Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1999, Side 50

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1999, Side 50
Múlaþing á eftir, og þá líklega orðinn margra ára gamall, því að hann er þá í viðgerð. Þorvaldur Thoroddsen ferðaðist um Norðausturöræfin árið 1894. Hann ritar: „Um kvöldið œtluðum við að göngu- mannakofanum hjá lauginni, en þegar við komum að Laugafelli, var komin hellirigning og þreifandi myrkur afþoku. Við urðum því að tjalda þar á grasflesju milli tveggja gilja, og létum við þarfyrir berast um nóttina. “2 Daginn eftir fóru þeir svo að Laugakofa, en lýsa honum ekki. Laugakofi hefur jafnan verið notaður af ferðafólki, sem var á leið til Snæfells, eða bara til að fá sér náttúrlegt bað, því að slíkt var mjög fágætt á Austurlandi. Fyrir einhverjum áratugum fóru nokkrar stúlkur úr Fellum í skemmtiferð að vetrarlagi með snjóbíl Bergs Ólafssonar inn að Snæfelli. Þá var kveðið: Friðþjófs Nansens ferðaþrá, finnst hér enn hjá svönnum. Laugakofa líst ei á, lúnum Fellamönnum. Til eru myndir af Laugarkofa frá 1935 og um 1950. Á myndinni frá 19353 virðist kofinn ekki vera beysinn, en hreindýrshom ns upp af norðurstafni hans. Um 1950 er enn torfþak á kofanum (etv. með jámi undir) og raðað hellum ofan á þakbrúnina. Dyr em austan á langvegg, sem opnast inn, og lítill gluggi efst á suðurstafni (Múlaþing 25, bls. 78-79). Sumarið 1957 í ágúst gisti ég í kofanum ásamt bræðmm mínum, en við vorum þá á leið að Snæfelli. Höfðum við engan viðlegubúnað og áttum því heldur kalda vist á röku moldargólfi kofans, þó mig minni að þar hafi verið eitthvað af gömlu heyi, enda varð gistingin í styttra lagi, vegna ónæðis er við urðum fyrir (sjá síðar). Þessi gamli kofi er nú fallinn fyrir nokkrum áratugum og orðinn að gróinni rúst, sem stendur á hólkolli rétt fyrir utan og ofan laugina. Suðvestan við kofatóttina stendur hesthús úr bárujárni, og lítil hestagirðing við húsið. Um 1960 var nýr kofi byggður niður við Laugará, þar sem hægara er að fá gott neysluvatn. Hann er einnig járnklæddur, og svipaður hesthúsinu að lögun. Um 1980 fluttu Orkustofnun og Lands- virkjun tvo skúra á staðinn, sem byggðir vom saman uppi á hæð skammt fyrir norðan gamla kofastæðið, og var það kallað Laugarbúðir. Þar er ágætis gistiaðstaða í kojum, eldhús og borðkrókur. Árið 1991 keypti hreppurinn af Landsvirkjun, skála með kojum, sem áður var á Grenisöldu, og var hann settur við hliðina á bámjáms- kofanum niðri við ána. Nýlega hafa þeir sem annast hestaferðir inn á Vesturöræfi keypt báða skálana, og nota þá til gistingar fyrir ferðamenn á sínum vegum. Gangnamenn hafa þar einnig aðstöðu, en hvomgur þeirra er opinn almenningi á summm. Við Laugakofa væri tilvalinn staður fyrir ferðamiðstöð á Snæfellsöræfum, eins og lagt er til í nýlega birtu skipulagi fyrir Miðhálendið. Þar er bæði heitt vatn til hitunar og baða og vel gróið land umhverfis, sem hvomgt er til staðar við Snæfellskála, og þangað liggur fólksbílafær vegur. Stutt er að ganga frá Laugakofa að fallegum fossum í Laugaránni (Slæðufossi og Stuðlafossi), og lítið lengra að stærstu fossunum í Jökulsánni, Faxa, sem er við ármót Laugarár og Jökulsár, og Kirkjufossi, sem er um 3 km ofar í Jökulsá (sjá Snæfellsblað Glettings 1998). Eftir að gamli Laugakofinn féll og nýjar byggingar risu á staðnum hefur ömefnið Laugakofi smám saman þokað fyrir Laugarfelli, sem nú virðist vera aðalheitið á 48
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.