Peningamál - 01.05.2009, Blaðsíða 67
Nóvember 2008
Hinn 5. nóvember tilkynnti alþjóðlega lánshæfi smatsfyrirtækið Fitch
Ratings að það hefði lækkað einkunn Straums fyrir langtímaskuldbind-
ingar í B úr BB-. Óháð einkunn Straums var lækkuð í D/E úr D. Einkunn-
ir fyrir skammtímaskuldbindingar voru staðfestar sem B og stuðnings-
einkunn 5. Horfur fyrir lánshæfi seinkunnir Straums voru neikvæðar.
Hinn 6. nóvember ákvað bankastjórn Seðlabanka Íslands að halda
stýrivöxtum óbreyttum í 18%.
Hinn 13. nóvember samþykkti Alþingi breytingu á lögum um fjármála-
fyrirtæki þess efnis að skiptastjóra sé heimilt að reka áfram tiltekna
leyfi sbundna þætti fjármálafyrirtækis sem er í gjaldþroti eða greiðslu-
stöðvun, ef þessir þættir eru nauðsynlegir fyrir bústjórn eða hagsmuni
kröfuhafa. Bústjóri í slíkum rekstri skal undanþeginn almennri skaða-
bótaskyldu. Óheimilt skal að höfða eða halda áfram máli á hendur
fjármálafyrirtæki við slíkar aðstæður. Ákvæði um lengd og veitingu
greiðslustöðvunar voru rýmkuð um þessi fjármálafyrirtæki.
Hinn 13. nóvember var samþykkt tímabundin breyting á lögum um
atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóð launa sem ætlað er að koma
til móts við aðstæður launafólks sem þarf að taka á sig kjaraskerðingu
í formi minnkaðs starfshlutfalls að frumkvæði atvinnurekanda vegna
samdráttar. Jafnframt var sjálfstætt starfandi einstaklingum heim-
ilað tímabundið að taka að sér tilfallandi verkefni samhliða greiðslu
atvinnuleysisbóta.
Hinn 13. nóvember óskaði skilanefnd Kaupþings banka hf. eftir því við
OMX Nordic Exchange á Íslandi að viðskiptum með hlutabréf félagsins
á Nordic Market yrði hætt.
Hinn 17. nóvember samþykkti Alþingi breytingu á lögum um greiðslu-
jöfnun verðtryggðra fasteignaveðlána til einstaklinga. Greiðslujöfnun
felur í sér frestun á hluta afborgana en til lengri tíma litið leiðir hún til
aukins kostnaðar í formi vaxta og verðbóta á upphæðina sem frest-
ast.
Hinn 19. nóvember samþykkti framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda um að koma á efna-
hagsstöðugleika á Íslandi. Samkvæmt áætluninni fær Ísland 2,1 ma.
Bandaríkjadala frá sjóðnum og viðbótarlán, allt að þremur milljörðum
Bandaríkjadala, frá Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð, Rússlandi
og Póllandi. Að auki hafa Færeyingar boðið Íslendingum lán sem nem-
ur um 50 milljónum Bandaríkjadala. Áætlunin er til tveggja ára.
Hinn 24. nóvember veitti Héraðsdómur Reykjavíkur Kaupþingi banka
hf. heimild til greiðslustöðvunar.
Hinn 24. nóvember veitti Héraðsdómur Reykjavíkur Glitni banka hf.
heimild til greiðslustöðvunar.
Hinn 24. nóvember lækkaði alþjóðlega matsfyrirtækið Standard &
Poor’s lánshæfi seinkunn Ríkissjóðs Íslands um eitt þrep í BBB- úr BBB
Annáll efnahags- og peningamála