Bændablaðið - 23.01.2014, Side 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. janúar 2014
Benedikt Arnórsson og Guðrún
Agnarsdóttir sauðfjárbændur á
Hofteigi á Jökuldal hafa heldur
betur fengið að finna fyrir
óblíðum náttúruöflum síðastliðin
tvö ár. Í fyrravetur kól um 80
prósent af túnunum hjá þeim og í
óveðurshreti 15. september í haust
misstu þau á þriðja hundrað fjár.
Nú horfa þau fram á afleiðingar
þessa fjártjóns í minni eftirtekju
næsta haust þar sem mikið af
þessu fé var ungt fé sem hann
hafði ætlað að setja á í vetur.
Þau láta þó ekki deigan síga, þó
Benedikt segi að þessi áföll hafi
óneitanlega áhrif á sálartetrið. Í
síðustu viku var hann að lagfæra
fjórhjól og annan búnað sem fékk
harða útreið í óveðurshretinu í
haust.
Í haust var búið að undirbúa
smölun hjá bændum á Jökuldal
eins lög gera ráð fyrir og manna
allar stöður. Nokkrum dögum fyrr
skall á óveður þar sem fé hraktist og
fennti. Sagði Benedikt að þó fólk sé
mjög velviljað að koma til smölunar
þegar gott skipulag er á hlutunum
og góður fyrirvari, þá hafi verið
erfitt að bregðast við ástandinu
fyrirvaralaust. Margir hafi eigi
að síður komið til að leita þó þeir
hafi átt erfitt um vik vegna vinnu.
Þá hafi björgunarsveitin Jökull á
Jökuldal og björgunarsveitin Hérað
á Egilsstöðum veitt aðstoð sína,
m.a. lagt til tæki og tól í leitina,
þar á meðal ofurtrukka og vélsleða.
Ljóst var þó að tjón bænda á
Jökuldal var mikið og sýnu mest
hjá bændum á Hofteigi. Eftir mikla
leit þegar veðrið hafði gengið niður
héldu menn sig þó hafa leitað af sér
allan grun um eftirlegukindur, en í
desember kom í ljós að svo var ekki.
Missti 160 lömb og 83 ær
„Féð fór mjög illa í þessu áhlaupi.
Á mínum bæ skiluðu sér ekki af
fjalli 161 lamb og 89 ær. Það voru
því hátt í 200 lömb sem skiluðu sér
ekki í sláturhús, því heima voru líka
mörg lömb sem ekki var hægt að
lóga,“ sagði Benedikt.
– Hvað ertu þá með margt fé á
fóðrum í vetur?
„Ég er með 750 á fóðrum sem
er svipað og í fyrra. Eftir áfallið í
haust var allt gert til að halda haus,.
Það var því ekki farið með gömlu
rollurnar í sláturhús og ákveðið að
prófa að setja þær á eitt ár í viðbót.
Svo voru settar á 160 gimbrar til
að halda höfðatölunni. Það er þó
skuggalegt að það vanti í þann hóp
góðar ær. Af þessum 89 fullorðnum
kindum sem vantaði alveg í hópinn
voru 63 úr yngstu árgöngunum,
eins, tveggja og þriggja vetra ær.“
– Þú ert þá ekki að reikna með
sérstaklega góðri útkomu í burð-
inum í vor?
„Nei, það er allt of mikið
af fullorðnum rollum og síðan
gríðarlega mikið af gemsum. Næsta
haust verð ég því fyrirsjáanlega með
lakari útkomu en ella. Það er því
ekki bara búið að hirða af manni
drjúgan hluta af laununum á síðasta
ári, því það gildir líka fyrir þetta ár.
Það er skelfilegt að lenda í þessu
og þetta fer líka svo illa í mann. Þar
er ekki bara fjárhagstjónið, það er
ekki síður sálræni hlutinn, því þetta
eru lifandi dýr sem maður er að fást
við og er alls ekki sama um.“
– Hvernig var þetta á næstu
bæjum?
„Það var ekki alveg eins
slæmt í kringum mig. Það voru
þó einir fimm bæir sem lentu í
skaða en misjafnlega miklum. Á
Skjöldólfsstöðum vantaði þó líka
margt fé. Þar fyrir ofan voru menn
búnir að ná fénu heim en við áttum
eftir að koma því heim að bæ þó
við værum búnir að smala dagana
á undan. Við erum bara með það
mikið landsvæði undir að okkur
duga ekki tveir dagar til að ná fénu
heim þegar spáin er vond og mann-
skapurinn kannski ekki mikill.“
Fimm eftirlegukindur fundust
við Þríhyrning
Jökuldælingar sem voru að veiða
silung í gildrur í Þríhyrningsvatni,
nokkurn veginn miðja vegu milli
Hofteigs og Öskju fyrir jólin, urðu
varir við kindur í Þríhyrningi og létu
bændur vita.
Benedikt segir að þrátt fyrir
vont veðurútlit hafi verið rokið til
strax morguninn eftir, snemma á
Þorláksmessu, og gerður leiðangur
til að sækja féð.
„Það var ansi langt að fara og
féð var í talsvert mikilli hæð. Þetta
voru nokkrar kindur sem urðu eftir
og fundust ekki eftir veðrið í haust.
Þarna voru tvær tvævetlur frá Jóni
Víði á Hvanná, önnur tvílembd og
hin einlembd. Þær voru þarna lengst
inni í landi og innan við mestu
snjóana þar sem ekki voru jarðbönn.
Þarna hafa þær haft það fínt og voru
ótrúlega vel á sig komnar þó þær
væru með lömbin undir sér. Þær áttu
því mikið eftir þegar við komum
að þeim.“
Óvenjulegt veðurfar
Veður hefur verið mjög rysjótt
undanfarnar vikur á Jökuldal.
Óblítt tíðarfar hefur ítrekað gert bændum á Hofteigi á Jökuldal lífið leitt:
Sátu uppi með 80% kal í túnum í fyrravor og misstu
svo á þriðja hundrað fjár í óveðrinu í haust
– láta þó ekki deigan síga og björguðu sér um heyöflun í sumar með því að slá túnin á Grímstöðum á Fjöllum og á tveim öðrum jörðum
Það var um langan veg að fara til að sækja féð í Þríhyrning á Þorláksmessu.
Hér er Benedikt ásamt aðstoðarfólki að sækja eftirlegukindur á Þorláksmessu sem fundust í fjallinu Þríhyrningi sem
er langt inni í landi, um miðja vegu milli Hofteigs og Öskju. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Benedikt Arnórsson,
Snæbjörn Valur Ólason, Ævar Þorgeir Aðalsteinsson, Björn Hallur Gunnarsson, Páll Magnússon og Guðný Halla
Sóllilja.
Komnir með einar sex kindur á pallinn á sexhjólinu. Þessi mynd er tekin í einni af síðustu leitarferðum bænda á Jökuldal eftir hretið í haust, hinn 21.
október. Þarna hafði feðgunum Arnóri Benediktssyni, Benedikt Arnórssyni og Agnari Benediktssyni (sem þarna er á bak við myndavélina) tekist að ná sex
drapst skömmu seinna. Myndir / Agnar Benediktsson
Benedikt Arnórsson með sex á palli, eina í fangi og hundurinn Ebbi fylgist
vandlega með.
Það mynduðust oft djúpar gryfjur
þar sem fé var lifandi fast í snjónum.