Bændablaðið - 23.01.2014, Side 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 23. janúar 2014
Bændablaðið
Kemur næst úr 6. febrúar
Hækkandi hitastig sjávar:
Þangbeltið úti fyrir
Frakklandi hörfar
– sumar fisktegundir missa uppvaxtarsvæði sín
Fucus serratu.
Hið útbreidda þangbelti við strönd
Bretagne-skaga í Frakklandi lætur
nú undan síga og gæti horfið.
Við það glatast uppvaxtarsvæði
margra fisktegunda, að því er fram
kom í norska blaðinu Nationen
fyrir skömmu.
Það er hin mikilvæga þangtegund
Fucus serratus, sem er stundum
kallað tennt eða sagtennt þang, sem
er í útrýmingarhættu á suðlægustu
vaxtarsvæðum sínum í Evrópu.
Það sýna rannsóknir Alexanders
Jütterbock við Háskólann í Bodö í
Noregi. Í nýbirtri doktorsritgerð hans
vísar hann til þess að tegundir jurta
geta aðlagað sig á þrennan hátt að
breyttum vaxtarskilyrðum; með því
að færa sig til, með því að laga sig
að nýjum skilyrðum og með því að
breyta erfðaeiginleikum sínum.
Í því sambandi hefur hann einkum
rannsakað sagþangið. Hann hefur
rannsakað hvernig hækkun hitastigs
sjávar hefur áhrif á lífsskilyrði þess
og möguleika til að laga sig að þeim
en í umhverfi þess alast upp margar
fisktegundir.
Rannsóknirnar spanna fjögur
ólík uppvaxtarsvæði þangs;
norðvestur hluta Spánar, Bretagne-
skaga í Frakklandi, Danmörku
norðvestanverða og Austur-
Finnmörk í Noregi.
Tilraunir hafa verið gerðar þar
sem hitastig í umhverfi sagþangsins
hefur verið hækkað upp í það sem
svarar til hitastigs hitabylgja í
Evrópu á árunum 2003 og 2007 og
gáfu þær tilraunir skýr svör. Við
áframhaldandi hækkun hitastigs
sjávar mun sagtennt þang hverfa á
suðlægum vaxtarslóðum þess fyrir
aldamótin 2.200 en hugsanlegt er að
það muni flytja sig norður á bóginn
svo sem til Íslands, Suður-Grænlands
og Svalbarða.
Þýtt og endursagt /ME
Norski þróunarsjóðurinn
(Utviklingsfondet) útnefndi
síðla á síðasta ári smábændur
í þróunarlöndunum sem
„ofurhetjur“ samtímans. Greint
var frá þessu í Bondebladet.
Þ e s s i r
bændur eru
um hálfur
milljarður
að tölu. Þeir
f ramle iða
m a t v æ l i
og berjast
gegn fátækt í heiminum. Þá leggja
þeir sitt af mörkum í baráttunni við
veðurfarsbreytingarnar sem nú eiga
sér stað á Jörðinni.
Francisco Olivas í Nicaragua,
Fitsumbran Gdey í Eþíópu eða Johan
Svärd á Haðalandi í Noregi telja sig
sjálfsagt ekki neinar ofurhetjur en
okkur finnst þeir vera dæmigerðir
fulltrúar þeirra.
Veðurfarsráð Sameinuðu þjóðanna
varar við samdrætti í uppskeru víða
um heim vegna breytinga á veðurfari.
Smábændur í fátækum löndum
framleiða um þessar mundir stóran
hluta af matvælum þjóða sinna um
leið og þeir finna verulega fyrir
þeim veðurfarsbreytingum sem nú
eiga sér stað í umhverfi þeirra. Þeir
gegna mikilvægu hlutverki, bæði í
baráttunni við fátækt og við að tryggja
matvælaöflun.
Smábændur eru gjarnan opnir
fyrir sjálfbærum ræktunaraðferðum,
m.a. vegna þess að þeir hafa ekki
ráð á að kaupa vélar og verkfæri
né áburð eða jurtavarnarefni. Í
stað þess nota þeir ódýrar aðferðir
sem fara vel með akrana. Sjálfbær
landbúnaður verður ekki stundaður
nema með miklu vinnuframlagi og
kunnáttu, en hann getur þó skilað
góðum tekjum. Hann er einnig góð
vörn gegn veðurfarsbreytingum og
uppskerubresti.
Ofurbóndinn Fitsumbran í Eþíópíu
ræktar grænmeti og ávexti á landi sínu.
Hún ræktar saman margar tegundir
en er líka með geitur og kú og selur
afurðir sínar á þorpsmarkaðnum.
Hið sama gerir Francisco í
Níkaragvaa. Hann er félagsmaður í
samvinnufélagi og stundar vistvænan
landbúnað. Hann ræktar yfir 30
tegundir nytjajurta. Það kostar mikla
vinnu en skilar líka góðum árangri.
Alþjóðlegar álitsgerðir greina frá
því að landbúnaður sé hluti af lausn
veðurfarsvandamála á Jörðinni. En
til að innleiða sjálfbæran landbúnað
þarf þekkingu, leiðbeinendur og
sameinað alþjóðlegt átak. Upplýsa
verður bændur um það hvaða tegundir
nytjajurta auðga jarðveginn af
köfnunarefni og hvaða jurtir útrýma
ekki öðrum tegundum.
Í Asíu hafa bændur lært að nota
endur eða fiska til að vinna gegn
illgresi og skordýrum í ökrunum.
