Peningamál - 01.11.2009, Síða 58

Peningamál - 01.11.2009, Síða 58
P E N I N G A M Á L 2 0 0 9 • 4 58 ANNÁLL Hinn 22. apríl tilkynnti Fjármálaeftirlitið að Deloitte LLP hefði lokið verðmati eigna sem fl uttar voru út úr gömlu bönkunum til að mynda efnahag Nýja Kaupþings banka, NBI og Íslandsbanka. Samhliða því hefði ráðgjafafyrirtækið Oliver Wyman lokið úttekt á verðmatinu. Hinn 24. apríl tilkynnti Samkeppniseftirlitið að viðskiptabönkum, spari sjóðum, lífeyrissjóðum og Íbúðalánasjóði væri heimilt að beita samræmdum úrræðum til að aðstoða einstaklinga sem skulda fast- eignaveðlán og eiga í greiðsluerfi ðleikum. Slíkt samráð hefði ella getað brotið gegn samkeppnislögum. Hinn 27. apríl veitti Héraðsdómur Vesturlands Sparisjóði Mýrasýslu heimild til greiðslustöðvunar. Maí Hinn 7. maí ákvað peningastefnunefnd Seðlabankans að lækka veðl- ánavexti um 2,5 prósentur í 13,0%. Vextir daglána lækkuðu einnig um 2,5 prósentur en aðrir vextir bankans um 3 prósentur. Hinn 10. maí tók ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfi ngarinnar – græns framboðs til starfa. Hinn 12. maí skipaði Héraðsdómur Reykjavíkur slitastjórn fyrir Straum- Burðarás fjárfestingabanka hf. Hinn 22. maí skipaði Héraðsdómur Reykjavíkur slitastjórn fyrir Spari- sjóðabanka Íslands hf. Hinn 28. maí samþykkti Alþingi lög nr. 60/2009 um hækkun áfeng- is- og tóbaksgjalda, eldsneytisgjalda og bifreiðagjalda en lækkun kíló- metragjalds nokkuð á móti. Breytingunni var ætlað að skila ríkissjóði 4,4 ma.kr. á ársgrundvelli. Júní Hinn 4. júní ákvað peningastefnunefnd að lækka veðlánavexti um 1 prósentu í 12,0%. Vextir daglána lækkuðu einnig um 1 prósentu. Hinn 5. júní var skrifað undir samninga milli Íslands og Hollands annars vegar og Íslands og Bretlands hins vegar um ábyrgð Tryggingasjóðs innstæðueigenda og fjárfesta á Íslandi á innlánum í útibúum Lands- bankans í þessum löndum og ábyrgð íslenska ríkisins á fjármögnun Tryggingasjóðsins. Undirskrift af hálfu Íslands var með fyrirvara um staðfestingu Alþingis á ábyrgðinni. Hinn 24. júní samþykkti Héraðsdómur Reykjavíkur beiðni um skipun slitastjórnar hjá SPRON hf. og Frjálsa fjárfestingarbankanum hf. Hinn 26. júní skipaði forsætisráðherra Má Guðmundsson seðlabanka- stjóra frá 20. ágúst og Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóra frá 1. júlí.

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.