Sigur Rós hafa gert mikið til
að vekja athygli á náttúruvernd.
Tónleikarnir verða haldnir á tún-
inu við gömlu þvottalaugarnar í
Laugardal.
Umfangsmesta sakamáli síðari tíma er lokið fyrir islenskum dómstólum. Hæstiréttur
staðfesti dóm héraðsdóms. Tryggvi Jónsson fær 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi og
Jón Ásgeir Jóhannesson þrjá mánuði. Nú fer málið út fyrir landsteinana.
' BI b B 1 i / fir J I sl .
f / jfJ / / J
\ ra \ ■ \ V
1 /■' ■■ i' 1 ' ■S'Y 4 'Víi •• i fSSS 1 VH
Tryggvi Jónsson
JÓHANN HAUKSSON
bladamadur skrifar: johannhwdv.is
þess hefur verið kærð til Mannrétt-
indadómstóls Evrópu í Strassborg.
Þar er málið í höndum nefndar sem
ákvarðar hvort málið sé tækt til efnis-
legrar meðferðar fyrir sjálfúm dóm-
stólnum.
Evrópa er næst
f febrúar 2006 fengu sakborning-
ar í Baugsmálinu Tyge Triert, dansk-
an sérfræðing, til þess að semja
lögfræðiálit vegna endurbygging-
ar málsins af hálfu ríkissaksókn-
ara eftir endanlega frávísun Hæsta-
réttar á 32 ákæruliðum. Kannað var
hvort mögulegt væri að skjóta máli
sakborninga til Mannréttindadóm-
stóls á grundvelii 6. greinar mann-
réttindasáttmála Evrópu. Grein-
in verndar rétt manna til réttlátrar
málsmeðferðar innan hæfilegs tíma
fyrir sjálfstæðum og óvilhöilum
dómstóli.
í niðurstöðu álitsins er talað um
fjöida álitaefna þegar Baugsmálið
sé skoðað í ljósi 6. greinar mannrétt-
indasáttmálans. „Er það því skoðun
okkar að því megi halda því ffam að
ef ríkislögreglustjóri og ríkissaksókn-
ari halda áfram saksókn sinni varð-
andi nefnda ákæruliði (1-32) hafi
þeir ekki gætt viðeigandi jafnvæg-
is í mati sínu á réttindum sakborn-
inga og skilvirkum framgangi rétt-
| vísinnar... Ef Hæstiréttur fslands
ákveður að heimila endurskoð-
^ un ákærunnar og hafna þar með
þeirri afstöðu varnaraðila að slík
endurskoðun fari í bága við 6. gr.
ætti að íhuga málskot til Mannrétt-
indómstólsins í Strassborg."
Sem ljóst má vera tók Hæstirétt-
ur endurbyggingu Sigurðar Tóm-
^ asar saksóknara á Baugsmál-
inu til greina. Því var haldið
B áfram, nú í 19 liðum, og á
mL þeim grundvelli skutu sak-
B borningar málinu til Mann-
réttindadómstólsins.
Hæstiréttur staðfesti í gær dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur í Baugsmál-
inu fyrir ári. Jón Asgeir Jóhannesson
hlýtur því þriggja mánaða skilorðs-
bundið fangelsi, Tryggvi Jónsson tólf
mánaða skilorðsbundið fangelsi. Jón
Gerald Sullenberger, upphaflegur
kærandi í Baugsmálinu fyrir 6 árum,
skal einnig sæta þriggja mánaða skil-
orðsbundnu fangelsi.
Með dómi Hæstaréttar í gær er
lokið umfangsmesta sakamáli síðari
ára fyrir íslenskum dómstólum.
Ákæruvaldið
„Þetta er staðfesting á niðurstöðu
Héraðsdóms... Þessu verkefhi er iokið
sem ég hef haft með höndum í tvö og
hálft ár. Eftir atvikum er ákæruvald-
ið sátt við niðurstöðu málsins," sagði
Sigurður Tómas Magnússon saksókn-
ari eftir að hann hafði hlýtt á dóm
Hæstaréttar í gær.
Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar, sagði að málið
væri mikill sigur miðað við það sem
lagt var upp með í upphafi. „Þetta
er rýr uppskera miðað við það sem
ákæruvaldið lagði upp með í stærsta
sakamáli síðari tíma í íslandssög-
unni."
Formlega hófst Baugsmálið 28. ág-
úst 2002, með húsleit í höfúðstöðvum
Baugs, fyrir hartnær sex árum. Rétt-
um hálfúm mánuði áður hafði Jón
Steinar Gunnlaugsson, núverandi
hæstaréttardómari, komið á fund
Jóns H.B. Snorrasonar, sem þá var
saksóknari við efnahagsbrotadeild
ríkislögreglustjóra. Jón H.B. bar að
Jón Steinar hefði haft með sér tals-
vert af gögnum og óskað eftir aðT
leggja fram kæru fyrir hönd Jóns‘
Geráids Sullenberger, meðal
annars á hendur ákærðu Jóni Ásgeiri
ogTryggva. JónGerald, semsíðarvar
einnig ákærður, kom til skýrslutöku
hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglu-
stjóra að morgni sunnudagsins 25.
ágúst 2002, þremur dögum fyrir hús-
leitína.
