Peningamál - 01.11.2009, Blaðsíða 40
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
9
•
4
40
Viðbrögðin við minnkandi eftirspurn hafa verið nokkuð mismun-
andi eftir hópum. Körlum á höfuðborgarsvæðinu sem eru um þriðj-
ungur af vinnuaflinu, fækkaði milli ára um jafn mikið og vinnuaflinu
í heild. Körlum á landsbyggðinni og konum á höfuðborgarsvæðinu
fjölgar hins vegar. Yngsta launafólkið hverfur af vinnumarkaði, eins
og venja er þegar eftirspurn eftir vinnuafli minnkar, og námsmönn-
um sem eru utan vinnuaflsins fjölgar jafn mikið og fækkar í yngsta
aldurshópnum (16-24 ára). Sömu sögu er að segja hvort heldur er
skoðað, fækkun starfandi fólks eða heildarvinnutími: Hlutur karla á
höfuðborgarsvæðinu og yngsta launafólksins í fækkuninni er mun
meiri en sem hlutfalli þeirra meðal starfandi eða framlagi þeirra til
heildarvinnutíma.
Fyrirtæki lækka starfshlutfall til að draga úr launakostnaði
Atvinnurekendur sem vilja draga úr kostnaði geta gert það á annan
hátt en með lækkun nafnlauna. Töluvert hefur verið um að fyrir-
tæki breyti fullum störfum í hlutastörf í þessari niðursveiflu og eru
vísbendingar um að notkun þessa úrræðis fari vaxandi.2 Tölur úr
Vinnumarkaðskönnuninni sýna að fólki í hlutastörfum fjölgaði um
nær fimmtung eða 5 þúsund milli ára á þriðja fjórðungi ársins og fólki
í fullu starfi fækkaði um 11% eða 17 þúsund. Samkvæmt könnun
SA hefur rúmlega fjórðungur fyrirtækja brugðið á það ráð að minnka
starfshlutfall það sem af er ári til þess að forðast uppsagnir, sem er
aukning frá sambærilegri könnun í febrúar, en þá sögðust 18% fyrir-
tækjanna hafa gripið til þessa ráðs.
Samdráttur heildarvinnumagns milli ára undangengið ár sam-
svarar því að fækkað hafi á vinnumarkaði um u.þ.b. 2 þúsund ársverk
eða sem nemur rúmlega einni prósentu í atvinnuleysi.
Fáir útlendingar flytja af landi brott …
Mikið innstreymi erlends starfsfólks til Íslands á undanförnum árum
hefur aukið sveigjanleika íslensks vinnumarkaðar. Nokkur óvissa hefur
verið um viðbrögð erlendra starfsmanna í kjölfar efnahagserfiðleik-
anna. Á árunum 2005-2008 fluttust um 28 þúsund erlendir ríkisborg-
arar til landsins en um 12 þúsund frá landinu. Þrátt fyrir að erlendir
ríkisborgarar hafi verið hlutfallslega fleiri í þeim atvinnugreinum sem
hafa orðið verst úti af völdum kreppunnar, þ.e. byggingariðnaði og
þjónustugreinum, og hlutfall þeirra því hærra meðal atvinnulausra,
benda tölur um brottflutning erlendra ríkisborgara það sem af er ári til
þess að aðeins lítill hluti þeirra starfsmanna sem hingað hafa komið að
undanförnu snúi heim eftir atvinnumissi, enda hafa heimalönd þeirra
einnig orðið fyrir barðinu á alþjóðlegu efnahagskreppunni. Þetta er í
samræmi við reynslu frá löndum þar sem erlendum ríkisborgurum frá
ESB-8-löndunum fjölgaði mikið í uppsveiflunni.
… en fleiri Íslendingar en ætla mætti
Fyrstu níu mánuði ársins fluttust 2.700 fleiri frá landinu en til þess.
Þar af voru tæplega 1.950 íslenskir ríkisborgarar en um 750 erlendir
2. Þessi lausn var auðvelduð með breytingum á lögum um atvinnuleysisbætur sem áður er
getið þar sem fólki í hlutastarfi er gert kleift að sækja um atvinnuleysisbætur.
Heimild: Hagstofa Íslands.
Mynd VI-6
Framlag til breytinga á heildarvinnustundafjölda
16-24 ára
25-54 ára
54-74 ára
Heildarvinnustundir
Breyting frá fyrra ári (%)
200920082007200620052004‘02‘00‘98‘96‘94‘92
-16
-14
-12
-10
-8
-6
-4
-2
0
2
4
6
8
Heimild: Hagstofa Íslands.
Mynd VI-7
Aðfluttir umfram brottflutta, atvinnuleysi
og hagvöxtur 1986-2009
Fjöldi í þúsundum %
Erlendir ríkisborgarar (v. ás)
Íslenskir ríkisborgarar (v. ás)
VLF (h. ás)
Atvinnuleysi (h. ás)
-3
-2
-1
0
1
2
3
4
5
6
-6
-4
-2
0
2
4
6
8
10
12
ja
n.
-s
ep
. ‘
09‘08‘06‘04‘02‘00‘98‘96‘94‘92‘90‘88‘86