Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2008, Page 13
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2008 13
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar
aka um á glæsivögnum. Saman-
lagt kaupverð þeirra er rúmar 74
milljónir króna. Guðlaugur Þór
Þórðarson og Björgvin G. Sig-
urðsson aka um á sams konar
bílum sem hvor um sig kostaði
nálægt 8 milljónum. Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir og Geir H.
Haarde aka um á fjögurra ára
gömlum bilum, en Jóhanna Sig-
urðardóttir skipti yfir í ódýrari.
Andsnúnir tálbeitum
I Reykjavík voru notaöar tálbeitur
á unglingsaldri til aö kanna
umfang sölu tóbaks til ungmenna.
Vegna hótana um lögsóknir frá
tóbakssölum var þessu hætt.
Koma í veg fyrir kannanir á sölu tóbaks til ungmenna:
Tóbakssalar hóta löqsóknum
„Því miður fáum við kvartan-
ir víðs vegar að af landinu um að
börn séu bæði að afgreiða og kaupa
tóbak," segir Viðar Jensson, verk-
efnisstjóri í tóbaksvörnum hjá Lýð-
heilsustöð. Eftirlitsaðili með því að
lögum um tóbaksvarnir sé fram-
fylgt er heilbrigðisnefnd í hverju
sveitarfélagi.
Starfsmenn forvarnanefnd-
ar Hafnarfjarðarbæjar stóðu ný-
verið að reykingakönnun þar sem
börn úr 10. bekk fóru á alla sölu-
staði tóbaks í Hafnarfirði utan vín-
veitingastaða og reyndu að kaupa
tóbak. í 53 prósentum tilvika gátu
unglingarnir keypt tóbak. Af nítján
sölustöðum seldu tíu staðir þeim
tóbak.
Búast má við því að þeir staðir
sem selji börnum tóbak fái áminn-
ingu eða verði sviptir tóbakssölu-
leyfi eins og lög um tóbaksvarnir
gera ráð fyrir.
Forvarnanefndin harmar niður-
stöðu rannsóknarinnar og hvetur
söluaðila tóbaks í Hafnarfirði til að
virða lög um tóbaksvarnir.
Viðar segir ástæðuna fyrir því
að kannanir sem þessar séu ekki
gerðar á landsvísu séu að tóbaks-
salar hafi hótað heilbrigðisnefnd-
um lögsóknum ef þær nota tálbeit-
ur undir aldri til að gera kannanir.
Reykjavíkurborg lét áður gera slíkar
kannanir en hætti því vegna hótana
frá þeim sem tóbakið selja.
Þær verslanir sem kannanirnar
í Hafnarflrði hafa náð til hafa sam-
þykkt að leyfllegt sé að gera kann-
anir sem þessar hjá þeim en það
getur óneitanlega skekkt niður-
stöður þar sem söluaðilar vita af
könnunum.
Viðar segir nauðsynlegt að finna
aðferð til að gera kannanir á sölu
tóbaks til ungmenna án þess að lög
séu brotin og að verið sé að leita að
leiðum til þess.
Dagur án tóbaks var haldinn
31. maí á vegum Lýðheilsustöðv-
ar. Þessa dagana er Lýðheilsustöð
að senda tóbakssöluleyfishöfiim
um allt land áskoranir um að taka
á sölu til ungmenna, auk þess sem
þeir eru minntir á ábyrgð söluað-
ila.
Á Degi án tóbaks fengu verslanir
Bónuss sérstaka viðurkenningu frá
Lýðheilsustöð fyrir að hafa aldrei
selt tóbak. Viðar segir að það væri
ánægjulegt ef fleiri tækju sér það
til fýrirmyndar og leggðu þannig
sitt af mörkum til tóbaksvarna á Is-
landi.
erla@dv.is
SérEfni
Nordsjö • International
Virka daga 08-18 , Laugardaga 10-14 • Lágmúli 7, bakhús • S: 517 0404
Nordsjö inni- og útimálningin þekur og endist betur.
Nordsjö gæöamálning sparar tíma og vinnu.
ÚLFLJÓTSVATNI
Upplýsingar og skráning á netinu:
www.ulfljotsvatn.is
- Sparkleikir - Frumbyggjastörf - Ædol - Útilíf - Kassabílaakstur - Suf/d
%
Fyrir stráka og stelpur 8-12 ára - skipt í hópa eftir aldri
„Krassandi útilífsœvintýri - fjör og hópcflisandi!
INNRITUN ER HAFIN ■ Opið virka daga kl. 10-16 - sími 550 9800 - sumarbudir@ulfljotsvatn.is.