Síðan er unnt að veiða fiskinn til
matar og úrgangurinn frá honum
nýtist sem áburður.
Þessi búskapur hefur aukið
uppskeru um allt að 20%,
eiturefnanotkun hefur minnkað og
tekjur aukist um 80%.
Nærtækt er að halda því fram
að það sé smábóndinn sem eigi
framtíðina.
Þýtt og endursagt /ME
Smábændur í þróunarlöndunum:
Útnefndir ofurhetjur samtímans
Smábændur í þróunar-
landi. Mynd / FAO
Nokkur undanfarin ár hafa
vísinda menn velt því fyrir sér
hvað sé að gerast á sólinni. Aukin
regluleg virkni sem hefði átt að
vera að ná hámarki um þessar
mundir hefur ekki látið á sér kræla
og lítið sem ekkert um sólbletti.
Eru vísindamenn nú jafnvel farnir
að gera því skóna að þetta ástand
kunni að leiða til mikillar kólnunar
á jörðinni á komandi árum. Er
jafnvel farið að tala um möguleika
á lítilli ísöld á norðurhveli jarðar á
næstu áratugum í þessu samhengi.
„Það er sama hvaða mælikvarða
þú notar, sólgos eru að hverfa,“
sagði Richard Harrison í Rutherford
Appleton Laboratory í Oxford-skíri
í samtali við BBC nýverið.
„Ég er búinn að vera
sóleðlisfræðingur í 30 ár og hef
aldrei séð neitt þessu líkt.“
Harrison segir að þetta fyrirbæri
geti leitt til kaldari vetra eða það
sem kallað er Maunder Minimum
eins og ríkti á norðurhveli jarðar
í kringum 1645 – „Þá voru kaldir
vetur, nærri því ísöld. Þá komu
tímabil þegar Thames-áin fraus. Við
höfum rannsóknir sem ná yfir 400 ár
og ástandið núna svipar mjög til þess
sem var þegar Maunder Minumum
var að byrja.“
Áhrif af völdum mannsins sögð
kunna að hafa gagnstæð áhrif
Mikið hefur verið fjallað um
málið undanfarna daga í breskum
fjölmiðlum. Þar hefur umfjöllun
BBC verið áberandi. Í vefútgáfu
Daily Mail segir m.a.: „Vísindamenn
vara við því að sólin sé farin að
sofa.“
Það er þó greinilegt að vísinda-
menn reyna að hughreysta
almenning í kjölfar þessara fregna
og Lucie Green í University College
London telur að annað kunni að
verða uppi á teningnum nú vegna
starfsemi mannsins.
„Jörðin sem við lifum á núna
er mjög mikið öðruvísi. Áhrif af
starfsemi mannsins vega upp á móti
þessu. Það er því erfitt að segja til
um hverjar afleiðingarnar kunna að
verða.“
Samkvæmt þessum orðum Green
mætti ætla að fagna beri áhrifum
loftmengunar af völdum mannsins.
Ljóst virðist þó að vísindamenn eru
mjög tvístígandi um mat á ástand-
inu.
Hrynja núverandi veðurkerfi?
Michael Lockwood hjá Háskólanum
í Reading segir að lækkað hitastig
geti haft áhrif á svokallaða
þotustrauma í háloftunum um
allan heim. Það geti leitt til þess að
veðurkerfin eins og við þekkjum
þau hreinlega hrynji.
Hann hefur áður komið fram
með kenningu um að samhengi sé
á milli lítillar sólarvirkni og kaldra
vetra í Norður-Evrópu. Á grund-
velli umfangsmikillar tölfræði hefur
Lockwood komist að því að kaldir
vetur í Evrópu tengjast lágri virkni
sólar – síðasta dæmið er veturinn
2009 til 2010.
Lítil ísöld innan 40 ára?
„Við áætlum að það séu 10 til 20%
líkur á að við munum vera í Maunder
Minimum ástandi innan 40 ára,“
segir Lockwood.
Kenningar og stór áform í
uppnámi
Ef þessar vangaveltur vísindamanna
um kólnun jarðar reynast réttar munu
öll áform um jarðefnanýtingu á
norðurheimskautssvæðinu, sem og
framtíðarsiglingar yfir norðurpólinn,
vera í uppnámi.
Á árinu 2010 bentu nýjar
rannsóknir til að sólin væri sé alls
ekki jafn stöðug og talið hefur
verið. Nú þrem árum síðar virðast
vísindamenn vera að styrkjast í spám
sínum um kólnandi veðurfar.
Eitt greinilegt frávik felst í fjölda
sólgosa. Á síðustu 300 árum hafa sól-
gosin komið og farið í 11 ára lotum.
Síðasta hringrásin hefur staðið
óvenju lengi yfir og eins hafa komið
margra vikna tímabil án sólgosa.
Þetta töldu vísindamenn vísbendingu
um óþekkt ferli í iðrum sólar sem
kynni að hafa mikil áhrif á loftslag
jarðar. Staðreyndin er að fjöldi
sólbletta frá 2011 hefur verið minni
en vísindamenn telja eðlilegt. /HKr.
Langvarandi lítil virkni á sólinni vekur ugg:
Sumir vísindamenn telja að lítil ísöld
geti mögulega verið í uppsiglingu
– segja ástandið álíka og í upphafi svipaðs ferlis upp úr árinu 1600
Lægðin í virkni sólar á milli 1650 til 1700 er kölluð Maunder Minimum, en þá ríkti það sem menn hafa kallað litla ísöld.