Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2008, Page 25
DV Umræða
FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2008 25
Sandkassinn
MYNDIIV
Blómlegir ólympíuleikar Undirbúningur fyrir Ólympíuleikanna í Peking stendur yfir á fleiri sviðum en Iþróttum. Verkamenn eru í óða önn að rækta
blóm til skreytinga á meðan á leikunum stendur en gert er ráð fyrir að yfir 40 milljónir plantna þurfi fyrir leikana f ágúst. DV-myndCetty
Nínan - ný bók-
menntaverðlaun
Jórunn Frimannsdóttir, borgarfulltrúi
og formaður velferðarráðs Reykjavík-
urborgar, fær mínusinn. Hún hefur enn
ekki svarað fyrir ástæður þess að
lægsta tilboð í rekstur félagslegs
úrræðis fyrir vimuefnasjúklinga var
sniðgengið. Hún hefur verið sökuð um
spillingu I málinu.
SPURNINGIN
VERÐUR BLÁSIÐTIL
SÓKNAR?
„Nei, það verður
blásið til varnar
og langra,
árungsríkra
sendinga. Ég vil
með engu móti
tippa á úrslitin, en
við skorum í
þessum leik," segir
hinn kokhrausti
Elvar Geir Magnússon, forseti hins
nýstofnaða þriðjudeildarliðs KB. Liðið
hefur dregist gegn stórliði KR í næstu
umferð VISA-bikarsins í knattspymu.
Leikmenn KB munu fá eldskírn I
Frostaskjólinu, síðar í þessum mánuði.
Júní er með fallegri mánuðum; þá
byxjar allt að gróa og syngja og nátt-
úran gerir rigningargrín og þá getur
maður gefið sér frí frá pólitik og lygi
og blekkingum og rifrildum og þrasi
og alls konar hallærislegu veseni.
Alltaf í byriun júm' hugsa ég til
Nínu Bjarkar Ámadóttur, skáldkonu
með láði, húmor og skemmtileg-
heitum; ég hugsa um allar bækurn-
ar sem hún skrifaði og fengu mann
til að emja af hlátri og deyja næstum
úr sorg.
Það eru ekki margir höfund-
ar einsog Nína; hún gaf sífellt sitt-
hvað nýtt í sarpinn, ekki síst það
sem er og verður umhugsunarvert,
manni leiddist heldur aldrei á ferð
með henni, hún alltaf að koma á
óvart enda var hún bókmenntaiegt
hrekkjusvín.
Nína Björk var engri konu lík og
hún var alls engu skáldi lík; hún hefði
orðið 67 ára gömul á morgun, sjö-
unda júní, ef hún hefði getað hugsað
sér það; hún hefði fengið sín ellilaun
samkvæmt lögum og kannski hefði
hún eftir það getað lifað svo dæma-
laust góðu lífi; hún hefði getað orðið
sterk og góð amma og hún hefði get-
að gefið fólkinu sínu allt sem hana
langaði til að gefa því og okkur hin-
um hefði hún gefið fleiri bækur. En
Nína kaus að deyja okkur árið 2000,
kaus að stoppa ekki lengur á þessari
stoppistöð hér. En bíðum aðeins við;
það er eitthvað furðulegt við það að
„Allirsem þekktu hana
vissu líka að hún var fyrst
ogsiðastskáldsem tókst
á við það sem hjarta
hennarstóð næst og var
ekki endilega alltaftil
vinsælda fallið."
VIGDiS
GRÍMSDÓTTIR
rithöfundur skrifar
nefna Nínu Björk og ellilaun í sama
andartaki af því að Nína var í raun-
inni stelpa allt sitt líf; það að hún hafi
verið stelpa allt sitt líf segir ekki að
hún hafi ekki líka verið móðir, kona,
meyja og kelling, alls ekki, því hún
var þetta allt og hún sameinaði það.
Allir sem þekktu Nínu vissu að
þetta brothætta og fi'na innan í henni
gerði það að verkum að hún gat illa
tekist á við klisjur daganna og lífið
reyndist henni oft bæði mótdrægt og
yfirþyrmandi. Allir sem þekktu hana
vissu líka að hún var fyrst og síðast
skáld sem tókst á við það sem hjarta
hennar stóð næst og var ekki endi-
lega alltaf til vinsælda fallið; en hún
hugsaði aldrei um að gera öðrum
til geðs vegna þess að hún var
alltaf sjálfri sér samkvæm,
hún kafaði djúpt, skrifaði
einungis um það sem snerti,
sótti að og skipti máli.
