Bændablaðið - 23.01.2014, Side 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. janúar 2014 7
Í forsíðufrétt síðasta Bændablaðs
kom fram að formaður Bænda-
samtakanna krefðist þess að þegar
í stað yrðu innleiddar reglur
um upprunamerkingar á öllum
íslenskum landbúnaðarafurðum.
Á undanförnum vikum og
mánuðum hefðu komið upp mál
þar sem íslenskir neytendur hefðu
verið blekktir með því að fyrirtæki
hefði blandað erlendu hráefni
saman við innlenda framleiðslu
án þess að þess hefði verið getið á
vöruumbúðum. Það væri ólíðandi
og við því yrði að bregðast.
Árið 2008 sóttust Bændasamtök
Íslands fyrst eftir því að við
forsætisráðuneytið að fá að nota
íslenska fánann til að auðkenna
innlendar landbúnaðarafurðir á
markaði. Þrátt fyrir að vel hafi
verið tekið í málið á sínum tíma
hefur hvorki gengið né rekið við að
afgreiða það á Alþingi. Er nú svo
komið að málið hefur verið flutt í
fjórgang án þess að hljóta afgreiðslu.
Eins og sakir standa er frumvarp um
notkun fánans sem vörumerkis til
að auðkenna uppruna íslenskra vara
til umfjöllunar í stjórnskipunar- og
eftirlitsnefnd þingsins. Ekki er vitað
hver staða málsins er að öðru leyti.
Rætt við garðyrkjubændur um
fánaröndina
Sigurður Eyþórsson, framkvæmda-
stjóri Landssamtaka sauðfjárbænda,
hefur sinnt málinu frá því það var fyrst
sett fram af hálfu Bændasamtakanna.
„Í stuttu máli má segja að menn hafi
haft áhuga á að koma upp merki sem
gæti aðgreint íslenskar búvörur frá
innfluttum. Árið 2007 var byrjað að
fara yfir það hvernig þessum málum
væri háttað í nágrannalöndunum
en einnig var horft til þess merkis
sem garðyrkjubændur höfðu
komið sér upp, það er að segja
fánarandarinnar. Ákveðið var að
leita eftir því hvort hægt væri að
útvíkka þá notkun á fleiri vörur.
Niðurstaða garðyrkjubænda var sú
að þeir vildu ekki heimila það, þeir
töldu sig hafa lagt of mikið undir í
markaðssetningu til að tefla því í
tvísýnu og auðvitað höfðu þeir fullt
vald til þess.“
Málið flutt í fjórgang
Sigurður segir að í kjölfar þess hafi
sú hugmynd fljótlega kviknað að
nota fánann sjálfan.
„Við hófum viðræður við
forsætisráðuneytið, sem fer með
málefni þjóðfánans, um málið. Því
var vel tekið þar á bæ en málið
gekk hins vegar ekki hratt. Síðan
varð hrunið 2008 og þá færðist
málið neðst í bunkann. Það má
auðvitað telja það eðlilegt miðað
við þá stöðu sem uppi var. Við hins
vegar héldum málinu vakandi og
Jóhanna Sigurðardóttir, þáverandi
forsætisráðherra, ýtti því áfram.
Hún flutti tvisvar frumvarp í sinni
ráðherratíð um málið en í hvorugt
skiptið varð það útrætt á Alþingi,
það fór bara til fyrstu umræðu en
kom aldrei úr nefnd.
Nú hefur málið í tvígang verið
flutt sem þingmannafrumvarp og
nú er það inni í stjórnskipunar- og
eftirlitsnefnd þingsins. Vonandi
tekst að klára málið svo það fái
efnislega afgreiðslu í þinginu. Eins
og frumvarpið lítur út núna þá er nú
gert ráð fyrir að hægt verði að nota
fánamerkið á fleira en bara matvörur,
en upphaflegar hugmyndir okkar
stóðu eingöngu til þess. Við því
er ekkert að segja, við höfum lagt
áherslu á að mikilvægt sé að
skilgreina vel við hvaða vörur
þetta getur átt og það liggi
skýrt fyrir hverjum sé ætlað
að fylgja þessu eftir.“
–Hugmyndin sem hefur
verið haldið á loft af hálfu
Bænda samtakanna hefur
verið sú að fánamerkið
væri notað á inn-
lendar búvörur.
