Peningamál - 01.11.2009, Blaðsíða 33
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
9
•
4
33
Efnahagsbatinn hefst fyrr og verður sterkari ...
Samkvæmt grunnspá Seðlabankans verður samdráttur innlendrar
eftirspurnar tæplega 20% í ár en vegna jákvæðs framlags utanríkis-
viðskipta verður samdráttur landsframleiðslu mun minni eða um
8½%. Þetta er minni samdráttur en í spám sem bankinn hefur birt
á þessu ári, en í samræmi við fyrstu spá bankans eftir bankahrunið í
Peningamálum í nóvember í fyrra. Efnahagsbatinn er talinn hefjast fyrr
en áður var ráðgert, í takt við bjartari horfur um alþjóðleg efnahags-
mál. Spáð er að ársfjórðungslegur árstíðarleiðréttur hagvöxtur verði
jákvæður þegar á fyrsta fjórðungi næsta árs þótt landsframleiðsla haldi
áfram að dragast saman á milli þessa og næsta árs. Nokkrum hag-
vexti er spáð á árunum 2011 og 2012. Ýmsar vísbendingar eru um að
alþjóðlegi efnahagsbatinn gæti orðið hraðari en grunnspáin gerir ráð
fyrir eins og fráviksdæmi 2 í kafla I lýsir.
... og framleiðsluslakinn hverfur fyrr en áætlað var
Eins og áður segir er innlend framleiðsla að aðlagast breyttum
aðstæðum. Hluti fjármagnsstofnsins hefur tapast og aðrir framleiðslu-
fjármunir farið forgörðum, gjaldþrotum fjölgað, störf tapast, þróttur
nýrrar fjárfestingar er af skornum skammti, framboð lánsfjár takmark-
að og færa þarf vinnuafl yfir til útflutnings- og samkeppnisgreina.
Framleiðslugeta hagkerfisins hefur því minnkað um leið og eftirspurn
hefur dregist verulega saman. Mat á framleiðsluspennu er því háð
verulegri óvissu við aðstæður sem þessar. Einsýnt virðist þó að umtals-
verður framleiðsluslaki sé fyrir hendi í þjóðarbúskapnum. Mat á stöðu
á vinnumarkaði er einnig háð óvissu um jafnvægisatvinnuleysi, sem
hefur líklega aukist. Niðurstöður viðhorfskannana gefa til kynna að
verulegur framleiðsluslaki sé fyrir hendi. Fá fyrirtæki finna fyrir skorti
á starfsfólki eða eiga í erfiðleikum með að bregðast við óvæntri aukn-
ingu eftirspurnar. Athygli vekur hins vegar að svör fyrirtækja benda til
þess að töluverð umskipti hafi orðið að undanförnu og aukning fram-
leiðsluslaka hafi stöðvast (sjá mynd IV-18). Í spá Seðlabankans er gert
ráð fyrir að framleiðsluslakinn nái hámarki á öðrum fjórðungi næsta
árs og minnki síðan smám saman. Áætlað er að slakinn hverfi nokkru
fyrr en áætlað var í ágúst og að framleiðsluspennu gæti á ný á árinu
2012 (sjá mynd IV-19).
Rammagrein IV-1
Þróun húsnæðisverðs:
Ólíkir mælikvarðar sýna
sömu þróun
Á undanförnum mánuðum hefur nokkrum sinnum mælst hækkun
íbúðaverðs milli mánaða og eru skiptar skoðanir á því hvort lækk-
un mánuðina á undan hafi stöðvast. Bæði Fasteignaskrá Íslands og
Hagstofa Íslands reikna vísitölu sem sýnir þróun íbúðaverðs hér á
landi. Útreikn ingur beggja vísitalnanna byggist á sömu upplýsing-
unum, þ.e. upplýsingum um þinglýsta kaupsamninga, en aðferða-
fræðin er hins vegar ekki nákvæmlega sú sama. Á tímum sem nú,
þegar velta á húsnæðismarkaði er í sögulegu lágmarki, getur að-
ferðafræði sem notuð er við útreikning þessara tveggja vísitalna skipt
máli fyrir niðurstöðuna, a.m.k. þegar horft er á skammtímasveifl ur í
húsnæðisverði.
Mynd IV-18
Vísbendingar um notkun framleiðsluþátta
og þróun framleiðsluspennu1
1. ársfj. 2006 - 3. ársfj. 2009
1. Samkvæmt viðhorfskönnun Capacent Gallup meðal 400 stærstu
fyrirtækja landsins. Framleiðsluspenna er mat Seðlabankans.
Heimildir: Capacent Gallup, Seðlabanki Íslands.
Hlutfall fyrirtækja
Ætti erfitt með að mæta óvæntri eftirspurn (v. ás)
Framleiðsluspenna (h. ás)
Búa við skort á starfsfólki (v. ás)
% af framleiðslugetu
0
10
20
30
40
50
60
-1
0
1
2
3
4
5
2009200820072006
1. Grunnspá Seðlabankans 2009-2012.
Heimild: Seðlabanki Íslands.
% af framleiðslugetu
Mynd IV-19
Framleiðsluspenna 1991-20121
-6
-4
-2
0
2
4
‘11‘09‘07‘05‘03‘01‘99‘97‘95‘93‘91