Nínu hefði enginn getað
keypt í allri hugsanlegri merk-
ingu orðsins og við sem les-
um ljóðin hennar, sögurnar og
hugleiðum leikritin, við veðjum á að
skáldskapur hennar verði alltaf ná-
lægur og alltaf jafnlifandi og hann
er; þeir sem ekki þekkja bækur Nínu
Bjarkar ættu að drífa í því strax.
I hvert skipti sem ég horfði á Nínu
á meðan hún lifði vissi ég að ég var
stödd í miðju alheimsins, þar sem
hlutirnir gerðust, þar sem lífið byltist
og hamaðist og lék sér; Nína lét þús-
und blóm blómstra alstaðar þar sem
hún kom.
Okkur Gerði Kristnýju og Krist-
ínu Ómarsdóttur er heiður að segja
frá því að ný íslensk bókmenntaverð-
laun verða veitt í nafni Nínu Bjarkar
Árnadóttur í fyrsta skipti 7. Júní 2009.
Til greina koma öll bókmenntaverk
ársins 2008. Verðlaunin munu bera
nafnið NÍNAN og verða veitt fýrir þá
bók sem þykir skara framúr.
Meira um Nín-
una seinna.
ÉG HEF áður sagt sögur af uppá-
tækjum mínum á Kópaskeri, þar
sem ég ólst upp við mikið frjáls-
ræði. Einhveiju sinni fréttum við
af því að risastóran búrhval hefði
rekið á fjörur í nágrenni þorpsins.
Slíkar fréttir eru algjörlega ómet-
anlegar fyrir kraftmikla tíu ára
stráka. Við hjóluðum fimm saman
á fullri ferð þangað sem hvalurinn
hafði legið í fáeinar vikur.
EFTIR AÐ hafa hoppað og hjólað á
lýsismettuðu hræinu í drykklanga
stund fengum við afdrifaríka flugu
í höfuðið. Skít-
ugir upp fyrir
haus hjóluð-
um við á fullri
ferð til baka.
Þegar heim
var komið
læddumstvið
Jymskulega
um bílskúra
og geymslur heima hjá okkur og
gripum með okJair sagir, hnífa og
hamra. Við sögðum ekki nokkrum
einasta kjafti frá þeirri hugmynd
okkar að saga tennurnar úr hvaln-
um og öðlast þannig virðingu
allra þorpsbúa. Við töldum meira
að segja að við gætum orðið ríldr.
ÞEGAR VIÐ höfðum safnað öllum
nauðsynlegum tólum saman hjól-
uðum við aftur að hvalnum. Eftir
að hafa djöflast í úldnum kjaftin-
um á hvaínum í klukkutíma höfð-
um við náð að saga í sundur fimm
tennur. Verknaðurinn heppnaðist
fullkomlega þrátt fyrir að lýsis-
lyktin af fötum okkar og höndum
væri yfirþyrmandi. Montnari en
hópur af KR-ingum héldum við til
byggða. Við bárum höfuðið hátt
og yngri krakkar öfunduðu okkur
augljóslega mildð. Það gerðu for-
eldrar okkar Iiins vegar ekld.
0KKUR VAR fljódega tjáð að bónd-
inn sem á jörðina þar sem hvalinn
hafði rekið á land, hafði aðrar og
raunhæfari áætlanir. Á leiðinni til
íslands voru nefnilega stórhuga
Japanir sem æduðu að kaupa
hræið og setja beinagrindina á
safn í heimalandinu. Hvalinn æd-
uðu þeir að kaupa á 150 þúsund
krónur. Nú voru góð ráð dýr því
bóndanum fannst þetta uppátæki
ekki jainsniðugt og okkur. Upp
kom sú hugmynd að leggja pening
í púkk og færa bóndanum. Okk-
ur var hins vegar ráðið frá því og
skipað að láta h'tíð fyrir okkur fara
næstu vilcumar. Japanamir hættu
við lcaupin og við spiluðum fót-
bolta það sem eftir var sumarsins.
I s
AESa
(sfupjm
-hvað er að frétta?