Hvaða afstaða
hefur verið
tekin varðandi
vörur sem eru
að stórum hluta úr
inn lendu hráefni en
þá að einhverju leyti
blandaðar erlendum
hráefnum?
„Við höfum lagt
áherslu á merkið yrði
fyrst í stað notað á hreinar
búvörur, það er að segja kjöt,
hreinar mjólkurvörur og aðrar
vörur sem eru á markaði eins og
þær koma fyrir. Síðan stóð til að
útfæra þetta í reglugerð, hvernig
þetta ætti við um blandaðar vörur.
Það var ekki komið svo langt að farið
væri að velta upp hlutföllum. Matís
vann að þessu með okkur og þessu
var velt upp í þeirri vinnu. Það stóð
alltaf til að þetta yrði merking sem
væri valfrjáls og enginn yrði neyddur
til að taka hana upp. Það var því fyrst
horft til þess að setja þetta á þær
vörur sem ekki væru blandaðar svo
neinu næmi og þreifa sig síðan áfram
með málið hvað varðaði blandaðar
vörur.“
Framleiðendur þreyttir á biðinni
–Nú eru að verða sjö ár síðan
málinu var fyrst hreyft af alvöru.
Hvaða afstöðu tóku framleiðendur
því þegar þetta var rætt við þá og
hver er staðan í dag?
„Við ræddum við mjög marga
framleiðendur á sínum tíma, meðal
annars alla þá stærstu í kjöti- og
mjólk. Allir tóku þessu vel og tóku
undir þá hugmyndafræði sem að baki
liggur. Auðvitað hef ég heyrt það að
vegna þess hversu langur tími er
liðinn séu sumir farnir að gefa þetta
upp á bátinn og vilja ekki bíða lengur.
Framleiðendur hafa sumir tekið til
við að upprunamerkja sínar vörur
með einhverjum öðrum hætti.“
–Hvað með kostnaðinn sem af
þessu kann að hljótast? Hvernig
hafa menn séð fyrir sér að honum
yrði mætt?
„Hugmyndin sem sett var fram
í upphafi gekk út á að haldið yrði
utan um þetta miðlægt, hverjir hefðu
leyfi til að nota fánamerkið og þeir
aðilar myndu gangast undir ákveðið
eftirlit. Hugmyndin hjá okkur var
að fá Matís til þess að sinna því
eftirlitshlutverki. Auðvitað útheimtir
slíkt kostnað og það átti að innheimta
með notkunargjöldum, til að standa
undir beinhörðum rekstrarkostnaði.
Það er ekki ljóst hvernig þetta yrði
útfært í endanlegri mynd, ef málið
fær framgang. Í frumvarpinu sem
liggur fyrir í dag er gert ráð fyrir
að ráðherra útfæri þessa hlut með
reglugerð.“
Ekki til skýrari upprunamerking
–Hafa fyrirtæki haft samband til að
kanna stöðu málsins nú að undan-
förnu, í ljósi þeirra frétta sem birst
hafa um innflutning á landbúnaðar-
afurðum og kröfu um uppruna-
merkingar? Telur þú að málið sé enn
brýnna nú en verið hefur?
