Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1999, Síða 116

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1999, Síða 116
Múlaþing Ketilsstaða og Kolstaða“(74). Valtýr góði var „dæmdur til að deyðast þar á Völlum, upp á hvaða hátt mundi Sigríður ekki, en það var síðla um haust“(75). Eftir dóms- morðið skall hinn harði vetur á og fór svo að „einungis ein grákollótt ær lifði af á öllu Fljótsdalshéraði fjalls og fjöru á milli (Sigríður sagði, að hún hefði heyrt mörgum bera saman um þennan felli)“ (75). Síðan er frá því sagt að presturinn í Vallanesi lét grafa upp lík Valtýs, höggva af því höndina og hengja yfir kirkjudyr í Vallanesi. Valtýr illi kemur svo í leitirnar og fær makleg málagjöld „og stendur dys hans sömuleiðis á Völlum“(75). Sagan er um ýms atriði nokkuð ónákvæm og ein er hún um að nefna dysjar. Verður reyndar að teljast heldur ólíklegt að sendimaðurinn (Símon) hafi verið dysjaður utangarðs. Torfhildur segir að Sigríður „vissi hvar dysir þessara tveggja manna, sem sagan getur um, standa enn í dag“ (74). Ekkert mun nú kunnugt um þessar dysjar (nema þá beinin við Gálga- klett). Um tímasetningu atburðanna segir Torthildur: „Sigríður taldi líklegt, að þetta hafi gerzt eftir að landið var komið undir konung og alls kyns lagaleysi ríkti, þegar umboðsmenn eða sýslumenn réðu nálega öllu í héruðum sínum og gátu undir yfirskini laga gefið málunum þau úrslit, er þeim sýndist“(74). V-5 Síðast skal hér minnst á þá gerð sögunnar sem skráð er af Runólfi Runólfssyni (1806-1884) bónda í Holtum á Mýrum, í Austur-Skaftafellssýslu. Sagan nefnist í handriti Svonefndir refsidómar eða saga af valtýsvetri og er prentuð í Sagnakveri Magnúsar Bjarnasonar (1950:186-187)7 Þessi gerð má heita verulega frábrugðin þeim sem nefndar hafa verið. Hér er það póstur, Valtýr að nafni, sem mætti á ferð sinni manni sem klæddur var grænni treyju og kvaðst heita Valtýr. Myrti Valtýr þessi póstinn nafna sinn og rændi tösku hans með miklu fé. Litlu síðar mætir hann manni og hefur við hann treyjuskipti. Sá rakst svo á póstinn í andarslitrum og „getur ekki fengið orð af honum, nema honum virðist hann nefna Valtýr á grænni treyjunni“(186). Nú komu aðrir menn, fundu líkið af póstinum, sjá til ferða mannsins í grænu treyjunni og taka hann fastan. Verður hann samskonar píslarvottur og Valtýr í fyrri sögunum og eftir aftöku hans upphefjast gífurleg harðindi sem áttu að hafa varað í þrjú ár (Valtýsvetur er ekki nefndur nema í fyrirsögn). Töldu menn þessi harðindi stafa af því að saklaus maður hefði verið af lífi tekinn. Var því það ráð tekið, að grafa hann upp, taka höfuðskel hans og hengja upp yfir kirkjudyr og vita hvort ekkert teikn gæfist. Loksins sást, að þrír blóðdropar duttu úr höfuðskelinni á einn mann, er í kirkjuna fór, var tekið til greina og hann krafinn til skýrslu. Þetta var þá Valtýr sá, er myrti póstinn og seldi manninum grænu treyjuna (187). Þannig lýkur sögunni og víst má greina hér sömu aðalatriði og áður en þessi saga er hvorki bundin stað né tíma. Þetta er líka eina afbrigði sögunnar þar sem píslar- votturinn er ekki nafngreindur en Valtýs- vetur (sú nafngift hér aukaatriði) virðist þá kenndur við morðingjann eða hinn myrta (póstinn). ^ Síðar var sagan prentuð í hinu nýja safni Jóns Árnasonar 1956 (4:82) og nefnist þar Valtýsvetur.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.