Jökull - 01.12.1972, Síða 87
Tungnárjökull til hægri.
Tungnárjökull to tlie right.
Mynd 3. Hamarslón 13. ágúst 1970. —
iíöldukvíslarjökull í baksýn.
Köldukvíslarjökull
in tlie background.
Fig. 3. Hamairslón Lake.
Photo S. Freysteinsson, Aug. 13, 1970.
Mynd 4. Hvítalón frá SV, 13. ágúst 1970. Örin bendir á efstu strandlínur.
Fig. 4. Hvitalón (lake sitej seen from SIV. The arrow points to the highest shorelines.
Photo S. Freysteinsson, Aug. 13, 1970.
Útrennsli Hamarslóns er þá sunnan við Grá-
öldu og meðfram Tungnárjökli í Hvítalón, ef
til vill undir jöklinum efst. Útrennsli Hvítalóns
er meðfram Köldukvíslarjökli, sennilega fram-
an við jökulöldur við röndina.
Næstu heimildir um lónin eru kort banda-
ríska hersins, gerð eftir loftmyndum teknum 30.
ágúst 1945. Köldukvíslarjökull hefur þá hopað
frá 1939, og er Hvítalón tómt og afrennsli þess
innan við jökulöldurnar við röndina. Tungnár-
jökull er nýhlaupinn og hefur gengið næstum
upp á Gráöldu og lokað útrennsli Hamarslóns.
Lónið er barmafullt og útrennsli þess til norð-
urs og niður meðfram Köldukvíslarjökli. Jökull-
inn gengur langt út í lónið að sunnan, svo að
það er ekki mikið að flatarmáli.
Bandaríski herinn tók aftur loftmyndir í
ágúst 1960. Tungnárjökull hefur þá liopað
nokkuð og afrennsli Hamarslóns flutzt að norð-
urlilíð Gráöldu og suður með henni að Tungn-
árjökli og undir jöklinum í Hvítalón. Köldu-
kvíslarjökull hefur gengið fram síðan 1945, og
er nú vatn í Hvítalóni og útrennsli þess fram-
an við jökulöldurnar. Það er þó mun minna að
JÖKULL 22. ÁR 85