Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1999, Page 94
Múlaþing
1644. En hvor skyldi það hafa verið? Um það
fer tvennum sögum. Kirkjan er nefnilega ýmist
sögð eiga Þorláksbiblíu eða Guðbrandsbiblíu.
Sr. Grímur Bessason lét kirkjuna hafa biblíu
upp í skuld og er hún sögð í kirkjunni 1760. I
vísitasíu það ár er tekið fram að biblían sem
Grímur gaf sé 1. útgáfa (Guðbrandsbiblía
væntanlega) og í góðu standi. I vísitasíu 1763
segir í fyrsta sinn að af bókum eigi kirkjan
Guðbrandsbiblíu en 14 árum síðar (1777) er
fullyrt að um Þorláksbiblíu sé að ræða og að
séra Grímur hafi lagt hana til. Á Þorláks-
biblíuna er ekki minnst framar en Guðbrands-
biblían sögð „defekt“ og rotin árið 1832 og
1850 öll komin í blöð og afskrifuð því hún sé
einskis virði. Vert er að hafa í huga að þessar
biblíur eru ekki ósvipaðar útlits, t.d. eru
titilsíðumar líkar og því er ekki ósennilegt að
þeim hafi verið ruglað saman, sérstaklega ef
bókin hefur verið farin að láta á sjá. Þegar blöð
fara að losna upp úr gömlum bókum em það
undantekningarlítið fremstu og öftustu blöðin
sem hverfa fyrst og hafi farið svo með biblíu
Áskirkju hefur verið erfitt fyrir óvana að sjá
hvor útgáfan þetta var.
Af gripum og áhöldum sem voru í
Áskirkju skv. blöðunum gömlu (1668 -1672)
hefur fátt varðveist svo ömggt sé. E.t.v. ein
patína, kórbjalla, hurðarhringur og ljósalilja.
Jámkarlinn gæti leynst einhvers staðar þótt
margt sé á huldu um þann góða grip. Annað
hefur týnst, orðið eyðileggingunni að bráð
eða glatað uppruna sínum með einhverjum
hætti.27
Lykill að ártölum:
Hér að framan er vitnað í ártöl varðandi einstaka
gripi Áskirkju og ástand þeirra. Stuðst er við
vísitasíur biskupa þangað til vísitasíubækur
Áskirkju taka við.
1397 Vilkinsmáldagi. Fombréfasafn. IV. bindi.
1576 Máldagar Gísla Jónssonar biskups.
Fornbréfasafii, XV. bindi.
1637 Vísitasía Gísla Oddssonar biskups. (Lbs.
1649, 4to.)
1677 Vísitasía Þórðar Þorlákssonar. (Bps.AII.)
1682 Vísitasía sama biskups. (Bps. AII.)
1706 Vísitasía Jóns Vídalíns biskups (Bps. A
II 15).
1727 Vísitasía Jóns Árnasonar biskups (Bps.
AII 19)
1730-1777 Vísitasíubók (Kirkjustóll) Áskirkju
yfir tímabilið 1749-1777 (fremst í þessari
bók hefur vísitasía frá 1730 verið skrifuð).
Varðv. í Þjóðskjalasafni.
1824-1838 Vísitasíubók Áskirkju yfir þetta
tímabil. Varðv. í Þjóðskjalasafni.
1844-1953 Vísitasíubók Áskirkju 1844 til 1956
(síðasta vísitasía er samt frá 1953).
Handritið er í Héraðsskjalasafni Austfirð-
inga.
27Að lokum vil ég færa Hrafnkeli A. Jónssyni, héraðsskjalaverði, þakkir fyrir að veita mér aðgang að viðamiklu efni sem hann var
búinn að draga að sér um Áskirkju. Einnig stend ég í þakkarskuld við Ámastofnun í Kaupmannahöfn vegna þess að þar opnuðust mér
óravíddir 16., 17. og 18. aldar handrita.
92