Bændablaðið - 23.01.2014, Page 19
19Bændablaðið | Fimmtudagur 23. janúar 2014
Auglýsing um styrki
til varna gegn
landbroti árið 2014
Landgræðsla ríkisins auglýsir eftir umsóknum um styrki
til varna gegn landbroti. Um er að ræða styrki sem veittir
eru til slíkra verkefna skv. lögum nr. 91/2002 um varnir
gegn landbroti.
Styrkirnir eru veittir til hvers konar verkefna til varnar
því að vatnsföll eyði mannvirkjum eða gangi á gróið
land. Við forgangsröðun verkefna er m.a. höfð hliðsjón
af verðmæti þeirra mannvirkja eða lands sem landbrot
ógnr.
Umsóknarfrestur er til 15. mars n.k. Umsóknareyðublöð
og nánari upplýsingar eru á heimasíðu Landgræðslunnar,
www.land.is , en einnig er hægt að hafa samband við
Landgræðsluna í Gunnarsholti, sími 488 3000 og hér-
aðssetur Landgræðslunnar um land allt.
Umsóknum skal skila til Landgræðslu ríkisins,
Gunnarsholti, 851 Hella eða á netfangið land@land.is
Landgræðsla ríkisins
Gunnarsholti, 851 Hella
Sími 488 3000
Netfang land@land.is
Hvassviðri hafa einkennt veður-
lagið og úrkoma með töluverðri
snjókomu til fjalla en tiltölulega
hlýtt þegar neðar kemur.
„Við eigum því þó að venjast að
það sé meiri kuldi í norðanáttinni en
ekki svona hlýtt eins og verið hefur
að undanförnu.“
Næg hey á svæðinu þrátt
fyrir erfiðleika
Benedikt hefur verið forðagæslu-
maður á svæðinu en lét af því emb-
ætti um áramót. Honum er því vel
kunnugt um fóðurstöðu bænda á
svæðinu eftir sumarið.
„Ég get allavega sagt að það eru
næg hey á svæðinu þó menn lendi í
einhverju kuldahreti í vor. Það var
hins vegar mikið um kal hér eftir
tíðarfarið í fyrravetur. Menn hafa
reynt að mæta því með ýmsum hætti
til að eiga næg hey í vetur.“
„Dýrasta árið sem ég hef verið
í búskap“
„Fyrir mig hefur árið verið erfitt og
ég held að þetta sé dýrasta árið sem
ég hef verið í búskap. Sem dæmi
var um 80% túnanna hjá mér kalin.
Af þessum túnum sem maður hefur
venjulega verið að ná um 600 til 700
heyrúllum, þá fengust aðeins 160
rúllur í sumar.“
Heyjaði m.a. á Grímsstöðum
„Ég náði í hey á þrem jörðum sem
eru ekki lengur með búskap þó
þær séu enn í ábúð. Þetta eru jarð-
irnar Fossvellir og Selland og síðan
heyjaði ég líka á Grímsstöðum á
Fjöllum af öllum stöðum. Að fara
á Grímsstaði fannst mér eiginlega
skemmtilegasti heyskapurinn. Fyrir
okkur hér var þetta þó hálf fjar-
stæðukennt.
Hugmyndin að fara þarna kom
upp eftir miðjan júní en þá fréttist
að túnin á Grímsstöðum litu ótrúlega
vel út. Við skoðuðum þetta og það
var farið þangað með góðan áburðar-
skammt og borið á. Af túnunum
fékkst svo bara mjög góð uppskera
af þokkalegu heyi ef miðað er við að
sum stykkin hefur staðið á sinu í allt
að sex til sjö ár.“
Hann segir að úr efnagreiningu
hafi fóðurgildið verið um 0,69 og allt
upp í 0,74 fe, sem sé alls ekki afleitt
þótt það sé vissulega ekki úrvalshey.
„Ég var mest hissa á að heyið
væri ekki lakara með alla þessa sinu
á túnunum.“
– Þú hefur ekki hitt Kínverja
þarna uppi á Grímsstöðum?
„Nei, það var ekki mikið um
Kínverja, allavega ekki meðan ég
var þar að heyja,“ sagði Benedikt
Arnórsson. /HKr.
Grímsstaðir á Fjöllum þar sem Benedikt náði að heyja í sumar hluta af forða fyrir veturinn. Mynd / HKr.
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri www.jotunn.is
Jötunn Vélar ehf. - Kt. 600404 2610
Valtra N103
NÝTT!
Meðal staðalbúnaðar má nefna:
Hafðu samband við sölumenn okkar í síma 480 0402
Eigum úrval af nýjum og notuðum vélum
á hagstæðu verði til afgreiðslu strax.
H5 skipting frá Valtra.
4 rafskiptir gírar + 5 vökvaþrep í hverjum
gír með sjálfskiptimöguleika
Einstök Hitrol vökvaseigjutengsli
(convertor) sem eykur alla mýkt er
valbúnaður.
Nýjungar:
Valtra N103 H3 / H5
H3 týpa
H5 týpa