Peningamál - 01.11.2009, Page 57
Apríl
Hinn 3. apríl tilkynnti Fjármálaeftirlitið að það hefði gripið inn í rekst-
ur Sparisjóðs Mýrasýslu á grundvelli heimildar 100. gr. a í lögum nr.
161/2002 um fjármálafyrirtæki, að beiðni sparisjóðsins. Ráðstöfun
eigna og skulda sparisjóðsins var í samræmi við kaupsamning við Nýja
Kaupþing hf. og samkomulag stærstu kröfuhafa sparisjóðsins.
Hinn 8. apríl ákvað peningastefnunefnd Seðlabankans að lækka veð-
lánavexti um 1,5 prósentur í 15,5%. Aðrir vextir bankans voru einnig
lækkaðir í sama mæli.
Hinn 8. apríl var kynnt samkomulag milli viðskiptaráðuneytisins og
lánafyrirtækja sem lána í erlendum gjaldmiðlum, um að einstakling-
um yrði boðið upp á sams konar greiðslujöfnun vegna gengistryggðra
fasteignaveðlána og veitt er vegna verðtryggðra lána.
Hinn 15. apríl samþykkti Alþingi lög nr. 46/2009 um breytingar á lög-
um um tekjuskatt í því skyni að i) aðilar sem hafa vaxtatekjur hér á
landi beri af þeim skattskyldu, ii) eftirgjöf skulda samkvæmt nauða-
samningum um greiðsluaðlögun teljist ekki til tekna, iii) tekið verði upp
ákvæði um skattlagningu innlendra aðila sem eiga félög sem eru heim-
ilisföst í lágskattaríkjum.
Hinn 15. apríl samþykkti Alþingi lög nr. 44/2009 um breytingar á lög-
um um fjármálastofnanir að því er varðar, afhendingu fjármálafyrir-
tækis til bráðabirgðastjórnar, skilyrði og upphaf slitameðferðar,
Hinn 15. apríl samþykkti Alþingi lög nr. 45/2009 um hækkun vaxta-
bóta. Hækkun á árinu 2009 var talin nema um 2 ma.kr.
Hinn 15. apríl samþykkti Alþingi lög nr. 50/2009 um tímabundna
greiðslu aðlögun fasteignaveðlána á íbúðarhúsnæði, sem veita má
skuldara í allt að fi mm ár.
Hinn 17. apríl samþykkti Alþingi lög nr. 51/2009 sem heimila iðnaðar-
ráðherra að semja við væntanlega eigendur um byggingu álvers í
Helguvík. M.a. kveða lögin svo á að rekstur versins verði undanþeginn
hugsanlegum íþyngjandi breytingum á meginþáttum laga um tekju-
skatt.
Hinn 18. apríl voru kynntir samningar milli landbúnaðarráðherra og
Bændasamtakanna um framkvæmd búvörusamninga næstu misserin.
Samkvæmt samningunum munu greiðslur hækka um 2% árið 2010
eins og árið 2011 en þá munu greiðslur jafnframt hækka um helming
uppsafnaðra vanefnda á upphafl egum samningum, þó ekki meira en
5% alls. Árið 2012 hækka greiðslur upp í það sem tilskilið er í gildandi
búvörusamningum, þó ekki meira en 5%.
Annáll efnahags- og peningamála