Bændablaðið - 23.01.2014, Side 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 23. janúar 2014
CLAAS Arion 400 100-130 hestöfl
Fr
u
m
Gylfaflöt 32 112 Reykjavík Sími 580 8200 www.velfang.is Óseyri 2 600 Akureyri
VERKIN TALA
Vökvaskiptur 16/16 gírar
98 lítra vökvadæla
Hægt að sameina vökva-
flæði fram
í mokstursstæki
10 hestafla aflaukning í CIS
útfærslu
Rúmgott ökumannshús með
frábæru útsýni
Fjölstillanlegt sæti með loft-
fjöðrun
Farþegasæti með öryggis-
belti
Topplúga úr gleri
Öll stjórntæki innan seilingar
ökumanns
Útskjótanlegur
vökvalyftukrókur
6.500 kg. lyftigeta á beisli
Fjögurra hraða aflúttak
CLAAS Arion 400 CIS-EHV
Stjórnstöng í sætisarmi fyrir
ámoksturstæki og vökva-
sneiðar
Rauður takki á mynd stýrir
gírskiptingu +/-
4 vökvasneiðar, 2 rafstýrðar
2 handvirkar
Auðvelt og þægilegt í notkun
Til sölu
Ljósabekkir, öflug loftræsting, skilveggir
og ýmislegt tengt sólbaðstofustarfssemi
Upplýsingar hjá Kærleikssetrinu
Þverholti 5, 270 Mosfellsbæ
Sími: 567 5088 /862 0884
Netfang: kaerleikssetrid@kaerleikssetrid.is
Lax nemur ný svæði í Sæmundará
Síðastliðið haust voru laxar úr
Sæmundará í Skagafirði fluttir
upp fyrir Gýgjarfoss, þannig að
þeir gætu hrygnt á ófiskgengu
svæði árinnar. Á þann hátt lengist
sá hluti vatnasvæðisins sem lax
getur nýtt og væntingar um að
framleiðsla laxaseiða í ánni aukist
í kjölfarið. Þetta kemur fram á vef
Veiðimálastofnunar, veidimal.is.
Áður en löxunum var sleppt í
árnar var komið fyrir útvarpssendum
á 13 þeirra. Með því móti var
gert mögulegt að fylgjast með
staðsetningu fiskanna í ánni. Fram
eftir hausti og á jólaföstunni var
reglulega fylgst með ferðum laxanna.
Laxar dreifðust um svæðið
Fjórir merktu laxanna héldu til á
svæðinu ofan Gýgjarfoss fram yfir
hrygningartímann og hafa að líkindum
hrygnt þar. Laxarnir dreifðust um
svæðið allt frá Gýgjarfossi og fram
undir bæinn í Valadal, rúma tvo
kílómetra frá ármótum Valadalsár og
Vatnsskarðsár. Má því telja líklegt
að fleiri laxar hafi verið til staðar
á svæðinu yfir hrygningartímann.
Laxar sem hopuðu af svæðinu niður
fyrir Gýgjarfoss fyrir hrygningartíma
var leitað í ánni niður undir Dæli og
fundust fimm þeirra víðs vegar á
þeim kafla árinnar.
Þá fór einnig í gang verkefni
síðastliðið haust sem miðar að því að
kanna möguleika á að nýta ófiskgenga
hluta Sæmundarár í Skagafirði
til hrygningar og uppeldis laxa.
Framkvæmd verkefnisins fór þannig
fram að í september voru 24 laxar
veiddir á stöng í Sæmundará og fluttir
upp fyrir Gýgjarfoss þar sem þeim var
komið fyrir í kistum. Löxunum var
síðan sleppt merktum í Vatnsskarðsá
og Valagilsá. Verkefnið er unnið í
samstarfi Veiðimálastofnunar og
Veiðifélags Sæmundarár og er styrkt
af Fiskræktarsjóði.
Hentar ágætlega sem búsvæði
fyrir laxaseiði
Sæmundará er fiskgeng að
Gýgjarfossi en á um tveggja km leið
ofan hans að ármótum við Valagilsá
kallast áin Vatnsskarðsá. Botngerð
Vatnsskarðsár og Valagilsár er talin
henta ágætlega sem búsvæði fyrir
laxaseiði. Ekki er talið að Gýgjarfoss
valdi afföllum á niðurgönguseiðum.
Þau seiði myndu að lokinni
sjávardvöl ganga til hrygningar aftur í
Sæmundará, styrkja laxastofn árinnar
og vera viðbót við veiði.
Í framhaldinu verður tilvist
laxaseiða ofan Gígjarfoss rannsökuð
með rafveiðum á þeim hlutum ánna
þar sem merktir laxar höfðust við
á haustmánuðum. Ef hrygning á
svæðinu hefur tekist verður fylgst
með vexti og viðgangi seiða þar á
næstu árum.
Ef árangur verður góður, má nýta
aðferðir og reynslu af verkefninu
til að auka seiðaframleiðsluna á
vatnasvæðinu.