Tveir sakborningar voru eftir
Rannsókn málsins stóð yfir sam-
fellt í nær þrjú ár. Ákærur voru gefnar
út í 40 liðum sumarið 2005 yfir 6 sak-
borningum. Upprunalegu ákærun-
um var öllum vísað ffá dómi utan átta
sem Hæstiréttur dæmdi að skyldu
fara aftur tii efnislegrar meðferðar
Héraðsdóms Reykjavíkur.
Aðeins tveir sakborninganna eru
enn til meðferðar í dómskerfinu, þeir
Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarfor-
maður Baugs, og Tryggvi Jónsson,
fyrrverandi forstjóri félagsins. Auk
þeirra var Jón Gerald Sullenberger,
upphaflegi kærandinn, ákærður sjálf-
ur á síðari stígum fyrir tilhæfulausa
reikninga í viðskiptum Nordica, fé-
lags í hans eigu, við Baug.
25. janúar 2007 staðfesti Hæstirétt-
ur sýknudóm Héraðsdóms Reykja-
víkur frá 15. mars 2006. Feðginin Jó-
hannes Jónsson og Kristín
Jóhannesdóttír
og endur-
skoð-
umir Stefán Hilmar Hilmarsson og
Anna Þórðardóttir voru þar með laus
allra mála.
Sigurður Tómas Magnússon, sett-
ur saksóknari, endurreisti málið í 19
liðum. Sakborningunum Jóni Ásgeiri
og Tryggva var gefið að sök ff járdrátt-
ur, brot gegn hlutafélagalögum, bók-
haldsbrot, ólögmæt lán milli skyldra
félaga, og rangar tilkynningar til verð-
bréfaþings.
Fá skilorðsbundinn dóm
í maí og júní í fyrra kvað héraðs-
dómur upp dóm sinn. Jón Ásgeir
var dæmdur í þriggja mánaða skil-
orðsbundið fangelsi fyrir bókhalds-
brot og rangar tilkynningar til verð-
bréfaþings. Tryggvi hlaut 12 mánaða
skilorðsbundinn fangelsisdóm fyr-
ir meiriháttar bókhaldsbrot og fjár-
drátt með dómi héraðsdóms 28. júm'
í fyrra. Jón Gerald taldist meðsek-
ur um bókhaldsbrot með útgáfu til-
hæfulausra reikninga eins og áður
segir.
Sækjandi og verjandi skutu báðir
málinu til Hæstaréttar sem nú hefur
kveðið upp sinn endanlega dóm.
Þótt Baugsmálinu ljúki nú fyrir ís-
lenskum dómstólum er ekki
þar með sagt að því
sé endanlega
lokið, því
meðferð
Vill að Björn Bjarnason seqi af s'
Hreinn Loftsson, fyrrverandi
stjórnarformaður Baugs, kall-
ar eftir því að Haraldur Jóhann-
essen ríkislögreglustjóri, Jón H. B.
Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri
á höfuðborgarsvæðinu, og Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra segi
af sér. „Það var hátt reitt til höggs og
þetta er niðurstaðan. Hún er í engu
samræmi við upphaflegar aðgerðir
lögreglunnar. Þar lá að baki ásökun
um tugmilljóna króna fjárdrátt sem
aldrei var fótur fyrir. Þetta er áfellis-
dómur yfir lögreglu og saksóknara,
miðað við að þeir hafa eytt ómæld-
um tíma, peningum og fyrirhöfn til
að knésetja Jón Ásgeir Jóhannesson
og Baug Group. Þetta hefur þeim
mistekist og ég tel að Haraldur Jo-
hannesen, Jón H. B. Snorrason, svo
ekki sé minnst á Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra, sem varið hef-
ur gjörðir þessara manna, ættu allir
að segja af sér. Dómgreindin hefúr
brugðist þessum mönnum illilega og
íslenska þjóðin á betra skilið en slíka
menn í svo ábyrgðarmiklum hlut-
verkum," segir Hreinn.
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur í Baugs-
málinu svokallaða. Þar var Jón Ás-
geir Jóhannesson, fyrrverandi for-
stjóri Baugs, dæmdur í þriggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi,
Tryggvi Jónsson, fyrrverandi aðstoð-
arforstjóri Baugs, í tólf mánaða skil-
orðsbundið fangelsi og Jón Gerald
Suilenberger athafnamaður í þriggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Sakborningunum var jafnframt gert
að greiða málsvarnarkostnað.
„Það er ijóst að stóra Baugsmál-
inu er lokið, það er mesta efnahags-
brotamáli íslandssögunnar. Ríkis-
valdið er búið að kosta miklu til þess
að ná aðalmanninum og þriggja ára
skilorðsbundið fangelsi er niður-
staðan. Þetta staðfestir héraðsdóm
að öllu leyti um niðurstöðuna og
refsinguna," segir Jakob Möller, lög-
maður Tryggva Jónssonar, um nið-
urstöðu Hæstaréttar í dag.
Sigurður Tómas Magnússon sak-
sóknari sagði niðurstöðu Hæstarétt-
ar ákveðið ánægjuefni þó sakborn-
ingarnir væru eflaust ekki sáttir.
„Hæstaréttardómurinn talar sínu
máh með öllum þeim sönnun-
arkröfum sem gerðar eru," segir
Sigurður Tómas en vill að öðru
leyti lítið tjá sig um niðurstöð-
una þar sem hann hefur ekki
farið yfir dóminn í heild sinni.