Bændablaðið - 23.01.2014, Side 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. janúar 2014
Í næstu viku held ég til
Danmerkur, að heimsækja
gömlu herraþjóðina. Eitt
áhyggjuefni fylgir þessari för
og það er hvað skuli borða á
meðan á dvölinni stendur.
Ég hef haft það fyrir reglu
að byrja á því þegar ég kem til
Kaupmanna hafnar að fá mér pylsu
í einhverjum pylsuvagnanna sem
víða má enn finna. Miðað við
fréttir af matvælaiðnaðinum bæði
hérlendis og í Evrópu má ætla að
pylsan mín verði úr rúmensku
hrossakjöti eða slóvensku
grænmetisfrauði með svínabragði.
En alltaf skal ég freistast, þrátt
fyrir óvissuna.
En maðurinn lifir ekki á
brauði og pylsum einu saman.
Því er ágætt að finna hentuga
veitingastaði sem snæða má á.
Einn þeirra sem ég hef áhuga
á að komast á heitir Rub and
Stub og hefur þá sérstöðu að allt
hráefni sem notað er á staðnum
kemur, ekki beinlínis úr ruslinu,
en er búinn til úr mat sem bændur
og stórmarkaðir myndu ellegar
fleygja. Staðurinn, sem að mestu
leyti er rekinn af sjálfboðaliðum,
nýtir matvöru sem er farin
að nálgast síðasta neysludag,
útlitsgallað grænmeti og önnur
hráefni sem annars myndu enda
í ruslinu. Markmið staðarins er
að draga úr sóun og vinna gegn
offramleiðslu. Ekki er ég þó viss
um að ég fái að vita uppruna
matvælanna sem ég mun vonandi
fá að njóta á staðnum.
Mér er í sjálfu sér slétt sama
um hvort ég fæ að vita uppruna
matarins sem ég mun borða í
Kaupmannahöfn í næstu viku.
Ég tek sjálfur þá ákvörðun að
fara í pylsuvagninn og fá mér
pylsu af óþekktum uppruna. Ég
tek sjálfur ákvörðun um að fara á
veitingastað sem býður upp á mat
sem annars yrði hent og dettur ekki
í hug að heimta upprunavottorðið
á kartöflustöppunni sem verður
kannski í boði með kjötbollunum.
Vilji ég hins vegar fá að vita
uppruna þess matar sem ég hyggst
neyta, hvort heldur sem er hér á
Íslandi eða í Danmörku, finnst
mér ég eiga til þess skýlausan rétt.
Ég efast stórlega um að ég fái í
magann af því að éta piparost sem
írskt smjör hefur verið notað í. Ég
held ekki að ég sé í hættu með
að fá kransæðastíflu ef ég borða
innflutt beikon, í það minnsta
engu meiri hættu en ef ég borða
innlent beikon. Það mun ekki
valda mér varanlegum skaða að
borða nautakjötslausar kjötbökur,
né heldur mun ég steypast út í
rauðum ofnæmisflekkjum ef ég
ét hollenskan tómat. En, fjandinn
hafi það, ég gæti hugsanlega
fengið flog af reiði yfir því að
matvælafyrirtæki, innflytjendur
og verslunin telji það bara
sjálfsagt og eðlilegt mál að blekkja
neytendur. Skammist ykkar.
Upplýsingar eru grundvöllur
fyrir ákvarðanatöku neytenda.
Þeim er svo í sjálfsvald sett
hvernig þeir nýta upplýsingarnar.
Ég til dæmis sniðgeng allar vörur
frá Ísrael til að mótmæla ólöglegu
hernámi Ísraelsmanna í Palestínu.
Það hefur ekkert með það að gera
hvort ég telji lárperur frá Ísrael
heilnæma fæðu. Til þess að geta
staðið við þessa ákvörðun mína
þarf ég hins vegar upplýsingar,
réttar upplýsingar.
Það er kominn tími til að
fyrirtæki fari að haga sér með
ábyrgum hætti í samskiptum
við neytendur. Hættið að ljúga,
blekkja, svíkja og pretta. Hættið
að hækka verð langt umfram það
sem eðlilegt getur talist. Innleiðið
samfélagslega ábyrgð í reksturinn.
/fr
STEKKUR
Valkvíði við
pylsuvagninn
Notuð dekk á netinu:
Stofnaði umboðssölu með notuð dekk og
felgur eftir að hafa þurft að leita sjálfur
– eigandinn hafði aldrei umfelgað dekk áður en fyrirtækið var stofnað
Í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði er
rekið óvenjulegt dekkja verkstæði.
