Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2008, Blaðsíða 72
5 "690710'h
FRÉTTASKOT 512 70 70
DV BORGAR 2.500 KRÓNUR FYRIR FRÉTTASKOT SEM LEIÐIR TIL FRÉTTAR. FYRIR FRÉTTASKOT SEM VERÐUR
AÐALFRÉTT Á FORSlÐU GREIÐAST 25.000 KRÓNUR. FYRIR BESTA FRÉTTASKOT VIKUNNAR GREIÐAST ALLT
AÐ 50.000 KRÓNUR. ALLS ERU GREIDDAR 100.000 KRÓNUR FYRIR BESTA FRÉTTASKOT HVERS MÁNAÐAR.
ÞRJÁTÍU MILLJÓNIR
LEITA EIGANDA mm
■ Hinn sextugi Reykvíkingur sem
vann nær 30 milljónir í Lottó
hefur ekki enn fundist þrátt fyrir
ítarlega leit. Maðurinn hefur verið
áskrifandi að Lottó lengi en er ekki
með GSM-síma og því erfltt um
vik að finna manninn. Samkvæmt
íslenskri getspá er vitað hver mað-
urinn er og því aðeins tímaspurs-
mál hvenær hann finnst. Spurn-
ingin er bara hvort hann hreinlega
vilji milljónirnar 30.
DÓNASKAPURí
MORGUNSÁRIÐ
■Krakkamir í morgunþættinum
Zúúber á FM957 fóru ótroðnar
^lóðir í umræðum sínum í þætt-
inum fyrr í vikunni. Þótti þeim
undrum sæta að konur í sundlaug-
um borgarinnar væru ósnyrtar og
hári vaxnar víðar en á höfðinu og
fjargviðruðust yfir þessu meinta
vandamáli í beinni útsendingu. Tók
þó fyrst steininn úr þegar vanga-
velturnar leiddust út í munngælur.
Þegar hlustandi einn hringdi inn,
kvartaði yfir dónaskapnum og benti
á að böm væru að hlusta hreytti
einn þáttastjórnandinn út úr sér að
þau myndu þá bara draga fram nýj-
ustu litabækumar. Hlustandanum
^var svo sagt að skipta um stöð ef
honum líkaði ekki við umræðumar
áður en skellt var á.
mm
i heimasíðu sirtni skrifar Össur
Skarphéðinsson um stöðu vinstri
flokkanna í borginni. Hann segir
einungis stórslys geta komið í veg
fyrir að þeir myndi meirihluta í
borginni eftir næstu kosningar. Þar
séu mjög traust tengsl með upp-
rennandi forystumönnum Sam-
fylkingar og vinstri grænna; Degi og
Svandísi. Hann segir að persónu-
leg tengsl geti leitt til merkilegrar
þróunar í stjómmálum. „Að því leyti
gætu pólitískar ástir parsins í
'^iíeykjavík haft mikil áhrif í
stjómmálum næsta áratug-
ar, alveg eins og pólitískt
kaldlyndi milli for-
ystu Samfylkingar
ogVGálandsvísu
hafðigreinilega
áhrif á það hvem-
ig ríkisstjóm var
mynduð eftír síð-
ustu kosningar."
Er Grétar Mar orðníð-
ingur?
Grétar Mar Jónsson, þingmaður frjálslyndra, víttur af þingforseta:
ORÐLJÓTUR EFTIR JARÐSKJÁLFTA
Alþingismaðurinn Grétar Mar
Jónsson fór mikinn í ræðustól Alþing-
is í utandagskrárumræðu um meint
mannréttindabrot stjórnvalda vegna
kvótakerfisins. Umræðan hvarf þó
í fjölmiðlafári sem upphófst í fram-
haldi Suðurlandsskjálftans sem reið
yfir á fimmtudeginum örlagaríka
þegar Suðurland lék á reiðiskjálfi um
klukkan korter fyrir fjögur síðdegis.
Umræðan um kvótann og mannrétt-
indin hófst klukkan fjögur og gustaði
þar mjög af Grétari Mar sem kallaði
ríkisstjómina mannréttíndaníðinga
og druslur og sagði þá vera með skít-
legt eðli. Fáir fylgdust með enda flest-
ir að fylgjast með tíðindum af skjálft-
anum. En Sturla Böðvarsson, forseti
þingsins, fylgdist þó grannt með og
sló í bjöllu þegar hin þungu orð féllu
af munni þingmannsins. Eftir um-
ræðuna vítti hann síðan Grétar Mar
fyrir ummælin. Grétar segir að hann
hafl í ræðu sinni tekið upp ummæli
sem Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur VG, hafði notað um Davíð Odds-
son, þáverandi forsætísráðherra, sem
kallaður var gunga og drusla. Þá seg-
ist hann hafa notað skítlegt eðli sem
Davíð notaði sem einkunn um Ólaf
Ragnar Grímsson,
þáverandi fjár-
málaráðherra.
Grétar segist
ekki hafa hug-
mynd um það
hvort víturnar
hafi einhveijar
afleiðingar í för
með sér.
Velkomin í nýja verslun okkar að Draghálsi 14-16
Vista* Spa
Grandee'Spa
Envoy'Spa
Vanguard*Spa
6 manna, 1893 lítra pcrttur
7 manna, 1893 Iftra pottur
5 manna, 1703 Iftra pottur
6 manna, 1514 lítra pottur
46 nudd-stútar
37 nudd-stútar
38 nudd-stútar
31 nudd-stútar
2,54x2,31 - hæð 97 sm
2,54x2,31 -hæö 97 sm
2,36 x 2,26-hæö 91 sm
2,20 x 2,20-hæð 91 sm
Prodigy*Spa
5 manna, 1230 lítrapottur
19 nudd-stútar
1,88 x 2,21 - hæö 84 sm
,L
*
! ’, < í
Sovereign'Spa
6 manna, 1344 lítra pottur
23 nudd-stútar
2,03 x 2,36 - hæö 84 sm
f
Jetsetter*Spa
3 manna, 814 Iftra pottur
11 nudd-stútar
2,08 x 1,57-hæft 74 sm
ÍSLEIFUR
JÓNSS0N
Dragháls 14-16
Sími 4 12 12 00
www.hotspring.com