Jökull - 01.12.1972, Side 81
Hlaupið í Teigadalsjökli í Svarfaðardal 1971
HELGI H ALLGRÍ MSSON ,
NÁTTURUGRIPASAFNIÐ Á AKUREYRI
ABSTRACT
Late May 1971 a small valley glacier, Teiga-
dalsjökull, in Svarfadardalm, Northern-Iceland
bursted and rushed 100 to 150 m forward. The
glacier is 1 km long, 500 m wide and extends
from the bottom of Teigadalur at 900 m alti-
tude doiun to 740 m a. s. I. The article de-
scribes the glacier two months after the burst,
which seems to have taken place very suddenly,
possibly lasting only several minutcs.
Svo má segja, að jöklar í fjallgarðinum milli
Eyjafjarðar og Skagafjarðar séu óteljandi, þótt
flestir séu þeir smávaxnir miðað við hina stóru
bræður í suðri. Á utanverðum Tröllaskaga má
finna smájökla í flestum dalbotnum og skál-
um, ef botn þeirra liggur um eða yfir 800 m
hæð. Sumir þessara jökla eru þaktir grjóturð
og mjög grjótblandaðir og eru því sannkallaðir
grjótjöklar (rock glaciers). Eru þeir að sjálf-
sögðu lítt áberandi í landslaginu, og oft erfitt
að greina þá frá gömlum jökullegum, enda eru
þeir yfirleitt ekki merktir á kortum.
í öllum dalskorunum, sem ganga suður úr
Svarfaðardal innanverðum, má finna dálitla
jökla innst í dalbotnunum. Þessi jökulkríli láta
að öllum jafnaði lítið yfir sér og eru naumast
þekkjanleg frá fönnunum umhverfis, enda hef-
ur hinum dönsku herforingjum ekki dottið í
hug að setja þá á kort. Það vakti því töluverða
athygli, þegar það fréttist snemma á síðastliðnu
sumri, að einn þessara smájökla, jökullinn í
Teigadal, hefði hlaupið, enda fylgdi það sög-
unni, að jökulstykkin væru fyllilega á borð við
það, sem gerist í meðalstóru Skeiðarárhlaupi.
Rétt fyrir hvítasunnuna, þann 28. (eða 29.)
maímánaðar 1971, tók fólkið á bæjunum Mel-
um og Urðum eftir óvenjulegum lit á vatninu
í Teigaránni, en vatni er veitt úr á þessari í
heimarafstöð á Melum, og fellur það í stokkum
í gegnum túnið rétt við bæinn. Vatnið í Teig-
aránni var allt í einu orðið rauðgult á litinn
og ákaflega leirblandið, en vöxtur var þó ekki
mikill í ánni fram yfir það, sem venjulegt er í
vorhlákum.
Undanfarna daga hafði verið fremur svalt í
veðri, þótt maímánuður væri annars hlýr. Dag-
ana 25.-26. var slydduhríð og töluverð úrkoma.
Þann 28. snérist til sunnanáttar og hlýnaði og
Myncl 1. Þverskurðarmynd
af Teigadalsjökli. Hugsanleg
lögun jökulsins fyrir hlaup-
ið er sýnd með brotinni
línu. Jökullinn er um 1 km
á lengd og um 500 m á
breidd.
Fig. 1. A schematic tran-
section of Teigadalsjökull.
The probable position of
the glacier before the surge
is indicated by a broken
line. The glacier is about 1
km long and about 500 m
wide.
JÖKULL 22. ÁR 79