Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1999, Blaðsíða 165
Ársskýrslur
Gestafjöldi
Eins og fram kom í inngangi var sumarið
heldur dapurt hvað ferðamennsku varðar
vegna lélegs tíðafars. Minjasafnið fór ekki
varhluta af fækkun ferðamanna eins og tölur
um gestafjölda bera með sér. Á árinu öllu
heimsóttu safnið 1920 manns skv. gestabók. Þar af eru börn 203 og skólahópar 227. Utlendingum fjölgaði
lítillega frá fyrra ári og töldu 369 manns eða 19,2% gesta. Af þessu er ljóst að hinn íslenski ferðamaður
sneiddi hjá Austurlandi þetta sumar en útlendingar eru yfirleitt með fyrirfram skipulagt fn og skiluðu sér
því í svipuðum mæli og fyrr. Til að skýra þetta betur skal bent á að hlutfall erlendra gesta árið áður var
aðeins 8%.
Sú athygli sem safnið hlaut opnunarárið 1996 og á afmælisári Egilsstaða 1997, með sýningunni
„Gömlu dagana gefðu mér“ stuðlaði eflaust að því að Héraðsbúar heimsóttu safnið í mun meira mæli en
þeir gerðu 1998. Ljóst er af fenginni reynslu að sumarsýning safnsins um fornleifauppgröftinn að
Geirsstöðum höfðaði ekki til hins almenna borgara hér um slóðir. Til þess að tryggja að heimamenn sæki
safnið reglulega heim þarf að hafa eitthvað á boðstólum sem sérstaklega höfðar til þeirra. Þetta geta verið
einstakir viðburðir eða munir sem skipa háan sess í hugum Austfirðinga.
Evrópusamstarf
Á grundvelli rannsóknarstarfs Minjasafnsins var því boðin á árinu 1997 aðild að umsókn stofnanna í
8 Evrópulöndunt um styrk úr Raphaelmenningaráætlun Evrópusámbandsins. Skoskur styrkþegi úr
Leonardoáætlun Evrópusambandsins starfaði með Steinunni1) að uppgreftrinum að Geirsstöðum 1997 og
mælti með því við forráðamenn bresks fyrirtækis sem hafði umrædda umsókn í bígerð að Minjasafnið yrði
fengið til samstarfs. Minjasafn Austurlands þáði aðild að styrkumsókninni og hlaut hún hámarks-
fjárveitingu úr Raphaeláætlun ES snemma árs 1998. Þá lá fyrir að samstarfsverkefnið yrði að veruleika.
Það hafði hlotið yfirskriftina Preserving and Reconstructing Ancient Buildings of Wood, skammstafað
PARABOW. Á íslensku; "Varðveisla og endurgerð fornra bygginga úr viði". Upplýsingar um verkefnið og
framvindu þess má finna á heimasíðu PARABOW á veraldarvefnum: www.grampus.co.uk/parabow.
Löndin átta sem aðild eiga að verkefninu eru Island, Danmörk, Italía, Finnland, Þýskaland, Slóvakía,
Skotland og Irland. Stofnanirnar sem löndin tefla fram eru fjölbreyttar og er Minjasafnið til dæmis eina
safnið. Samnefnarar á áhugasviði og starfsemi stofnananna eru auðvitað nokkrir og þeir helstu eru; saga
og menning snemm-miðalda, fræðsla og fagþjálfun, áhugi á því sem tengir löndin saman (Víkingar, Saxar)
og timbur og nýting þess fyrr á tímum, sérstaklega til húsbygginga.
Stofnanirnar leggja til sérfræðinga á ýmsum sviðum og eru þau helstu þessi: Minjavarsla, skógfræði,
græn ferðamennska, námsefnis- og hugbúnaðargerð, umhverfisfræði, húsagerðarlist, fomleifafræði,
„lifandi“ fomleifafræði, saga og fornt handverk.
Þessi samsetning gefur auðvitað ótal möguleika varðandi þverfaglega samvinnu en markmið
PARABOWverkefnisins er söfnun og miðlun þekkingar á fornum aðferðum við notkun timburs í
húsagerð. Sérstök áhersla er á aðferðir og tækni sem beita má þegar um viðgerðir eða endurgerðir
sögulegra húsa er að ræða og er áformað að gefa út námsefni á háskólastigi um þetta efni auk ítarlegrar
^Fyrir fomleifarannsókn Steinunnar Krístjánsdóttur er gerð greinfyrir í þessu hefti Múlaþings og heftinu ífyrra.
163