Bændablaðið - 23.01.2014, Qupperneq 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. janúar 201410
Fréttir
Ný vefsjá yfir skóglendi á Íslandi
er nú aðgengileg á vef Skógræktar
ríkisins, skogur.is. Þar má sjá
útbreiðslu bæði ræktaðra skóga
og náttúru legs birkilendis. Við-
brögð hafa verið góð, en allur
al menningur getur nýtt sér nýju
vefsjána.
Björn Traustason, sérfræðingur
í landfræðilegum upplýsingum hjá
Skógrækt ríkisins, hannaði og bjó
vefsjána til og er hún nýkomin í loftið.
„Vefsjá af þessu tagi er það sem
koma skal í miðlun landupplýsinga.
Í grunninn er þetta ekki ósvipað og
til dæmis Google Maps, þ.e. land-
upplýsingar úr gagnagrunni, sem hægt
er að þysja niður og skoða í nálægð,“
segir Björn.
Ræktuðum skógum er í vefsjánni
skipt niður í tvo flokka; eldri skóga og
yngri skóga. Þeir eldri eru ávallt yfir 2
m á hæð og eldri en 15 ára gamlir, en
yngri skógar eru yfirleitt undir 2 m á
hæð og yngri en 15 ára. Náttúrulegu
birkilendi er einnig skipt niður í tvo
flokka, annars vegar birkiskóga sem
eru yfir 2 m á hæð og birkikjarr sem
er lægra en 2 metrar.
Flokkað eftir sveitarfélögum
Skóglendið er flokkað eftir sveitar-
félögum þannig að þegar til að mynda
er smellt á fláka fyrir birkikjarr innan
ákveðins sveitarfélags birtast m.a.
upplýsingar um flatarmál kjarrlendis
innan þess alls. Það sama gildir um
hina skóglendisflokkana. Björn
segir að í undirbúningi sé vefsjá þar
sem hægt sé að skoða upplýsingar
úr hverjum kortlögðum reit, bæði
fyrir ræktaða skóga og náttúrulegt
birkilendi.
„Núna getur fólk skoðað vefsjána
með þessum hætti, valið tiltekin
sveitarfélög og séð þá t.d. allan þann
birkiskóg sem innan þess er,“ segir
hann.
Undanfarin ár hefur farið fram
mikil vinna í kortlagningu alls
skóglendis á Íslandi, bæði ræktuðum
skógum og náttúrulegu birkilendi.
Þessum upplýsingum hefur verið
safnað í samræmdan gagnagrunn við
Rannsóknastöð skógræktar á Mógilsá.
Ýmsir aðilar senda inn upplýsingar
um gróðursetningar trjáplantna
á hverju ári og eru landshluta-
verkefnin í skógrækt þar stærst, auk
skógræktarfélaga um land allt.
„Með því að koma okkur
upp vefsjánni erum við að miðla
upplýsingum um skóga Íslands
áfram til almennings og gera þær
aðgengilegar og vonandi þykir fólki
það áhugavert. Fyrstu viðbrögð lofa
góðu, þau hafa verið mjög jákvæð,“
segir Björn.
Almenningur getur komið
upplýsingum á framfæri
Hann segir að vissulega vanti
upp á að öllu sé til haga haldið
varðandi skógrækt á Íslandi,
en sem dæmi skorti enn ýmsar
upplýsingar um einkaskógrækt, t.d.
á sumarbústaðasvæðum.
„Við yrðum mjög ánægð ef
fólk sem skoðar vefsjána og sér að
skógræktarsvæði sem því viðkemur
og er ekki merkt inn hjá okkur, léti
vita. Þá hefðum við tækifæri til að
bæta úr og laga, það er einmitt það
sem við viljum og erum að leita að
farvegi svo allur almenningur geti
á auðveldan máta komið á framfæri
við okkur slíkum upplýsingum,“
segir Björn.
Þá nefnir Björn að grunn-
myndirnar í vefsjánni séu
gervitungla myndir, stundum
teknar í mikilli hæð, allt að 500
kílómetrum.
