Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2008, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 6. JÚNl 2008
Umræöa DV
ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaðiö-Vísir útgáfufélag ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elín Ragnarsdóttir
RITSTJÓRAR:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og ReynirTraustason, rt@dv.is
FULLTRÚI RITSTJÓRA:
Janus Sigurjónsson, janus@dv.is
FRÉTTASTJÓRI:
Brynjólfur Þór Guðmundsson, brynjolfur@dv.is
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Ásmundur Helgason, asi@birtingur.is
DREIFINGARSTJÓRI:
Jóhannes Bachmann, joib@birtingur.is
ÐV A NETINU: DV.IS
AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010,
ASKRIFTARSlMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7040.
Umbrot: OV. Prentvlnnsla: Landsprent. Drelfing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aöserit efni blaösins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
011 viötöl blaösins eru hljóörituö.
SANDKORN
■ Deilur Þórhalls Gunnars-
sonar, dagskrárstjóra Sjón-
varpsins, og Árna Snœvarr
kvikmyndargerðarmanns um
ESB-heimildarmynd hins
síðarnefnda
standa enn.
Þórhallur
hafði að sögn
Árna viljað
kaupa mynd-
ina til sýning-
ar en hætt við
vegna þjónk-
jnar við Sjálf-
stæðisflokkinn. Þessu hafnaði
Þórhallur alfarið og taldi Árna
ekki fara rétt með varðandi
samskipti þeirra. Þá vildi Árni
fá að opinbera tölvupósta sem
gengu þeirra í milli en Þórhall-
ur lagðist gegn því svo af því
varð ekki. Enginn veit því hvað
er rétt eða rangt.
-7
'Wf
lu:
■ Orðið á götunni segir frá því
að Ágúst Héðinsson, dag-
skrárstjóri Bylgjunnar, hafi
tilkynnt Valdísi Gunnarsdótt-
ur útvarpsmanni í tölvupósti
að hann ætli að „poppa upp
sunnudagsmorgnana" og að
„það sé ekki í hennar verka-
hring". Ef marka má þetta er
Valdís að hætta með sunnu-
dagsþætti sína á Bylgjunni, þar
sem hún hefur um árabil tekið
fólk í löng og mikil viðtöl. Á
sama vettvangi er sagt frá því
að Telma Tómusson, frétta-
konan knáa, sé að snúa baki
við Mogganum og snúa aftur
á Stöð 2.
■ Ró hefur reyndar færst yfir
Morgunblaðið eftir að Ólafur
Stephcnsen tókyfir ritstjórn-
ina og Styrmir Gunnarsson
gekk inn í
sólarlagið.
Hermt er
að Ólaf-
ur hafi náð
upp góðri
stemningu á
ritstjórninni
þrátt fyrir
sársauka-
fullar aðgerðir. Þá heyrist úr
Hádegismóum að einkar gott
samstarf sé milli Ólafs og Karls
Blöndal aðstoðarritstjóra en
ýjað hafði verið að því Karl
væri ekki mjög sáttur við að
vera sniðgenginn þegar skipað
var í æðstu stöður á blaðinu.
■ Ekki er komið á hreint hvað
Gríinur Atlason, fyrrverandi
bæjarstjóri Bolvíkinga, tek-
ur sér fyrir
hendur eftir
að hann var
flæmdur
úr bæjar-
stjórastóli
Bolvíkinga.
Vangaveltur
voru um að
hann tæki
við af Ómari Má Jónssyni sem
sveitarstjóri í Súðavík en sá
hætti við að hætta. Nú eru
uppi raddir um að Samfýlking
á Isafirði vilji fá kappann til að
vera fremstur á lista í bæjar-
stjórnarkosningum og þá sem
bæjarstjóraefni.
LEIÐARI
Ráðherra svínar á lögum
REÝNIR TRAUSTASON RITSTJORISKRIFAR.
rni Mathiesen fjármálaráðherra
A svínar á íslenskum lögum með því
að skrá lögheimili sitt í Kirkjubæ í
/ Þykkvabæ. Hvert mannsbarn veit
að lögheimili þýðir að þar held-
ur einstaklingurinn til í einhverjum mæli.
