Jökull

Ataaseq assigiiaat ilaat

Jökull - 01.12.1972, Qupperneq 89

Jökull - 01.12.1972, Qupperneq 89
Mynd 6. Sunnan við Syðri-Hágöngu. Horft til vesturs. Fig. 6. Soutli of Soutliern-Háganga. View to- wards ivest. Photo S. Freysteinsson, Aitg. 14, 1910. Af framansögðu er ljóst, að breytingar á vötn- um öllum í Hamarskrika hafa verið mjög tíðar á undanförnum áratugum. Hvítalón fyllist, þeg- ar Köldukvíslarjökull gengur fram og Hamars- lón, þegar Tungnárjökull lileypur. Tungnár- jökull hefur hlaupið á 3—4 áratuga fresti í seinni tíð. Köldukvíslarjökull er sennilega sama eðlis. Þar er þó aðeins vitað, að hann gekk fram einhvern tíma rnilli 1945 og 1960 (Thorarinsson 1964; Freysteinsson 1968). Jökulhlaup úr Hvítalóni eða Hamarslóni eru vafalaust árviss um nokkurra ára skeið í senn, þegar jöklarnir eru í vissri stöðu. Á mynd 5 eru sýnd vatnsrit flóðtoppa í Köldukvísl við Sauðafell og Brúargljúfur 1964—1967, sem vafa- laust eru jökulhlaup. Vatnsmagn í þessum flóð- um er lítið og tæmingartíminn það langur, að mesta rennsli verður ekki meira en algengt er í leysingum. Hæð frá botni Hvítalóns upp að efstu strand- línu er 33 m skv. lauslegri mælingu þann 13. Mynd 7. Kaldakvísl við Syðri-Hágöngu. Grjótstíflan til vinstri uppi við fjallið. Fig. 1. Kaldakvisl-river at Southern Háganga. The na- tural rock dam is at the mountain to the left. Photo S. Freysteinsson, ágúst 1970. Með hliðsjón af ameríska kortinu má ætla, að rúmtak þess, þegar það var fullt, hafi verið 10—12 Gl. Ef 12 G1 lón tæmist á 24 tímum, verður mesta rennsli 250—300 m3/s. Ef tæmingartiminn er styttri, verður toppurinn hærri í öfugu hlutfalli við tæmingartímann. Nú er hugsanlegt, að bæði lónin hlaupi samtímis, en samt er varla við því að búast, að flóðtopp- urinn verði nema nokkur hundruð m3/s. Að lokum má geta þess, að virkt eldstöðva- belti virðist ganga undir Köldukvíslarjökul. Gos var í Tröllagígum sunnan og suðvestan Mókolla árin 1862—1864 (Thorarinsson 1972). Svæðið suðvestan við Hvítalón hefur nýlega verið á hreyfingu. Þar eru sprungur og misgengi gegn- um auðveðruð yfirborðsjarðlög. Jökulhlaup vegna eldsumbrota eru þess vegna hugsanleg. FARVEGIR KÖLDUKVÍSLAR VIÐ SYÐRI-HÁGÖNGU Meðfram norðurbrún Hágönguhrauns milli Syðri-Hágöngu og Skrokköldu eru miklir far- vegir og gljúfur sums staðar. Pálmi Hannesson (1958) getur um þessa farvegi og telur þá eftir leysingarvatn úr suðurhlíð Hágöngunnar, enda rennur það þessa leið og niður Þúfuverskvísl, sem fellur til Þjórsár. Nánari athugun sýnir þó, að Kaldakvísl hefur einhvern tíma runnið þarna. Undir suðurhlíð Syðri-Hágöngu er gljúf- ur milli hrauns og hlíða. Sunnan við gljúfrið er stallur í hrauninu, og sunnan við hann er Irraunkambur, sem heldur áfram austan við Köldukvísl nokkuð norður með fjallinu. Stall- urinn er vatnssorfinn, sjá mynd 6, og jafnvel uppi við Köldukvísl, þar sem hann er mjög hár, er vatnsborið stórgrýti. Gljúfrið meðfram fjallinu nær alveg upp að Köldukvísl og endar þar með grjótstíflu, sjá mynd 7 og 8. Króna stíflunnar er 2—3 m yfir venjulegu vatnsborði. JÖKULL 22. ÁR 87
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Jökull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.