„Við höfum ekki tækifæri til að
eiga við þessar myndir og það má
vera að fólk taki eftir skekkjum
þegar það skoðar myndirnar þar sem
staðfræðilegri nákvæmni þeirra er
stundum ábótavant. Þannig að ekki
er ólíklegt að ár og lækir, hús og
annað á einstaka jörðum komi ekki
alveg hárrétt út, en ég vona að með
tíð og tíma verði settar inn nýjar
myndir með betri staðfræðilegri
nákvæmni. “ segir Björn.
Vefsjáin og landupplýsinga-
gögnin eru í umsjá Rannsókna-
stöðvar skógræktar á Mógilsá.
Vefsjáin er byggð á ESRI-
hugbúnaði og mynd gögnin
lagskiptar gervitungla myndir
með mismunandi upplausn eftir
mælikvarða. /MÞÞ
Ný vefsjá yfir skóglendi á Íslandi:
Útbreiðsla ræktaðra skóga
og náttúrulegs birkilendis
Kristján Gunnarsson, fyrrum
mjólkureftirlitsmaður, hefur
verið ráðinn til starfa hjá
Bústólpa á Akureyri. Kristján
mun sinna ráðgjöf til bænda
á starfssvæði Bústólpa um
mjólkurgæði og meðferð og þrif
mjaltabúnaðar. Kristján hefur
áratuga reynslu af störfum sínum
sem mjólkureftirlitsmaður og býr
yfir yfirgripsmikilli og einstakri
þekkingu á því sviði. Þá hefur hann
ritað fjölda greina og leiðbeininga
um málefnið á starfsferli sínum
og hefur reynst bændum afar vel
í starfi.
Efla þjónustu við bændur
Greint er frá þessu á vefsíðu Bústólpa
og jafnframt að það sé fyrirtækinu
mikill fengur að fá Kristján til starfa.
„ Með tilkomu Kristjáns hyggjumst
við efla enn frekar þjónustu okkar
við bændur á svæðinu.
Margir halda að ég sé galinn
„Það halda margir að ég sé galinn,
héldu að ég væri svo heilsutæpur
að ég legðist fyrir og myndi hvorki
hreyfa legg né lið framar,“ segir
Kristján, en hann lét af störfum sem
mjólkureftirlitsmaður hjá MS á
Norður- og Austurlandi í lok síðasta
sumars.
Kristján hafði greinst með
parkinson-veiki sem meðal annars
olli því að langar ökuferðir sem
fylgdu starfinu voru honum erfiðar.
Um er að ræða 40% hlutastarf en
hann er hlutlaus ráðgjafi sem bændur
geta leitað til m.a. vegna vandamála
ýmis konar sem upp kunna að koma
á hans sérsviði.
„Ég er þakklátur Hólmgeiri,
framkvæmdastjóra Bústólpa, fyrir að
sýna mér þetta traust og hafa það álit
á mér að hann vilji fá mig til starfa
á þessum vettvangi,“ segir Kristján.
Kristján mun fyrst og fremst sinna
ráðgjöf og þannig starfa við hlið
núverandi DeLaval-þjónustumanna
Bústólpa sem sinna viðhaldi og
uppsetningu mjaltabúnaðar.
Bændum mun standa til boða að
ræða við Kristján án gjaldtöku um
atriði er varða mjólkurgæði, þrif og
val þvottaefna svo eitthvað sé nefnt,
en einnig munum við bjóða bændum
að fá Kristján til stærri úttekta á
mjólkurgæðum sérstaklega ef um
viðvarandi háa líftölu, frumutölu eða
fríar fitusýrur er að ræða og þá gegn
hóflegu gjaldi, segir enn fremur í
frétt frá Bústólpa. /MÞÞ
Kristján ráðinn til Bústólpa
Rúnar Ísleifsson ráðinn
skógarvörður á Vöglum
Rúnar Ísleifsson skógverk-
fræðingur hefur verið ráðinn
skógarvörður á Norðurlandi frá
og með 1. apríl næstkomandi með
aðsetur á Vöglum í Fnjóskadal.
Fjórir sóttu um og af þeim var
Rúnar metinn hæfastur. Rúnar
tekur við starfinu af Sigurði
Skúlasyni, sem verið hefur
skógarvörður á Vöglum frá 1987.
