Peningamál - 13.05.2015, Page 35

Peningamál - 13.05.2015, Page 35
P E N I N G A M Á L 2 0 1 5 • 2 35 INNLENT RAUNHAGKERFI því að atvinnuleysi þeirra sem hafa verið án atvinnu í sex mánuði og upp í ár hefur verið nokkuð stöðugt. Meiri vilji til að fjölga starfsfólki en fækka í öllum atvinnu- greinum Líklegt er að vinnuaflseftirspurn aukist áfram á næstu misserum því að samkvæmt niðurstöðum könnunar Gallup, sem var framkvæmd í febrúar og mars meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins, vildi fjórðungur fyrirtækja fjölga starfsfólki á næstu sex mánuðum en tæplega 10% frekar fækka því. Þetta er svipuð niðurstaða og fékkst í síðustu könnun sem gerð var í nóvember sl. Í öllum atvinnugreinum er meiri vilji til að fjölga starfsfólki en fækka og var mestur vilji meðal fyrirtækja í sam- göngum, flutningum og ferðaþjónustu, en þar vill tæplega helmingur fyrirtækja fjölga starfsfólki en aðeins 4% fækka því. Hæg fjölgun meðalvinnustunda Meðalvinnustundum hefur fjölgað hægt undanfarin ár og enn er nokkuð í land að þær nái, hvort heldur er, meðaltali tímabilsins 2003- 2014 eða meðaltali tímabilsins fyrir fjármálakreppuna (mynd IV-20). Á tímabilinu fyrir árið 2008 var umframeftirspurn eftir vinnuafli ekki mætt með lengingu vinnuvikunnar heldur fyrst og fremst með fjölgun starfandi fólks, að miklu leyti með innfluttu vinnuafli. Milli áranna 2007 og 2009 styttist meðalvinnuvikan um rúmar tvær klukkustundir. Meðalvinnutíminn fer hins vegar að lengjast á árinu 2010 og hefur vaxið nokkuð samfellt síðan ef litið er fram hjá styttingu á árinu 2012 sem rakin hefur verið til áhrifa kostnaðarhækkana vegna kjara- samninganna sem gerðir voru á árinu 2011. Meðalvinnutíminn var þó enn tæpri klukkustund styttri í fyrra en að meðaltali á tímabilinu 2003-2014 og tæplega tveimur stundum styttri en að meðaltali fyrir fjármálakreppuna. Mismunandi eftir atvinnugreinum hvernig aukinni vinnuaflseftirspurn hefur verið mætt Heildarvinnustundum hefur fjölgað í flestum atvinnugreinum frá því að meðalvinnutími tók að lengjast. Mismunandi er þó í hve miklum mæli aukningin hefur átt sér stað með fjölgun fólks eða lengingu meðalvinnutíma og ekki virðast vera tengsl milli þess og hvort sam- dráttur heildarvinnustunda á tímabilinu 2008-2010 var vegna fækk- unar starfsfólks eða styttingar meðalvinnutíma (mynd IV-21).4 Á samdráttarskeiðinu fjölgaði heildarvinnustundum bæði í fiskveiðum og ferðaþjónustu og hélt sú þróun áfram í ferðaþjónustu og bætti tölu- vert í vöxtinn enda jókst hlutur greinarinnar í heildarvinnustundum úr tæplega 4% árið 2008 í tæplega 7% í fyrra.5 Í fiskveiðum verður hins vegar viðsnúningur á seinna tímabilinu með töluverðri fækkun, bæði á fólki og meðalvinnustundum. Þróunin á bataskeiðinu í þeim geirum 4. Hér er skoðaður samanlagður fjöldi fólks við vinnu í viðmiðunarvikunni í aðal- og aukastarfi og meðalvinnutími þeirra þar sem ekki hafa enn verið birtar sambærilegar upplýsingar um meðalvinnutíma starfandi sem annars er almennt það sem fjallað er um í Peningamálum. 5. Ekki er hægt að sjá ferðaþjónustuna beint úr atvinnugreinaskiptingunni, en hér er talið til ferðaþjónustu flutningar með flugi (H:51), rekstur gististaða og veitingarekstur (I) og ferða- skrifstofur, ferðaskipuleggjendur og önnur bókunarþjónusta (N:79). 1. Opinber starfsemi o.fl. er opinber stjórnsýsla og varnarmál, fræðslustarf- semi, heilbrigðis- og félagsþjónusta, menningar-, íþrótta- og tómstundastarf- semi. 2. Ferðaþjónusta er rekstur gisti- og veitingastaða, flutningar með flugi og ferðaskrifstofur. Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. Mynd IV-21 Breytingar á fjölda við vinnu og meðalvinnu- tíma 2008-2014 eftir atvinnugrein og framlag hverrar greinar til breytinga á heildarvinnustundum Breyting (%) % Við vinnu 2008-2010 (v. ás) Meðalvinnustundir 2008-2010 (v. ás) Við vinnu 2010-2014 (v. ás) Meðalvinnustundir 2010-2014 (v. ás) Framlag til breytinga heildarvinnust. 2008-2010 (h. ás) Framlag til breytinga heildarvinnust. 2010-2014 (h. ás) -60 -40 -20 0 20 40 60 Fe rð a- þj ón us ta 2 O pi nb er st ar fs em i o fl. 1 Ý m is s ér h. þ jó nu st a Fj ár m ál a- þj ón us ta U pp l. og f ja rs ki pt i Sm á- o g h ei ld sö lu v. By gg in ga - ge iri nn Fr am - le ið sl a Fi sk - ve ið ar -6 -4 -2 0 2 4 6 Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. Mynd IV-20 Meðalvinnutími og hlutfall starfandi 2003-2014 Frávik frá meðaltali 2003-2014 Hlutfall starfandi (prósentur) Meðalvinnutími (klst.) Meðalvinnutími - frávik frá meðaltali 2003-2007 (klst.) -4 -3 -2 -1 0 1 2 3 4 ‘14‘13‘12‘11‘10‘09‘08‘07‘06‘05‘04‘03

x

Peningamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.