Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1999, Síða 148
Múlaþing
að einum undanskyldum búsettir í Árnes-
og Rangárvallasýslu. Þessi eini Einar
ímason gæti verið úr Skaftafellssýslu.23
Bréfið er afrit talið gert eftir frumriti.
Þann 1. júlí 1523 er Loftur á Öxarárþingi og
vottur að sáttargerð Hannesar hirðstjóra
Eggertssonar og Ara bónda Andréssonar
gerð að forgöngu Ögmundar biskups.
Auk lögmannanna Erlendar Þorvarðs-
sonar og Teits Þorleifssonar rita undir
bréfið auk Lofts, þrír lögréttumenn, einn
Árnesingur, einn Rangvellingur og einn
Borgfirðingur.24
Loftur er staddur í Skálholti 16. október
1523. Þá situr hann í dómi tólf klerka og
tólf leikmanna útnefndum af Ögmundi
biskupi í Skálholti og administrator Hóla-
dómkirkju um kærur hans til Jóns bónda
Einarssonar fyrir úrskurðarrof, hestatöku
fyrir Hóladómkirkju og um óstaðinn
reikningsskap af prófastsdæmi. Hér seilist
Ögmundur biskup til áhrifa í Hólabiskups-
dæmi og sakamaðurinn er Jón sýslumaður
Einarsson á Skarði í Langadal. Dómsmenn-
irnir virðast allir af Suðurlandi og úr
Borgarfirði. Einn þeirra var Brandur Guð-
mundsson bóndi á Leirá, sá sem kærði gjöf
Þorvarðar Guðmundssonar á Egilsstöðum á
Völlum.25 Bréfið er afrit úr Bréfabók
Ögmundar biskups. Sonur Jóns sýslumanns
Einarssonar var séra Gottskálk Jónsson í
Glaumbæ.
Lofts getur næst austur á landi. Það er
1523 þegar gerðir eru máldagar kirknanna á
Eiðum, í Njarðvík og Húsvík. Þeir eru
gerðir í fyrstu yfirreið Ögmundar biskups
um Austfjörðu, en Jón prestur Markússon
lét skrifa eftir boði biskupsins. Það er 29.
desember 1525 á Eiðum sem Jón prestur
lætur skrifa upp máldagana. Þama finnst
Loftur fyrst í hópi Austfirðinga. Bréfið er
varðveitt sem frumrit og í staðfestu afriti.26
í afriti sem talið er úr Bréfabók Ögmundar
biskups og er óársett en meðal bréfa frá
1524 og því skráð í Fornbréfasafni til þess
árs, er dómur tveggja klerka og fjögurrar
leikmanna útnefndur af Ögmundi biskupi
um ákæru biskups til Hákonar Björgólfs-
sonar að frá skutlast hefði kirkjunnar kú-
gildi, þá er Hákon hafði umboð Lofts
Eyjólfssonar yfir Indriðastöðum (í Skorra-
dal).27
í öðru óársettu bréfi úr Bréfabók
Ögmundar biskups þá selur Ögmundur,
Snæbirni Gíslasyni tvær jarðir í Ölfusi fyrir
tvær jarðir á Barðaströnd og Indriðastaði í
Skorradal.28 Snæbjörn Gíslason var frændi
Ögmundar og systursonur Magnúsar bisk-
ups Eyjólfssonar.
í ágripi af Alþingisdómi frá 1526 sem
útnefndur er af Erlendi lögmanni Þorvarð-
arsyni um þegngildi eftir síra Vigfús Run-
ólfsson, er Loftur meðal dómsmanna.29
Dómsmennirnir eru allir af Suðurlandi.
Afrit af bréfi sem Árni Magnússon taldi
frá 1526 og var í Bréfabók Ögmundar bisk-
ups og er um sölu Ögmundar biskups á
„sjálfri höfuðeynni Papey“ til Lofts Eyjólfs-
sonar og gefur Loftur dómkirkjunni í
Skálholti fyrir tuttugu hundruð í Borgar-
höfn í Suðursveit. Meðal votta að bréfinu
sem eru þrír er Erlingur Gíslason bróðir
Snæbjarnar Gíslasonar sem fyrr er
nefndur.30
Hér líkur því sem heimildir segja frá
Lofti Eyjólfssyni ef frá er talið það sem fyrr
er greint um það sem Bréfabók Gísla
biskups Jónssonar segir af jarðabýtingum
Ögmundar biskups Pálssonar.
Ég tel að með nokkurri vissu megi
fullyrða að Loftur hafi verið Vestfirðingur
og þar sé hann búsettur framan af ævi og
lögréttumaður úr Þorskafjarðarþingi. Síðar
lendi hann til Suðurlands með Ögmundi
biskup Pálssyni og á Suðurlandi tel ég að
hann hafi búið í nokkur ár. Það er ekki fyrr
146