Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2008, Side 50
50 FÖSTUDAGUR 6. JÚNl 2008
Helgarblað DV
Michel Maure Svæfingalækn-
ir sem stundaði lýtalækningar
með umdeildum árangri.
(félagsskap Winstons Churchill
Gagnrýnendur óttast að menn láti taka
mynd af sér í félagsskap Adolfs Hitler.
Sakamál
UMSJÓN: KOLBEINN ÞORSTEINSSON kolbeinn@dv.is
Kona nokkur heitir Maxie Mounds og státar af stærstu
brjóstum í heimi. Nú virðist útséð með að henni verði
velt af stalli þvísú tækni sem beitt varvið brjósta-
stækkun hennar hefur verið bönnuð, í það minnsta á
Englandi. Maxie Mounds starfar í klámgeiranum og
hefur verið handhafi þessa merkilega titils síðan árið
2005 og ætti að vera nokkuð örugg um að sú verði
raunin áfram.
Okáhjól-
reiðamenn
Að minnsta kosti tveir létu
líflð þegar drukkinn ökumaður
ók inn í hóp hjólreiðamanna
sem tóku þátt í hjólreiðakeppni
í Mexíkó fyrr í vikunni. Þegar
hjólreiðamennirnir voru búnir
að hjóla um fjórðung leiðar-
innar ók tuttugu og átta ára,
drukkinn karlmaður, sem hafði
sofnað við stýrið, beint inn í
hópinn með þeim afleiðingum
að hjólreiðakapparnir þeyttust
upp í loftið. Margir hlutu al-
varlega áverka og voru fluttir á
sjúkrahús, en aðrir sluppu með
skrekkinn.
Að sögn lögreglu á staðnum
er ökumaðurinn bandarísk-
ur rfldsborgari og verður hann
ákærður fyrir manndráp.
Aldraðir
ökuþórar
Lögreglan á Nýja-Sjálandi
telur líklegt að ökuþórarnir
sem óku gegn akstursstefnu á
einum fjölfarnasta vegi lands-
ins, nálægt höfuðborginni
Wellington, verði beðnir um að
afhenda ökuskírteini sín. Um
var að ræða öldruð hjón, eitt
hundrað, og níutíu og níu ára
að aldri.
Talsmaður lögreglunnar,
Kaye Calder, sagði að hjónun-
um hefði til að byrja með tekist
að forðast bifreiðarnar sem
komu úr gagnstæðri átt á þess-
ari ævintýraför á þessum fjöl-
farna vegi, en að lokum fór svo
að þau lentu í árekstri og hlutu
við það minniháttar áverka.
Calder sagði ólíklegt að hjónin
yrðu ákærð, en lögreglu gekk
erfiðlega að fá úr því skorið
hvort þeirra sat við stýrið þegar
óhappið átti sér stað.
Borgaði fyrir
föðurmorð
Óhætt er að segja að menn
grípi til ýmissa ráða til að
tryggja sér draumastarflð og
sumir láta þá staðreynd að
jafnvel sé um óvönduð meðul
að ræða ekki halda fyrir sér
vöku. Maður í Bihar á Indlandi
sá ekkert því til fyrirstöðu að
greiða öðrum manni fyrir að
myrða föður sinn svo hann gæti
fengið starf hans, sem var á veg-
um ríkisstjórnarinnar. Morðið
átti að ffemja degi áður en fað-
irinn settist í helgan stein.
Að sögn lögreglunnar æd-
aði maðurinn, sem er frá þorpi
í austurhluta Bihar-fylkis, að
krefjast starfs föður síns á þeim
forsendum að hann hefði dáið
í starfl.
Réttarhöld yfir Michel Maure svæfingalækni hófust í París í upphafi vikunnar. Hann
er ákærður fyrir að hafa valdið sjúklingum sinum óbærilegu andlegu og líkamlegu
tjóni með fegrunaraðgerðum sem hann hafði ekki leyfi til að stunda:
LYTALÆKNIR
AN LEYFIS
Réttarhöld hófust á mánudaginn
í París yfír frönskum lækni sem
að eigin sögn er einn færasti lýta-
læknir í heimi. Lækninum, Michel
Maure, er gefið að sök að hafa með
aðgerðum sínum valdið níutíu
sjúklingum líkamlegu og andlegu
tjóni, auk þess sem hann stofnaði
lífi þeirra í hættu.
Michel Maure, sem rak óleyfi-
lega læknastofu í Marseilles á
árunum 2000 til 2004, stendur
frammi fyrir níutíu og sex ákæru-
atriðum, en fórnarlömb hans voru
að stærstum hluta konur. Afleið-
ingar aðgerða hans eru misheppn-
aðar brjóstaaðgerðir, fitusog, and-
litslyftingar og nefaðgerðir, sem
voru framkvæmdar í skítugri, nið-
urníddri skurðstofú. Hann er einn-
ig sakaður um að hafa verið heldur
nískur á staðdeyfingu, sem skýt-
ur skökku við í ljósi þess að hann
hlaut þjálfun sem svæflngalæknir.
Óþarfi er að taka fram að sjúklingar
hans upplifðu óbærilegan sársauka
vegna lélegrar staðdeyfingar.