Dekkjasalan er raunar ekki
dekkjaverkstæði nema að litlum
hluta, heldur umboðssala fyrir
notuð dekk og felgur.
Þegar gengið er inn í húsnæðið má
sjá hundruð dekkja, ýmist stök dekk,
tvö saman eða heilan fjögurra dekkja
gang. Skrifstofan er óvenju vel búin
tölvukosti af dekkjaverkstæði að
vera en það er nauðsynlegt þar eð
öll dekk og felgur sem koma í sölu
hjá fyrirtækinu eru yfirfarin, mynduð
og upplýsingarnar ásamt mynd sett
inn á heimasíðu fyrirtækisins. Það er
viðskiptahugmyndina, sem Valdimar
Sigurjónsson fékk fyrir nokkrum
árum um að koma notuðum dekkjum
og felgum öllum á einn stað, halda
skipulega utan um vöruna og gera
það einfalt og auðvelt fyrir fólk að
finna það sem vantar.
Dekkjasalan var stofnuð árið
2010 af Valdimar. „Hugmyndin
kviknaði þegar ég var að vinna í
Bolungarvíkurgöngunum sumarið
2009 og lenti í að skemma hjá mér
dekk og felgu. Ég fór að reyna að
leita á netinu og nýta svo tímann
þegar ég kom hingað suður í að hafa
uppi á dekkjum og felgum. Það fór
heilmikill tími í þetta og þetta var
óttalegt vesen. Upp úr því ákvað
ég að fara af stað með þetta. Ég
byrjaði á að leigja hér neðri hæð
þangað sem ég tók dekk inn. Svo
þurfti ég á meira plássi að halda og
leigði efri hæðina hér í húsnæðinu en
það var ekki nóg. Þetta hefur verið
alveg stanslaus aukning. Nú er þetta
orðið þannig að við þurfum að setja
sumardekk í gáma og keyra þá burt í
geymslu yfir vetrartímann. Við erum
komnir með meira og minna allt
húsnæði hér í kring undir geymslu
á dekkjum og felgum.“
Mikill vöxtur á stuttum tíma
Valdimar er lögfræðingur að mennt
og segir að það hjálpi verulega í
rekstrinum. Hann byrjaði einn með
fyrirtækið, sem nú hefur undið
verulega upp á sig. „Hugsunin var
að vera með þessa umboðssölu auk
annars en ég hef varla komið heim
til mín í þrjú og hálft ár. Þetta hafa
oft verið 16 til 18 tíma vinnudagar.“
Nýlega stækkaði fyrirtækið enn
við sig og setti upp bílalyftu þar
sem hægt er að skipta um dekk og
umfelga. Valdimar segir að mjög
mikið sé um að fólk nýti sér þá
þjónustu. Fjórir starfsmenn eru í
fullri vinnu hjá fyrirtækinu og stefnt
að því að fjölga upp í sex eða sjö á
vori komandi.
Taka við dekkjum úr bílskúrum
og geymslum
Dekkin og felgurnar sem til sölu eru
hjá fyrirtækinu koma þangað með
ýmsu móti. „Það er fólk sem er að
taka til í geymslum og bílskúrum,
selja bíla og annað í þeim dúr sem
kemur með vörur hingað til okkar.
Bílaleigur og aðrir sem eru í rekstri
koma með dekk sem tekin eru undan
þeirra bílum. Þó eru þetta í meirihluta
einstaklingar sem koma með sín
dekk til okkar, í kringum 70 prósent
myndi ég áætla. Við förum í gegnum
þetta, hendum því sem er ónothæft
og tökum hitt frá. Þetta er síðan allt
skráð í tölvukerfið á rétta eigendur,
myndir teknar og dekkjunum komið
fyrir hjá sambærilegum dekkjum.
Við tökum við flest öllu sem ekki
er ónýtt. Við tökum við stökum
dekkjum, stökum felgum og öðru.
Við erum þeir einu á landinu sem
eru með stakar felgur, í það minnsta í
einhverju magni. Það er orðið þannig
að ef fólk lendir í tjóni á felgu eða
einu dekki eru talsverðar líkur á
að það endi hér hjá okkur, að því
sé vísað áfram af verkstæðum til
okkar, og þá eru talsverðar líkur á
að við eigum það sem fólki vantar.
