Skírnir - 01.01.1951, Blaðsíða 11
Skírnir
Björn Magnússon Ölsen
9
uru leyti væri viðað til hennar efni, sem fyrr var ritað,
bæði af Ara í eldri gerð fslendingabókar og af öðrum fróð-
um mönnum. Hann taldi hana yngri en margar íslendinga
sögur og skipaði henni á eftir flestum þeirra í bókmennta-
sögu sinni. Loks hélt Finnur þvi fram, að Melabók væri
skrifuð eftir Sturlubók, þótt með ýmsum breytingum væri,
—• og varð gildi Melabókar sem heimildar um eldri gerð
Landnámu þess vegna næsta lítið, bæði um efni og efnisröð.
Björn M. Ölsen skildi, að hér var við ramman reip að
draga og ekkert nema rækilegri rannsóknir, einkum á af-
stöðu Landnámu til einstakra fslendinga sagna, gæti skorið
svo úr málinu, að ekki yrði rengt. Hann samdi nú fimm rit-
gerðir, sem hann birti á árunum 1904—1910: Landnáma og
Egils saga, Landnáma og Hœnsa-Þóris saga, Landnáma og
Eyrbyggja saga, Landnáma og Laxdœla saga og Landnáma og
Gull-Þóris saga. Þótt ýmislegt annað bæri þar á góma, í
fyrstu ritgerðinni t. d., að Snorri Sturluson væri höfundur
Egils sögu, missti Björn M. Ölsen aldrei sjónar á aðalatriðinu:
að sýna fram á, að Melabók stæði elztu Landnámu nær en
hinar gerðimar. Og enn skrifaði hann tvær ritgerðir um þetta
efni, sem vom ekki prentaðar fyrr en 1920, að honum látn-
um: Landnámas oprindelige Disposition og Landnáma og
Eiríks saga rauSa. Þá voru ritgerðir hans um þetta efni, að
meðtöldum ritgerðunum um Ara, alls orðnar tíu að tölu,
birtar á 35 árum.
Hver varð nú árangurinn? Það er víst óhætt að segja, að
þótt níu af þessum ritgerðum væru birtar á erlendu máli
og í erlendu tímariti, hafi varla nokkur útlendur fræðimaður
gefið þeim svo rækilegan gaum, að hann treysti sér til þess
að kveða upp rökstuddan dóm um þetta flókna efni. En á
íslandi vom þær lítt þekktar og þeim ekki verulega sinnt, að
því er mér sé kunnugt. Björn M. Ólsen féll svo frá, að Finnur
Jónsson hafði ekki vikið um eina hársbreidd frá fyrri skoð-
unum sínum og málið virtist óútkljáð, að minnsta kosti á al-
mennum vettvangi.
En árið 1920, þegar ritgerðin um upphaflega efnisröð Land-
námu kom út, gerðust þau tíðindi, að Finnur Jónsson lét