Peningamál - 01.11.2009, Page 23
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
9
•
4
23
kosta með ríkisábyrgð og hærri millibankavaxta og innlánsvaxta bank-
anna. Ekki er þó víst að fjárfestar meti innlán í bönkum og fjárfestingu
í ríkisbréfum jafngilda, þrátt fyrir að ríkisábyrgð sé á innstæðunum,
eins og lesa má út úr mismun millibankavaxta og ríkisvíxlavaxta. Þessi
vaxtamunur jókst víða um heim í kjölfar efnahagskreppunnar, eins og
greint er frá í kafla II. Þar sem eftirmarkaður með ríkisvíxla er ekki til
staðar er erfiðara að meta hvort þessi áhættuþóknun hafi þróast með
svipuðum hætti hér á landi. Líklegt er hins vegar að fjárfestar meti
þessa áhættu meiri en fyrir hrun. Hér á landi þarf einnig að taka mið
af því að stór hluti eigenda ríkisbréfa eru erlendir aðilar sem ekki er
heimilt að taka fé sitt úr landi sökum gjaldeyrishafta. Þessum aðilum er
í mörgum tilvikum ekki heimilt að fjárfesta í innlánum bankanna.
Raunvextir Seðlabankans hafa lækkað …
Segja má að virkir stýrivextir Seðlabankans, sem fram á vormánuði
voru vextir bankans á lánum gegn veði, en eru um þessar mund-
ir vextir á viðskiptareikningum Seðlabankans, hafi frá því tímabil
vaxtalækkunar hófst lækkað úr 18% í 9,5%. Því hefur dregið verulega
úr aðhaldi peningastefnunnar á árinu. Þótt verðbólga hafi minnkað
á sama tíma, hafa raunvextir bankans lækkað, hvort sem litið er til
mældrar verðbólgu eða mismunandi vísbendinga um verðbólguvænt-
ingar.
… og einnig verðtryggðir langtímavextir
Ávöxtunarkrafa verðtryggðra bréfa hefur einnig lækkað nokkuð að
undanförnu. Líklega má rekja það til takmarkaðs framboðs íbúða-
bréfa, en svo virðist sem útgáfa þeirra verði minni en upphafleg
útgáfuáætlun Íbúðalánasjóðs gaf til kynna og væntingar stóðu til um,
enda útlán sjóðsins lítil. Einnig er óvissa um hvaða áhrif nýsamþykkt
lög um aðgerðir fyrir einstaklinga og heimili, sem fela í sér víðtæka
greiðslujöfnun á verðtryggðum fasteignaveðlánum heimila, munu
hafa á útgáfur sjóðsins. Líklega mun meðallíftími útlánasafnsins lengj-
ast og þörf á frekari útgáfum aukast. Til viðbótar má ætla að þær
líkur sem fjárfestar telja vera á hugsanlegu greiðsluþroti ríkissjóðs hafi
minnkað, m.a. með lyktum Icesave-deilunnar og minni líkum á lækk-
un lánshæfismats ríkissjóðs. Áhættuálag á skuldbindingar ríkissjóðs
hefur því lækkað, eins og fjallað er um hér að neðan.8 Ekki er heldur
útilokað að slæm tryggingarfræðileg staða margra lífeyrissjóða eftir
fjármálahrunið hafi beint þeim í auknum mæli að íbúðabréfum til að
leitast við að laga stöðu sína fyrir árslokauppgjör og draga þannig að
einhverju leyti úr mögulegri skerðingu lífeyrisréttinda.
Óverðtryggðir skammtímavextir hækka en langtímavextir lækka
Ávöxtunarkrafa ríkisbréfa hefur einnig lækkað í takti við lækkun
vaxta Seðlabankans og lækkun verðtryggðu kröfunnar. Eins og á
verðtryggða markaðnum, hefur mikil eftirspurn fjárfesta samhliða
takmörkuðu framboði fjárfestingakosta orðið til þess að þrýsta niður
ávöxtunarkröfunni.
8. Rétt er í þessu sambandi að undirstrika að íslensk stjórnvöld telja hættuna á greiðsluþroti
algjörlega hverfandi miðað við núverandi aðstæður.
Mynd III-6
Raunvextir Seðlabanka Íslands1
Maí 2002 - október 2009 ( í lok mánaðar)
Raunstýrivextir m.v.:
M.v. verðbólgu2
M.v. verðbólguálag ríkisbréfa3
M.v. verðbólguvæntingar almennings
M.v. verðbólguvæntingar fyrirtækja
1. Frá og með apríl 2009 er miðað við innlánsvexti Seðlabankans sem
virka stýrivexti. 2. Miðað við 12 mánaða verðbólgu. 3. Miðað við
mismun á ávöxtunarkröfu RIKB 13 0517 og RIKS 15 1001 fram til júní
2004 og mismun á ávöxtunarkröfu RIKB 13 0517 og HFF 15 0914 frá
júlí 2004.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
%
-5
0
5
10
15
2009200820072006200520042003‘02
%
Mynd III-7
Ávöxtun verðtryggðra íbúðabréfa
Daglegar tölur 3. janúar 2007 - 30. október 2009
Heimild: Seðlabanki Íslands.
HFF 150914
HFF 150224
HFF 150434
HFF 150644
1
2
3
4
5
6
7
8
9
20082007 2009
%
Mynd III-8
Ávöxtunarkrafa óverðtryggðra skuldabréfa
Daglegar tölur 3. janúar 2007 - 30. október 2009
Heimild: Seðlabanki Íslands.
RIKB 08 0613
RIKB 08 1212
RIKB 09 0612
RIKB 10 0317
2
4
6
8
10
12
14
16
18
20
200920082007
RIKB 13 0517
RIKB 10 1210
RIKB 19 0226