Árni býr í Hafnarfirði og heldur þar heim-
ili. Heimamenn í Þykkvabæ sem DV ræddi
við hafa ekki orðið varir við þennan meinta
sveitunga sinn. Ráðherrann er algjörlega
ótengdur húsi sem hann hefúr logið
til um að sé heimili hans. Árni er
Hafnfirðingur en ekki Þykkva-
bæingur þótt hann hafi kosið
að halda öðru fram. Hann var
á fremsta bekk þegar Hafnfirð-
ingar héldu afmælishátíð sína
á dögunum. Samt er hann að
svíkja það sveitarfélag um
útsvar sem er sú greiðsla
sem á að standa undir því
Árni er Hafnfirðingur en ekki Þykkvabceingur
að hreinsa í burtu ruslið hans og veita aðra nærþjón-
ustu. Árið 2007 hafði hann óverulegan ávinning
af skráningunni en í ár er sama útsvarsprósenta
á báðum stöðum. Fjármálaráðherrann á að vera
vakinn og sofinn yfir hagsmunum ríkisins og fyr-
irmynd annarra í viðskiptum við ríkissjóð. Samt
þiggur hann dreifbýlisstyrk sem ætlað er að standa
undir kostnaði við dvöl ráðherrans sem aðkomu-
manns á höfuðborgarsvæðinu
Hermt er að allir Iandsbyggðarþing-
menn fái sömu styrki og Hafnfirð-
ingurinn Árni Mathiesen sem skrá-
ir falskt lögheimili í Þykkvabæ. í
þessu felst siðleysi vegna þess að
þeir sem búa á höfuðborgarsvæð-
inu og bera ekki kostnað af heim-
ilishaldi annars staðar eiga ekki
að fá húsnæðisstyrki. Fjármála-
ráðherra hefði átt að sjá sóma sinn
í því að afþakka umræddar greiðsl-
ur og leiðrétta skráningu lögheimil-
ÞYKIST BÚA í ÞYKKVABÆ
IÞyldcvabænum búa alls konar
ósýnilegar furðuverur og þar á
meðal álfar sem framleiða kart-
öfluflögur, saltaðar og kryddaðar
djúpsteiktar sneiðar þeirra ágætu
jarðepla sem spretta upp úr frjóum
jarðveginum í Þykkvabæ. Þar býr
líka einhver lánlausasti ráðherra
landsins, Árni Mathiesen íjár-
málaráðherra. Árna hafa
verið mislagðar hend-
ur í hinum ólíklegustu
embættisverkum og
þannig hefur hann
verið vændur um
að brjóta jafnréttis-
lög við mannaráðn-
ingar og svo auðvitað
nú síðast fyrir að taka
son Foringjans fram yfir
reynslumikla og spreng-
lærða lögmenn og gera piltinn
að héraðsdómara.
Málsvörn ráðherrans í
því máli var á köflum
átakanleg eins og svo oft
áður. Eiginlega hefur Árni ekki ver-
ið sjálfum sér líkur eftir að hann féll
af stalli sem ein helsta vonarstjarna
flokksins í Suðvesturkjör-
dæmi. Þá hafði eðalbor-
ið Hafnarfjarðaríhald-
ið það náðugt í einu
fegursta bæjarstæði
landsins og fram-
tíðin var björt. Þetta
breyttist skyndilega
þegar Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
ruddist fram, velti
Árna af stóli og tók
sæti hans í kljör-
dæminu með þeim
afleiðingum að hann
mátti sætta sig við að verða
niðursetningur á Suðurlandi
hjá þeim Guðna Ágústssyni
og Árna Johnsen sem hefur
einmitt kyrjað undurfagurt
um kartöflugarða.
einu sinni að skrá lögheimifi sitt
með réttum og löglegum hætti.
