Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1999, Page 164
Múlaþing
Sumarstarfsemi
Sumarsýningar
Fastasýning Minjasafnsins tók svolitlum breytingum fyrir sumaropnun. Skipt var út munum í einum
sýningarbásanna. Þar sem áður höfðu aðallega verið ýmsir gripir sem glatað höfðu sögu sinni í gegnum
óvissuár Minjasafnsins var stillt upp munum úr búi bræðranna Arna, Bjöms og Eiríks Sigfússona frá
Giljum í Jökuldal. Bræðurnir létust allir á yfirstandandi áratug en tóku við búskap að Giljum eftir móður
sína og tengdaföður. Enginn þeirra giftist og áskotnaðist Minjasafninu úrval muna af heimili þeirra sem
þeir færðu safninu sjálfir. Segja má að gripirnir gefi mynd af bæjarbrag alþýðuheimilis til sveita um miðja
þessa öld.
Að öðru leyti var sýningarsalur yfirfarinn og nokkrar minni breytingar, viðbætur og tilfærslur gerðar.
Formleg sumarsýning Minjasafnsins bar titilinn „Geirsstaðir í Flróarstungu - stórbýli á landnáms- og
söguöld". Sýningin skýrði fomleifarannsókn sem Steinunn Kristjánsdóttir stýrði sumarið 1997. Gerð var
grein fyrir vinnuaðferðum við rannsókn af þessu tagi, gestir leiddir í gegnum jarðlögin út frá teikningum
og sýni og greiningarniðurstöður af ýmsu tagi gat að líta í sýningarborðum. Jarðvegssnið tekið á vettvangi
rannsóknarinnar gaf lifandi mynd af því efni sem fornleifafræðingar hafa úr að moða þegar dregnar eru
ályktanir um aldur og eðli rústa í jörðu. Sýningin stóð til loka sumars.
Tóvinna
Sunnudagseftirmiðdaga mættu fulltrúar eldri kynslóðarinnar í baðstofuna í sýningarsal, tóku til við
ullarvinnu og skýrðu fyrir gestum. Ahugasamir, einkum börn, fengu tilsögn í að kemba og stíga rokk, og •
sáu ullina breytast í band, tilbúið fyrir prjónana. Gamla fólkið gaf allt vinnu sína en sérstaklega ber að
nefna að Þórólfur Stefánsson mætti næstum alla sunnudaga sumarsins. Olafur Sigurðsson, Framnesi,
Reyðarfirði yfirfór rokkana fyrir notkun safninu að kostnaðarlausu.
Hestakerruferðir
Alla miðvikudagseftirmiðdaga í júlímánuði, eða 5 skipti, var boðið upp á hestakerruferðir í Lóma-
tjamargarði. Tímasetningin var valin þannig að þessa daga stóð Vinnuskóli Austur-Fíéraðs fyrir ýmsum
uppákomum í garðinum. Féllu hestakerruferðirnar mætavel inní þá dagskrá og reyndust þegar upp var
staðið lang vinsælastar af því sem í boði var. Helgi Valmundsson kúskur og hestur hans höfðu aldrei fyrr
haft svo mikið að gera í fólksflutningum á vegum safnsins og voru að vonum ánægðir.
Sveitadagur
I lok ágúst halda Héraðsbúar árlega uppskeruhátíð sína Ormsteiti og í þetta sinn tók Minjasafnið þátt
með sveitadegi þar sem fjöldi sjálfboðaliða kom í heyskap með gamla laginu auk þess sem sem unnið var
við fjölbreytt handverk innan dyra. Sláttumenn slógu með orfi og ljá, svo var tekið til við að raka í garða
og binda í bagga sem loks voru hengdir á klakka. Klyfjaðir hestarnir voru svo teymdir svolítið um garðinn.
A meðan var boðið upp á harðfisk, sem barinn var með steinsleggju mikilli, og mysu til að væta
kverkarnar. Uti á torfþaki við húsið var mó hlaðið í strýtu eins og tíðkaðist til að þurrka hann.
Innandyra var tóvinnan í fullum gangi auk þess sem band var litað með jurtum og gjarðir brugðnar af
list. Fjöldi gesta lagði leið sína á túnið við Safnahúsið til að fylgjast með, og ef til vill hjálpa til, og lét ekki
hjá líða að fara innfyrir og skoða safnið og það sem þar fór fram.
162