Þrjú hundruð aðgerðir á ári
Þegar Maure var handtekinn
2004 hreykti hann sér af því við
lögreglu að hann framkvæmdi
þrjú hundruð aðgerðir á ári og
„hann væri einn færasti lýtalækn-
ir í heiminum". Frá árinu 2000 gat
hann framkvæmt aðgerðir sínar
vegna gloppu í frönskum lögum,
gloppu sem var bætt úr árið 2002
en Maure lét sig lagabreytingarnar
litlu varða og hélt ótrauður áfram.
Michel Maure hefur neitað sök
og segist vera fórnarlamb keppi-
nauta sem vilji bola honum úr
bransanum. „Sóknaraðilar eru
konur sem neituðu að greiða fyr-
ir aðgerðirnar, hreinir og beinir
þjófar," fullyrti Maure kokhraust-
ur.
Ein kona sem sem situr uppi
með misheppnaða andlitslyftingu
af hans völdum sagði að það yrði
að refsa honum. „Ég hef enga til-
fmningu í eyrunum. Ég þjáðist af
hans völdum," sagði konan.
Með tilfinningu á meðan
aðgerð stóð
Eitt fórnarlamba Michel Maure,
Catherine Dubrulle, lýsti sársauk-
Vaxmyndasafn MadameTussauds hyggst hafa Hitler til sýnis:
ADOLF HITLER ÚRVAXI
Áform hins þekka vaxmyndasafns Madame
Tussauds um að koma vaxmynd af Adolf Hitl-
er fyrir á Tussauds-safninu, sem opnað verður
í næsta mánuði í Berlín í Þýskalandi, hafa vakið
hörð viðbrögð. Þeir sem gagnrýna áform safns-
ins hafa af því áhyggjur að vaxmyndin muni
draga að sér nýnasista og telja einnig fyrirætl-
anir safnsins bera vott um smekkleysi.
Forráðamenn Madame Tussauds-safnsins
segja hins vegar að Adolf Hitler sé hluti þýskr-
ar sögu og eigi sem slíkur rétt á sessi á sýn-
ingunni. „Kannanir okkar sýna að fólk hefur
áhuga á að sjá hann því hann er hluti þýskr-
ar fortíðar," sagði talsmaður safnsins, Natalie
Ruoss. Að sögn hennar yrði Hitler sýndur sem
brotinn maður í dimmu grafhýsi og Winston
Churchill, forsætisráðherra Bretlands á tím-
um síðari heimsstyrjaldarinnar, yrði sýndur
í sama sýningarherbergi og einræðisherrann
þýski.
Andstæðingar þess að Hitler verði steypt-
ur í vax segja að maðurinn sem steypti Þýska-
landi út í síðari heimsstyrjöldina og fyrirskip-
aði útrýmingu gyðinga Évrópu verðskuldi ekki
að vera sýndur á sama hátt og poppstjörnur,
stjórnmálaskörungar og knattspyrnumenn.
„Þetta er smekklaust," sagði Johannes Tuchel
hjá samtökum andstæðinga harðstjórnar nas-
ista fyrr á árum. „Hlutverk vaxmyndasafns er
að veita skemmtun. Það er ekki viðeigandi að
hafa styttu af Hitler þar," sagði Tuchel.
Á sýningunni verður einnig stytta af Klaus
Wowereit, borgarstjóra Be.rlínar. Hann hef-
ur óskað frekari upplýsinga frá safninu um í
hvaða ljósi Hitler verði sýndur oghvatti skipu-
leggjendur sýningarinnar til að sýna nærgætni
anum sem hún upplifði þegar hann
framkvæmdi aðgerð á brjóstum
hennar: „Á meðan á aðgerð stóð
sagði ég honum frá sársaukanum
og að ég gæti fundið fyrir og heyrt
þegar hann beitti verkfærum sín-
um... að lokum sagði hann að hann
gæti ekki gefið mér fleiri spraut-
ur. Hann saumaði mig ódeyfða."
Maure sagði Dubrulle ljúga. „Þú ert
frábær leikkona," sagði hann.
Josiane, fimmtíu og átta ára
sjúklingur Maures, lýsti undirbún-
ingnum fyrir fimsog sem hann
framkvæmdi. Hún „heyrði og fann
allt á meðan aðgerð stóð" ogyfirgaf
læknastofuna í áfalli og þurfti síðar
að leggjast inn á sjúkrahús.
Enn ein konan sagðist hafa
heyrt öskur sjúklings í aðliggjandi
herbergi þegar Michel Maure fram-
kvæmdi tvær aðgerðir samtímis.
Fjögurra ára dómur
Michel Maure sýndi enga iðrun
eða eftirsjá á fyrsta degi réttarhald-
anna og svaraði ákærendum sínum
fullum hálsi. „Allt sem hún segir er
rangt; aðgerðin heppnaðist mjög
vel. Þetta er ígræðsla. Þú verður að
gera ráð fyrir minniháttar óþæg-
indum," sagði hann við einn fyrr-
verandi sjúkling sinn.
Kona ein sem fór í brjóstaað-
gerð hjá Maure lenti í því að annað
brjóst hennar endaði í handarkrik-
anum og skór annarrar konu fyllt-
ust af blóði eftir að hafa farið í fitu-
sog á kviði.
Reiknað er með að réttarhöldin
taki tvær vikur og ef Michel Maure
verður fundinn sekur á hann yfir
höfði sér fjögurra ára fangelsisvist.
í hvívetna. Það er ólöglegt í Berlín að sýna
listaverk sem hefja Hitler upp til skýjanna.