Árni fékk nefnilega að halda
heimili sínu í Hafnarfirði eftir
að Þorgerður Katrín niðurlægði
hann. Og þar hefur hann búið,
steinsnar frá Alþingishúsinu
þannig að ekki hefur búset-
an beinlínis gert ráðherr-
anum daglegt líf og störf
erfiðari.
Leiðin hefur síðan leg-
ið niður á við og í raun
má það furðu sæta að Árna
takist enn að hanga á þingsæti
og ráðherrastóli í ljósi alls
sem dunið hefur á honum. Að
vísu fyrst og fremst fyrir eigin
klaufaskap. Nú hefur komið á
daginn að dýralæknirinn sem
fer með fjármál ríkisins kann ekki
ngu að síður er
hann skráður til
lögheimilis í húsi
nokkru í Þykkvabæ. Ráðherr-
ann á húsið ekki og virðist ekki einu
sinni vera leigjandi þar. Nágrann-
arnir hafa í það minnsta aldrei séð
hann og í húsinu dvelja tveir Pól-
verjar sem starfa við það að taka
upp kartöflur sem álfarnir ósýni-
legu sá svo um að salta og krydda.
Sé það rétt að ráðherrann hafi bú-
setu í Þykkvabæ er hann svo sann-
arlega ósýnilegur þar sem pólskir
meðleigjendur hans hafa ekki orðið
hans varir.
Landsbyggðarþingmenn fá
vitaskuld sjálfkrafa einhverja
dreifbýlisstyrki til þess að
létta undir þar sem margir hverjir
þurfa þeir að halda tvö heimili. Eitt
í túnfæti Alþingishússins og annað
í sinni heimabyggð. Árni er, þrátt
fyrir að Þorgerður Katrín hafi gert
hann að dreifbýlisþingmanni, laus
við þetta vesen þar sem hann býr
í Hafnarfirðinum. Hann getur þá
bara notað peninginn í eitthvað
annað. Öllu verra er að
með því að búa í raun
og veru í Hafnarfirði
en vera skráður til
heimilis í Þykkva-
bæ greiðir ráðherr-
ann lægra útsvar í
sameiginlega sjóði
landsmanna en hann
sér einmitt um að útdeila þeim fjár-
munum sem við leggjum öll saman
í púkkið.
Búsetumál ráðherrans er því
hið vandræðalegasta en
hann kippir sér þó ekki upp
við það og vill halda þessu sem sínu
einkamáli. En það hefur ráðherr-
ann svo sem hingað til viljað gera
með öll sín klúðursmál í stjórnsýsl-
unni. Óhætt er því að segja að nóg
sé af álfum í Þykkvabæ. Állir eru
þeir þó ósýnilegir og sumir alveg út
úr hól og greiða því lægra útsvar.
SVARTHÖFÐI
DÓMSTÓLL GÖTUIVIVAR
ÞARF AÐ TAKA HARÐAR Á ÖKUNÍÐINGUM?
„Já, það þarf að gera það, svo
sannarlega. Þeir hafa keyrt í veg fyrir
son minn og við fengum næstum þvl
hjartaáfall!"
Hansína Vilhjálmsdóttir,
72 ára ellilífeyrisþegi
„Já. Ég er á bíl og er kannski hægfara (
umferðinni, en þetta er orðið
hræðilegt. Maður er bara hræddur og
veit aldrei á hverju maður á von."
Anna Jónasdóttir,
73 ára ellilífeyrisþegi
„Já, ég myndi segja það. Það þarf að
sekta þá meira. Peningar eru það eina
sem þeir skilja."
Sigríður Steinþórsdóttir,
75 ára ellilífeyrisþegi
„Já, mér finnst það. Ég hef sjálfur keyrt
of hratt og fengið of mikið af sektum.
Maður veit alveg að það er nóg af fólki
þarna sem mætti bæta sig í umferö-
inni. Það mætti líka taka gamalt fólk úr
umferð, láta það taka próf aftur með
kennara. Það er hræðilegt að vera fyrir
aftan einhvern á flutningabíl þegar
manneskjan keyrir á 60."
Hörður Reynisson, 22 ára bílstjóri