Peningamál - 01.11.2009, Page 43
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
9
•
4
43
stofnana. Spáð er að atvinnuleysi nái hámarki í rúmlega 10% á fyrsta
ársfjórðungi 2010, en það er tæplega prósentu minna atvinnuleysi en
í síðustu spá. Gert er ráð fyrir að atvinnuleysi haldist mikið, milli 9%
og 10% alveg fram á annan ársfjórðung árið 2011, en minnki síðan
smám saman eftir því sem efnahagsumsvif aukast, en verði yfir jafn-
vægisstigi allt spátímabilið.
Hin hraða aukning atvinnuleysis í kjölfar fjármálakreppunnar á
sér hvorki fordæmi á fyrri samdráttarskeiðum á Íslandi né í öðrum
löndum sem hafa glímt við alvarlega fjármálakreppu.4 Þær atvinnu-
greinar sem nátengdastar voru eignaverðsbólunni, byggingariðnaður,
fjármálastarfsemi og ýmsar þjónustugreinar, brugðust hratt við með
verulegum uppsögnum. Flutningur vinnuafls milli atvinnugreina og
hæg viðbrögð eftirspurnar eftir vinnuafli valda því hins vegar að jafn-
vægisatvinnuleysi er talið aukast tímabundið.
4. Sjá Peningamál 2009/2, bls. 40-41.