Við erum til að mynda með á annað
þúsund stök dekk og við erum með
eitthvað um 3.000 felgur.“
Notuð dekk nýtast
En það eru ekki bara þeir sem vantar
stök dekk eða felgur sem leita til
Valdimars. „Það er afar misjafnt
hverju fólk er að leita eftir. Margir eru
að spara sér peninga með því að skipta
við okkur með öll sín dekk. Þó að dekk
séu orðin eitthvað slitin geta þau nýst
einhverjum. Ég get tekið sem dæmi
fólk sem á negldan vetrardekkjagang
en er á sumardekkjum sem eru orðin
ónýt seinnipart sumars, kannski í
ágúst. Þá vantar fólk dekk til að setja
undir í tvo mánuði til að brúa bilið og
þar getum við hjálpað. Sömuleiðis
hefur komið til okkar fólk sem býr
erlendis en á hér bíl sem það notar
kannski lítillega yfir sumartímann.
Það væri kostnaðarsamt fyrir það fólk
að þurfa að kaupa ný dekk miðað við
þá notkun.“
Bjóða líka vinnuvéladekk
Dekkjasalan býður jafnframt upp á
önnur dekk en fólksbíladekk, þótt í mun
minni mæli sé. „Við höfum verið að
taka aðeins á móti vinnuvéladekkjum
og vörubíladekkjum. Þau taka hins
vegar mjög mikið pláss og við höfum
ekki getað þjónustað þessi stærri tæki
við að setja undir dekk. Við reynum
hins vegar að taka við flestu sem
til okkar kemur eða koma fólki í
samband við aðila þegar á þarf að
halda. Við erum einnig með lista yfir
dráttarvéladekk en höfum hins vegar
ekki tekið þau hingað til okkar heldur
haft milligöngu um að koma fólki í
samband.“
Getur sparað fólki verulegar
upphæðir
Valdimar segir að efnahagsástandið
hafi vissulega haft áhrif varðandi
eftirspurn eftir notuðum dekkjum.
„Þessi kreppa sem varð kallað
kannski fram meiri nýtni í fólki. Það
er hins vegar alltaf ákveðinn hópur
sem áttar sig á hagfræðinni í þessu.
Það eru dekk og felgur undir hverjum
einasta bíl þannig að það eru kannski
vel á aðra milljón dekkja í umferð.
Fyrirtæki eins og þetta þarf ekki að
fá inn háa prósentu af þeim öllum
til að geta þjónustað fólk mjög vel.
Á verkstæðum getur verið erfitt að
halda utan um þessa hluti. Megnið
af þessum dekkjum verður að vera
hér á svæðinu til að fólk geti komið
hingað og skoðað þau dekk sem það
hefur augastað á.“
Fólk getur sparað sér talsverðar
upphæðir með því að kaupa notað.
„Segjum að þú kaupir þér dekk hér
á verkstæðinu við hliðina á okkur,
komir með bílinn hingað og látir taka
þau undan og setja í sölu. Þá teljast
þau vera notuð og verðið hefur fallið
um 20 prósent eða svo. Það er ekki
óeðlilegt að fólk geti sparað allt upp
í þriðjung af því sem það væri að
borga fyrir nýtt, og jafnvel meira,“
segir Valdimar.
Algengt er að sjá varað við því
að keypt séu notuð dekk undir bíla,
til að mynda í sérblöðum um bíla
eða neytendablöðum. Valdimar gefur
lítið fyrir þá gagnrýni. „Jú, maður sér
þessar greinar en ég gef ekki mikið
fyrir þær. Fólk notar sjálft sín eigin
dekk þar til þau eru ónýt. Það er því
ekkert óeðlilegt við að notuð dekk
séu á markaðnum. Við bjóðum upp
á skilafrest þannig að bili eitthvað
ganga kaupin bara til baka.“
Fyrst núna að þora að segja frá
Ætla mætti að Valdimar hefði hrærst
í dekkjabransanum svo árum skiptir.
Svo er þó ekki. „Ég hafði aldrei
umfelgað dekk áður en ég stofnaði
fyrirtækið. Það er fyrst núna að
maður er farinn að þora að segja frá
þessu. Það er samt með þetta eins og
allt annað, ef maður setur undir sig
hausinn þá gengur það. Í þessu tilviki
hefur það sannarlega gengið upp.“
/fr
Valdimar segir að fólk geti sparað sér háar fjárhæðir með því að kaupa
notuð dekk.
Mikill kostnaður getur fylgt því ef eitt dekk skemmist og kaupa þarf ný dekk
undir bílinn.
Mikill kostnaður getur fylgt því ef
eitt dekk skemmist og kaupa þarf
ný dekk undir bílinn.