Bændablaðið - 23.01.2014, Blaðsíða 47

Bændablaðið - 23.01.2014, Blaðsíða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 23. janúar 2014 Eftir því sem nútíma sveitabæir verða sífellt háþróaðri á fjartengd ráðgjöf sífellt meiri vinsældum að fagna, samkvæmt nýjustu upplýsingum frá DeLaval, sem er leiðandi framleiðandi á lausnum sem auka framleiðni á kúabúum. Fjartengd sveitabýli draga ekki aðeins úr þörf á beinum heimsóknum tæknimanna heldur einnig úr heimsóknum dýralækna, fóðurráðgjafa og jafnvel fjármálaráðgjafa. Nýlegar upplýsingar varðandi uppsetningar frá DeLaval, sem hefur sett upp meira en 2.000 uppsetningar á síðustu 12 mánuðum, sýna að fjartenging á kúabúum hefur sannað sig með endurteknum hætti og skilað aukningu, bæði hvað varðar stýringu og skilvirkni í stjórnun kúabúa. Útkoman er sú að æ fleiri bændur eru meðvitaðir um kosti fjartengdrar ráðgjafar frá utanaðkomandi sérfræðingum. Bændur sem þarfnast stuðnings og ráða frá sérfræðingum þurfa ekki lengur að reiða sig á staðbundið net þjónustuaðila. Þeir geta núna leitað ráða hjá dýralæknum, fóður- og fjármálaráðgjöfum lengra í burtu. Ennfremur er hægt að ná sambandi við tölvuna á kúabúinu með tryggu netsambandi þegar bóndinn er að heiman. „Fjartenging við kúabúið gerir okkur mögulegt að styðja við viðskiptavini okkar úr röðum bænda með umfangsmeiri hætti en áður. Þessi tegund fjartengingar gefur okkur möguleikann á að styðja við bóndann á fljótvirkari hátt og með meiri nákvæmni en áður, þar sem við erum ekki lengur bundnir við raunverulega heimsókn ef við þörfnumst gagna frá kúabúinu til að taka ákvörðun,“ segja ráðgjafar hjá DeLaval International. „Fjartenging við kúabúið gefur bændum möguleika á að leyfa tæknimönnum okkar og öðru fagfólki að tengjast tölvu kúabúsins til að veita aðstoð, ráð og stuðning.“ Búnaðurinn, sem er m.a. með öfluga vírusvörn, hentar öllum eigendum DeLaval- mjaltabúnaðar sem eru með PC tölvu og er þessi búnaður nú fáanlegur hjá Fóðurblöndunni og Bústólpa. Nánari upplýsingar gefa þjónustufulltrúar og söluráðgjafar DeLaval hjá áðurnefndum fyrirtækjum. Um DeLaval DeLaval er leiðandi framleiðandi á lausnum sem bæta frammistöðu á sveitabýlum sem eru í framleiðslu á matvælum í atvinnuskyni. Fyrirtækið leggur kapp á að draga úr áhrifum á umhverfið samhliða því að bæta matvælaframleiðslu, auka arðsemi og vellíðan fólks og dýra sem í hlut eiga. Einnig býður það upp á vörur, kerfi og þjónustu fyrir öll þrep mjólkurframleiðslunnar. Lausnir DeLaval eru notaðar daglega af milljónum kúabænda á hverjum degi um allan heiminn. DeLaval var stofnað fyrir meira en 130 árum í Svíþjóð þegar hugsjóna maðurinn Gustaf de Laval fékk einkaleyfi á skilvindunni. Í dag starfa 4.500 manns hjá DeLaval og fyrirtækið er með starfsemi á meira en 100 markaðssvæðum. DeLaval, ásamt Tetra Pak og Sidel, er hluti af Tetra Laval Group. Sjá nánar á heimasíðunni www.delaval.com. Eigum allar síur í New Holland og JCB á lager Skeiðarás 3 Garðabær Sími 5272600 velavit@velavit.is Varahlutir - Viðgerðir sérhæfum okkur í JCB Hydrema Iveco New Holland og Case Vélavit Oftast ódýrastir! JCB DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS · Tekur heitt vatn > sparneytin · Stórt op > auðvelt að hlaða · Þvotta og orkuklassi A · Engin kol í mótor 12 kg Þvottavél Amerísk gæðavara Dekkjainnflutningur 15% afsláttur af öllum dekkjum til 31. janúar 2014 Eigum á lager flestar stærðir traktora-, vagna-, vinnuvéla- og vörubíladekkja. Einnig mikið úrval fólksbíla- og jeppadekkja. Jason ehf. Hafnarstræti 88 Akureyri Vinsamlegast hafið samband við Ármann Sverrisson 896-8462 e-mail jasondekk@simnet.is Tryggva Aðalbjörnsson 896-4124 Fjartenging og fjartengd ráðgjöf slær í gegn hjá kúabændum

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.