Bændablaðið - 23.01.2014, Blaðsíða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. janúar 2014
Víðir H. Guðbjartsson keypti
Grænuhlíð í Bakkadal í
Arnarfirði árið 1995 og bjó
þar fyrstu árin með um 450
fjár á vetrarfóðrum. María
Friðgerður Bjarnadóttir flutti
svo í Grænuhlíð 1998. Árið 2007
keyptu þau svo jörðina Feigsdal,
sem er einnig í Bakkadal, og
fjölguðu fénu nokkuð. Víðir er
fæddur og uppalin í Feigsdal og
bjó faðir hans Guðbjartur Ingi
Bjarnason þar en hann lést árið
2006.
Býli: Grænahlíð og einnig eigum
við jörðina Feigsdal. Báðar jarðir
eru í Bakkadal í Arnarfirði.
Staðsett í sveit: Í Ketildalahrepp
hinum forna í Arnarfirði.
Ábúendur: Víðir H. Guðbjartsson
og María Friðgerður Bjarnadóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Við erum tvö í heimili og svo erum
við með fimm fjárhunda.
Stærð jarðar: Ef við vissum það nú.
Gerð bús: Sauðfjárbúskapur.
Fjöldi búfjár og tegundir: Um 800
kindur á vetrarfóðrum, 8 hross og
nokkrar hænur. Einnig erum við með
æðarvarp sem telur um 1.000 fugla.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum: Það
fer auðvitað eftir árstíma, núna eru
það gjafir kvölds og morgna. Þess á
milli er verið að ditta að og breyta.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin: Heyskapur, smala-
mennskur og sauðburður (ef
vel gengur) er skemmtilegast.
Leiðinlegast er að dæla skít og það
eru einu skiptin sem hægt væri að fá
kotið fyrir lítið.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir
ykkur á jörðinni eftir 5 ár? Nokkuð
svipað og núna en það væri gaman
að geta fjölgað fénu enn frekar (Víðir
segir: Vonandi að verða stærri en Jói
á Brjánslæk).
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Höfum ekki mikla
skoðun á þeim.
Hvernig mun íslenskum landbún-
aði vegna í framtíðinni? Vel ef við
höldum okkur frá Evrópusambandinu.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra búvara?
Í lambakjöti og mjólkurvörum.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, ostur og smjör.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Lambalæri og rollu snitzel
í raspi.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin: María segir að eftirminni-
legast sé þegar hætt var að bera heyið
fram jöturnar og þess í stað settur upp
afrúllari með gjafavögnum. Víðir
segir hins vegar að það hafi verið
þegar fjárfest var í Taarup bio rúllu-
bindivélinni, þá varð heyskapurinn
fyrst skemmtilegur.
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Kjúklingur á hvers manns disk
Kjúklingur er frábær fæða og
nýtur mikilla vinsælda. Kjötið
er hægt að krydda á óteljandi
vegu, sem gefur eldamennskunni
ævintýralegan blæ.
Hér er einföld uppskrift að
sesamgljáðum kjúklingabringum
ásamt kjúklingabollum á pinna,
sem er ögrandi áskorun fyrir
bragðlaukana.
Sesamgljáð kjúklingabringa
› 4 kjúklingabringur
› 1 búnt basil eða önnur kryddjurt
› 50 ml ólífuolía
› Salt og pipar
› 400 g sætar kartöflur
› 400 g gulrætur
› 50 ml sojasósa
› 1 dós kókósmjólk
Kjúklingurinn er brúnaður á heitri
pönnu í olíu og kryddaður til með salti
og pipar. Eldað í ofni þar til kjarnhiti er
orðinn 70 °C eða í um 12 mín. á 190
°C heitum ofni.
Gott er að bera fram með sætum
kartöflum og gulrótum sem er búið
að rista á pönnu og baka í ofni þar til
rótargrænmetið er orðið mjúkt. Kryddið
með salti og pipar.
Hellið kókósmjólkinni og soja-
sósunni yfir bringurnar ásamt ristuðum
sesamfræjum og kryddjurtum. Berið
fram með góðu salati.
Kjúklingabollur á pinna
› 500 g kjúklingahakk
› 2 hvítlauksrif, smátt söxuð
› ¼ stk. laukur
› 2 matskeiðar rauð paprika
› 3 matskeiðar steinselja
› 1 msk. kóríanderduft
› 1 tsk. kúmenduft
› ½ tsk. kanilduft
› ¼ tsk. Cayenne-pipar
› ¼ tsk. engiferduft
› ¼ tsk. svartur pipar
› 1 klípa salt
› negull á hnífsoddi
› múskat á hnífsoddi
› 1 hvítlauksrif
Saxið laukinn og papriku.
Blandið öllum innihaldsefnum
saman. Skiptið í 8 hluta. Formið
bollur og setjið á tein. Geymið í
kæli í 20 mínútur. Eldið á grilli eða
á pönnu. Snúið á 2 mínútu fresti þar
til fulleldað í gegn. Getur tekið um
6-10 mínútur.
Berið fram með salati og
hrísgrjónum. Köld sósa úr sýrðum
rjóma fer ljómandi vel með
kjúklingabollunum.
MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI
Grænidalur