Rúnar er skógverkfræðingur
að mennt. Hann lauk grunnnámi
í skógrækt frá Östboskolan í
Värnamo í Svíþjóð 1986 og prófi í
skógtækni frá sama skóla tveimur
árum síðar. Árið 1989 lauk hann
svo B.Sc.-prófi í skógverkfræði frá
sænska landbúnaðarháskólanum
í Skinnskatteberg. Hann hefur
viðamikla reynslu af skógræktar-
störfum hérlendis og þá aðallega á
Austur- og Norðurlandi. Hann var
skógræktarráðunautur Skógræktar
ríkisins á Austurlandi 1990–
1997, þá skógræktarráðunautur
Héraðsskóga til 2002 þegar hann
tók við framkvæmdastjórn Barra hf.
á Egilsstöðum. Frá árinu 2005 hefur
hann verið skógræktarráðunautur
Skógræktar ríkisins með aðsetur á
Norðurlandi.
Spennandi verkefni fram undan
Rúnar segir mörg spennandi
viðfangsefni fram undan hjá
Skógrækt ríkisins á Norðurlandi
sem tengjast grisjun, viðarvinnslu
og bættri aðstöðu á útvistarsvæðum.
Rúnar hyggst á vormánuðum flytja
búferlum ásamt fjölskyldu sinni
frá Espihóli í Eyjafjarðarsveit og
að Vöglum í Fnjóskadal. Hann er
reyndar alinn upp í skóginum og
þekkir hann betur en margir aðrir því
faðir hans, Ísleifur Sumarliðason,
var skógarvörður á Vöglum í 38 ár,
frá 1949-1987. /MÞÞ
Samstarfsverkefni þýskra og
íslenskra stjórnvalda, sem nefnist
Örugg matvæli, hefur nú verið
hrint úr vör. Megintilgangur
verkefnisins er að auka matvæla-
öryggi og neytendavernd á
Íslandi með því að auka vöktun
á óæskilegum efnum í matvælum.
Í fréttatilkynningu frá MAST segir
að „Örugg matvæli“ geri íslenskum
yfirvöldum, Matvælastofnun og
heilbrigðiseftirliti sveitarfélaganna
betur kleift að framfylgja löggjöf um
matvælaöryggi og neytendavernd,
sem hefur nú þegar verið innleidd í
gegnum EES-samninginn.
„Verkefnið felur í sér kaup og
uppsetningu á rannsóknatækjum og
þjálfun í faggiltum efnagreiningum
og eftirlitsstörfum. Með bættum
tækjabúnaði verður hægt að
framkvæma mun fleiri mælingar
innanlands en nú er s.s. mælingar á
þörungaeitri í skelfiski og mælingu
300 varnarefna í matvælum í stað
þeirra 60 sem nú eru mæld.“
Örugg matvæli var upphaflega
hluti af IPA-áætlun vegna
aðildarviðræðna Íslands við ESB en
hefur nú verið hrint í framkvæmd í
formi tvíhliða verkefnis milli þýskra
og íslenskra stjórnvalda.
Verkefnið er unnið í samvinnu
Matís, Matvælastofnunar, Atvinnu-
vega- og nýsköpunar ráðuneytisins,
Bundesministerium für Ernährung
und Landwirtschaft (BMEL),
Bundesinstitut für Risikobewertung
(BfR) og Niedersächsisches Landes-
amtes für Verbraucherschutz und
Lebensmittelsicherheit (LAVES) í
Þýskalandi.
Samstarfsverkefni þýskra og íslenskra stjórnvalda:
Aukið matvælaöryggi á Íslandi
Rúnar Ísleifsson skógarverkfræðingur hefur verið ráðinn skógarvörður á
Norðurlandi og mun hafa aðsetur á Vöglum, þar sem þessi mynd var tekin
þegar haldið var upp á 100 ára afmæli Vaglaskógar. Mynd / MÞÞ
Kristján Gunnarsson, fyrrum mjólkureftirlitsmaður, hefur verið ráðinn til
starfa hjá Bústólpa á Akureyri. Mynd / MÞÞ
Höfuðborgarsvæðið í nýju vefsjánni.
Björn Traustason, sérfræðingur í
landfræðilegum upplýsingum hjá
Skógrækt ríkisins.