Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2008, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2008
Fréttir DV
Bretar og Þjóðverjar hafa löngum eldað grátt silfur. Eitt deiluefna þeirra hefur lifað góðu lífi síðan á sjöunda
áratug síðustu aldar; slagurinn um sólbekki við sundlaugarbakkann, meinta notkun Þjóðverja á handklæðum
til að helga sér stað sem síðan er ónotaður lungann úr deginum og margt fleira.
KOLBEINN PORSTEINSSON
bladamaöur skrifar: kolbeinmu-dv.is
■■■■■■■■ v
Oft hefur verið grunnt á því góða á
milli Þjóðverja og Breta. Eitt þeirra
deiluefna sem lifað hafa góðu lífi hófst
á sjöunda áratugnum þegar mikill
efnahagsvöxtur í Vestur-Þýskalandi,
sem þá var, varð til þess að Þjóðverj-
ar fóru að leggja undir sig vinsæla
ferðamannastaði. Fyrr en varði slóg-
ust Bretar og Þjóðverjar um takmark-
að hótelrými og að lokum fór svo að
Þjóðverjar höfðu sigur í krafti sterks
gjaldmiðils þjóðarinnar. Þjóðverjar
hafa löngum þótt erfiðir og hroka-
fullir ferðamenn og hin síðari ár hafa
breskir ferðamenn á sólarströndum
gjarna verið tengdir óhóflegri neyslu
áfengis. f þessu efni sem mörgum
öðrum er þó óvarlegt að alhæfa.
Fráteknir sólbekkir og
þýskur hreimur
f síðustu viku vann Bretinn David
Barnish mál gegn ferðaskrifstofunni
Thomson. Bamish hafði keypt lúx-
usferð til grísku eyjarinnar Kos fyrir
alla fjölskylduna og greitt sem nem-
ur rúmlega sex hundruð þúsundum
króna iyrir.
Breska dagblaðið Sun hefur í
gegnum tíðina ekki verið þekkt íyrir
að nota hvert tækifæri sem gefst til að
skjóta á Þjóðverja og fjallaði um málið
eins og því einu er lagið. í grein blaðs-
ins kemur ffam að David Barnish hafi
heldur betur brugðið í brún þegar
hann mætti með fjölskylduna á svæð-
ið. Handklæði lágu á fjölda ónýttra
sólbekkja og hreimur þýskrar tungu
sá eini sem heyrðist; hvort tveggja eit-
ur í beinum breskra ferðamanna. Sá
siður, sem Bretar saka Þjóðverja sér-
staklega um, að taka sólbekk frá með
því að leggja handklæði á hann hef-
ur verið uppspretta margra brand-
ara. Einn slíkur frá 1991 sýnir breskt
herskip á leið til fraks með þýsk gögn
vegna innrásarinnar; handldæði. Sjó-
liði segir við félaga sinn: „Við eigum
greinilega að fara snemma á fætur
og leggja þau á ströndina - Þjóðverj-
ar segjast vera afkastamiklir við að til-
einka sér svæði."
Allt miðaðist við Þjóðverja
David Barnish sagði að fjölskyld-
an hefði ekki getað nýtt sér neitt af
því sem boðið var upp á á hótelinu.
„Við reyndum að taka þátt í sjóbretta-
og jóganámskeiðum, en allar leið-
beiningar voru á þýsku," sagði Barn-
ish. Yngsta dóttir hans vildi taka þátt
í krakkaklúbbnum á hótelinu og varð
ffá að hverfa því hún skildi ekki hvað
var um að vera. „Meira að segja sjón-
varpið var á þýsku, ef undanskilin er
ein rás," sagði Bamish sem fékk and-
virði eitt hundrað og fjórtán þúsunda
króna endurgreitt frá ferðaskrifstof-
unni.
David Barnish þvertók fyrir að vera
haldinn fordómum og sagðist ekki
heldur kæra sig um að fjölskyldufrí
hans yrði yfirteláð af Englendingum.
En í hnotskum sagði Bamish að það
væri kominn tími til að dusta sand
TILBOÐSDAGAR - VAXTALAUS LAN I 6 MANUÐI
Frí legugreining og
fagleg ráðgjöf um val
á heilsudýnum.
IlÚHgugiiHvinnuHtofa 1(11
BYLTING I SVEFNLAUSNUM
GEL/ETHANOL
ARINELDSTÆÐI í
SUMARBÚSTAÐINN
EÐA HEIMILIÐ.
REYKLAUS OG
LYKTARLAUS
AFSLATTUR
Verslunin Rúmgott • Smiðjuvegi 2 ■ Kópavogi • Sími 544 2121. Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16 www.rumgott.is