Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1999, Page 151
Hamra-Setta
jarðakaupin er gert á Skriðuklaustri 29.
mars 1507, en kaupin fóru fram á Múla í
Skriðdal 30. ágúst 1506.42
Ég tel líklegt að Björn hafi fengið
Eyvindará annað hvort að erfðum eða með
mægðum. Ekki getur Jóns meðal barna
Þorvarðar á Eiðum. Vissulega gat hann
verið til en orðið skammlífur. Jón Þorvarð-
arson heitir prestur sem kemur við skjöl í
Eyjafirði 1502 til 1511. Þegar hann kemur
fyrst við bréf 1502 er hann messudjákn. Ef
litið er á hvar hann er í röð presta þegar
hann vottar bréf eftir að hann er orðinn
prestur þá er ljóst að hann er velmetinn og
væntanlega velættaður. Þá kemur hann við
tvö bréf sem fjalla um Möðruvallamál.43
Þar deildu afkomendur Þorvarðar Lofts-
sonar um eignir og gæti aðild Jóns Þor-
varðarsonar að bréfum um málið verið vís-
bending um vensl hans við málsaðila. Til að
Jón geti verið sonur Þorvarðar Bjarnasonar
þá þarf hann að vera mjög ungur þegar hann
kemur fyrst við bréf 1502, eins og fyrr gat
þá er hann messudjákn þegar hans getur
fyrst og gæti því verið innan við tvítugt.
Ekkert þarf að vera óeðlilegt við það þar
sem mikil prestafæð virðist hafa verið að
lokinni plágunni síðari. Jón deyr að öllum
líkindum 1511 og hefur þá verið um þrítugt.
Þar sem þá var á lífi og lengi eftir það
Margrét Þorvarðardóttir þá var þess ekki að
vænta að börn Jóns Þorvarðarsonar hlytu
nokkuð í arf eftir Þorvarð Bjarnason, en
gjafir gat hann gefið ef þeir Björn og
Arnfinnur voru sonarsynir hans.
Ég fæ ekki betur séð en Björn á
Eyvindará hafi verið í miklum kærleikum
við Margréti Þorvarðardóttur, hann er
viðstaddur á Eiðum þegar Margrét seldi
Birni „skafin“ Jónssyni sem giftur var
Hólmfríði Þorvarðardóttur hálfsystur hennar
Njarðvík.44 Önnur skýring kann að vera á
eignarhaldi Björns á Eyvindará. Vitað er að
kona Björns var Þórunn Einarsdóttir frá
Hofsstöðum í Helgafellssveit. Björn átti
a.m.k. eitt barn sem ekki var barn Þórunnar,
það var sonur sem hét Bjami. Bjami var
örugglega skilgetinn og þá af fyrra
hjónabandi Bjöms. Bjami átti í deilum við
Þórunni Einarsdóttur eftir lát Bjöms og var
það staðfest með dómi á Ketilsstöðum á
Völlum5.júní 1562.45
Þar kemur í ljós að fé hafði gengið af
Birni þannig að við dauða hans var föður-
arfur Bjarna allur uppurinn. Móðir Bjarna,
fyrri kona Björns er óþekkt. Fitjaannáll, sem
skrifaður er af Oddi Emkssyni sem var
afkomandi Margrétar Þorvarðardóttur á
Eiðum, kallar hana „hústrú Margréti
yngri.“46 Hvergi er þess getið annars staðar
að tvær hafi heitið dætur Þorvarðar Bjarna-
dóttur með Margrétar nafni.
Ekki er fráleitt að fyrri kona Bjöms á
Eyvindará hafi verið Margrét eldri Þor-
varðardóttir. Hún hefur þá dáið ung og það
var eðlilegt að nafn hennar félli í gleymsku
þar sem Margrét ríka á Eiðum var mjög
áberandi og að auki þá hét annar tengdasonur
Þorvarðar Bjamasonar Björn Jónsson. Ég
nefni þessar tilgátur báðar og tel þær athygli
verðar.
Að öllu þessu athuguðu er það mitt álit að
að Björn á Eyvindará hafi átt Margréti
Þorvarðardóttur fyrir fyrri konu.
Faðir hans tel ég að hafi verið Jón
Sigurðsson sem lengst var búsettur við Faxa-
flóa en varð kæmeistari* Stefáns biskups
Jónssonar. Jón var bróðir Narfa sýslumanns
Sigurðssonar og Solveigar sem var móðir
Björns skafins. Ef þessi tilgáta stenst þá hafa
þeir Bjöm á Eyvindará og Bjöm skafinn
verið systkinasynir. Rökin fyrir því að Jón
Sigurðsson hafi verið faðir þeirra Björns og
Amfinns Jónssona eru nokkur. Ég mun ekki
gera grein fyrir þeim hér þar sem það breytir
engu um málefni Sesselju Loftsdóttur.
149