„Fyrirtæki hafa ekki haft samband
vegna þessa að undanförnu. Ég
held hins vegar að mörg þeirra séu
að velta fyrir sér leiðum varðandi
upprunamerkingar almennt og ég vil
því benda á að þetta væri langbesta
tækifærið til að taka upp kerfi sem
væri samræmt, gæti orðið til að skýra
uppruna vöru gagnvart neytendum
og ég hvet framleiðendur til að horfa
til þessara hugmynda. Það er ekki
til nein skýrari upprunamerking en
íslenski fáninn.“ /fr
eir sem þessar línur
lesa og þekkja eitthvað
til Magga Halldórs,
sem lagði undir sig
síðasta vísnaþátt, vita að honum
nægja ekki nokkrir dálksenti-
metrar. Magnús er kynjaður frá
Vestfjörðum og af þeim sökum
varð hann strax með nokkrum
sérkennum um Suðurland og batt
ekki bagga sína sem aðrir suður
þar. Magnús orðar sjálfur vel sitt
vestfirska upplag:
Þótt fari ég stundum vítt um völl
með vestfirskum alkunnum slætti,
þá framburður minn og fram-
ganga öll
er fráleitt með sunnlenskum hætti.
Magnús er afburða hestamaður
og hestar hans þrautræktaðir til
reiðar. Ekki hefur það þó forðað
honum frá meiðslum. Skammt
er síðan Magnús hlaut beinbrot
veruleg á báðum framhöndum.
Slysasagan barst meðal annars
Kristjáni Ragnarssyni sölumanni
hjá Vélfangi, sem er oftlega ferða-
félagi Magnúsar:
Brothættur við fáka fálm,
og fikt af þannig tagi.
Vona bara að hafir hjálm
svo hausinn tolli í lagi.
Magnús svarar:
Sjaldan ber á hausnum hjálm,
held því áfram skaki.
Ætíð mun ég iðka fálm
ef ég tolli á baki.
Ef glöggt er gáð sést að Magnús
er ekki endilega að vísa til
hestamennskunnar í svarvísu
sinni, og því ofur eðlilegt að
persónuhlífar vanti. Í annríki við
sundlaugargæslu gefast þó annað
slagið næðisstundir. Magnús tyllir
sér niður með kaffikrús í hendi og
hugurinn háttum bundinn reikar
til horfinna daga þegar hann yrkir
ljóðkorn þetta sem hann nefnir
Söknuð:
Sem vængjablik vors í þeynum
vaknar sú minning um stund,
er unnumst við mest í meinum,
en margan við áttum þó fund.
Þá flugum sem leiftur af ljósum,
ég lagði þig nett undir mel.
Við angan frá ilmandi rósum
sem eyrina prýddi svo vel.
Ó væri ég aftur svo ungur
með örlyndis nægum dug,
og sæi þær brjóstabungur
bál mér það kveikti í hug.
Við skyldum svo fljúga sem
forðum
og finna þá mýkstu grund.
Fátt gæti gengið úr skorðum;
gleðinnar notið um stund.
Og þú myndir ljúflega liggja,
láta mig dreyma um sinn.
Ef mætti ég þvílíkt þiggja,
þrautreyndi hesturinn minn.
Næstu tvær vísur Magnúsar tengjast
hvorki hrossum né almennri reið-
lægni hans. Senni lega mætti finna
í þeim örlítinn pólitískan brodd en
þær eru svo skætingsfríar að varla
verður til meins:
Öll mun senna aukast hörð
í atgangi svo vaxi gróðinn.
Rist munu sundur blómabörð,
bara í von um lokasjóðinn.
Þung skal ýmsum þeirra gjörð,
þannig kvikum jafnt sem dauðum.
Meðan að ráða ríkir jörð
reynist lífið örðugt snauðum.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
Líf og starf
MÆLT AF
MUNNI FRAM
ÞVilja íslenska fánann
sem upprunamerki
– unnið hefur verið að málinu í á sjöunda ár án þess að ná framgangi
Sigurður Eyþórsson Árið 2008 sóttust Bændasamtök Íslands fyrst eftir því við forsætisráðuneytið
að fá að nota íslenska fánann til að auðkenna innlendar landbúnaðarafurðir
á markaði.