Bændablaðið - 23.01.2014, Qupperneq 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. janúar 2014
að vita af sínu fólki á staðnum og
gerir manni kleift að skjótast þangað
í heimsókn hvenær sem færi gefst,“
segir Sigurgeir og líkir því að nokkru
við afa- og ömmuhlutverkið.
„Við getum skroppið og tekið
þátt í því sem skemmtilegt er og eins
þegar á þarf að halda og farið svo
bara heim!“ Bætir hann við að það
hafi raunar blundað í sér um skeið
að breyta til, prófa eitthvað annað
og nýtt.
Reynslubolti í félagsmálum
Sigurgeir hefur frá unga aldrei
tekið þátt í félagsmálum og
er mikill reynslu bolti á þeim
vettvangi. Lét hann fyrst til sín
taka í ungmennafélagsmálum, sat
í sveitar stjórn Saurbæjarhrepps og
var þar oddviti áður en sveitarfélagið
sameinaðist Hrafnagils- og
Öngulsstaða hreppi og varð
Eyjafjarðar sveit og þá hefur hann
verið í stjórnum Búnaðarfélaga og
ýmissa félaga annarra eins og Félagi
sauðfjár bænda í Eyjafirði og Félagi
kúabænda auk búnaðarsambandsins,
Búnaðarþings og öllu sem því fylgir.
„Ég var nú alltaf af og til að lofa
fjölskyldunni að hætta afskiptum
mínum í þessum félagsmálum og
stundum tókst það í smástund, en
svo leið ekki að löngu þar til ég var
komin á ný í eitthvert bras. Þetta
félagsmálavafstur tekur tíma og
kostar fjarveru frá heimili. en ég
hafði alla tíð gaman af mannlegum
samskiptum og það er auðvitað
ómetanlegt að hafa kynnst öllu því
góða fólki um land allt sem verið
hefur með mér í þessu.“ /MÞÞ
Umsókn um orlofsdvöl
Undirrituð/Undirritaður sækir hér með um:
Umsóknina skal senda fyrir 15. mars nk.
rafrænt á netfangið ho@bondi.is
eða á póstfang Bændasamtaka Íslands:
Bændahöllin v/Hagatorg,
107 Reykjavík, merkt Orlofsdvöl sumarið 2014
Sumarið 2014
Nafn umsækjanda Kennitala
Heimilisfang Símanúmer
Undirskrift félaga og dagsetning
Póstnúmer og staður
Hefur þú áður fengið úthlutað orlofsdvöl í
sumarhúsi hjá Bændasamtökunum?
Já Nei
Orlofsdvöl að Hólum - Tímabilið:
Orlofsdvöl á Flúðum - Tímabilið:
Hér að neðan er að finna umsóknareyðublað um orlofsdvöl í húsunum að Hólum í
Hjaltadal og á Flúðum, Hrunamannahreppi sumarið 2014. Það gildir fyrir félaga í
búnaðarsamböndum og/eða búgreinafélögum sem eiga aðild að BÍ – Frestur til að skila
inn umsóknum rennur út 15. mars 2014.
Félagsmenn Bændasamtakanna
eru hvattir til að nýta sér útleigu á
sumarhúsum í sumar annaðhvort
á Hólum í Hjaltadal eða á Flúðum
í Hrunamannahreppi.
Um er að ræða vel útbúin hús þar
sem öll nútímaþægindi eru til staðar
og gerður hefur verið góður rómur
að. Margt fróðlegt og skemmtilegt er
hægt að gera í námunda við orlofs-
húsin og ber þar að nefna dvölina
á Hólum að kíkja við í glæsilegri
sundlaug á Hofsósi og skoða þar
Vesturfararsetrið í leiðinni. Einnig
er hægt að renna út á Siglufjörð og
skoða Síldarminjasafnið og jafn-
vel prófa nýleg Héðinsfjarðargöng í
leiðinni. Að auki er mjög skemmti-
legt að fara hringferð út á Skaga á
ísbjarnarslóðir.
Síðan má ekki gleyma þeim
fjölmörgu bændum sem eru í
nágrenni Hjaltadals og í nánd
við Flúðir sem bjóða í heimsókn
í gegnum Opinn landbúnað og er
tilvalið fyrir gesti orlofshúsanna
að bregða sér í heimsókn til
starfsbræðra sinna.
Flúðir er þéttbýliskjarni
miðsvæðis í Hrunamannahreppi
og þykir þar notalegt og fagurt.
Litla-Laxá rennur í gegnum þorpið
og mikill jarðhiti er á svæðinu.
Ylrækt er mikil og er þar einnig
mesta svepparækt landsins. Alls
konar afþreying sem tengist jarðhita
stendur til boða og á Flúðum er góð
sundlaug. Flestir ættu að finna hér
eitthvað við sitt hæfi. Stutt er í veiði
í ám og vötnum. Margir sögustaðir
eru í grenndinni og má þar nefna
kirkjustaðinn Hruna, en hann tengist
sögunni „Dansinn í Hruna“, þegar
kölski sjálfur kom nýársnótt eina,
þegar heimamenn sátu að svalli og
dansi í kirkjunni, og kippti snót einni
niður í undirdjúpin. Skemmtilegur
hringur, Gullfoss, Geysir, Skálholt,
Sólheimar svo eitthvað sé nefnt.
Árnes, Laugarás, Laugarvatn og
margir fleiri áhugaverðir staðir.
Hægt er að panta dvöl í sumar-
húsunum, sem er vika í senn, hjá
Halldóru Ólafsdóttur í gegnum
netfangið ho@bondi.is eða í síma
563-0300.
Sumarleiga orlofshúsa
BÍ í fullum gangi
Mynd / HKr.