Jökull


Jökull - 01.10.1998, Page 67

Jökull - 01.10.1998, Page 67
1910 9/8 Dr. Max Trautz og Tómas Snorrason gengu þá á Kverkfjöll austari. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem vitað er að gengið hafi verið á fjöllin.72'96' 1912 19/6 J.P. Koch, A. Wegener, A. Lundager, Sigurður Símonarson og Vigfús Sigurðsson fóru á hesmm úr Hvannalindum á Brúarjökul, suður að Esju- fjöllum, að Veðurárrönd og Þverártindsegg. Þann 23. héldu þeir af stað til baka og eftir 18 tíma ferð voru þeir komnir norður af jöklinum á svipuðum slóðum og þeirlögðu upp.46'78' 1912 26/6 J.P. Koch, A. Wegener, Sigurður Sím- onarson og Vigfús Sigurðsson fóru, eftir hvíld að lok- inni Esjufjallaferð, á Kverkfjöll vestari en komust þar lítt um vegna veðurs.46'78- 1913 ?/7 Gekk dr. Andreas Heusler á Hvanna- dalshnúk, frá Sandfelli og sömu leið til baka. Hverjir fylgdarmenn hafa verið mun tæpast öruggt. Jón Páls- son, Svínafelli, hefur minnst á ferð þeirra Ebelings 1909 en minnist ekki Heuslers 1913 (sem gæti verið tilviljun í því sambandi). Heusler, sem sjálfur var þaulvanur fjallgöngumaður, mun sennilega geta hafa fengið fylgdarmenn í Sandfelli, (e.t.v. Runólf As- mundsson). Fylgdarmaður Heuslers um landið þetta ár var Sigurður Sumarliðason.1939 1916 6/7 Guðmundur Hlíðdal, Runólfur Ásmunds- son o.fl. gengu á Hvannadalshnúk, frá Sandfelli og sömu leið til baka.1939 1919 26/7 Einni stund fyrir miðnætti lögðu nokkrir ungmennafélagar úr Öræfum af stað frá Sand- felli áleiðis á Hvannadalshnúk. Það voru þeir Jón Páls- son Svínafelli, Oddur Magnússon Skaftafelli, Jón Oddsson Hofi, Páll Þorsteinsson Hofi, Þorleifur Páls- son Hofi, Magnús Þorsteinsson Hofi, Karl Magnús- son Hofi, Þórhallur Jónsson Fagurhólsmýri, Sigurður Arason Fagurhólsmýri og Þorsteinn Einarsson Fagur- hólsmýri. í frásögn Jóns Pálssonar segir svo: „Fyrsta verk okkar þá við komum upp, var að draga íslenska fánann á stöng [bundnar saman stengur til að úr yrði hæfilega há fánastöng] og blakti hann í fyrsta sinn þar. Það var hálftími, sem við stóðum þar við. í raun og veru mátti það ekki dragast lengur að fáninn okkar væri látinn blakta þar á hæsta tindinum, sem vottur um sjálfstæði lands vors.“ Þarna voru sungin nokkur ættjarðarljóð og eitt ljóð sem Jón Pálsson hafði samið í tilefni þessarar ferðar en er nú því miður glatað. Þess skal getið að þennan dag, sem lagt var af stað á jökulinn, höfðu þeir allir verið í heyhirðingum og hafði svo verið um alla sveitina. Annars hefðu mun fleiri farið.19'39'90' 1919 27/8 Hakon Wadell og Erik Ygberg, ungir, sænskir jarðfræðingar, lögðu upp frá Kálfafelli í Fljótshverfi, norður Síðujökul og þaðan á Grímsfjall. Höfðu þeir með sér þrjá hesta, mat og fóður til þriggja daga og var allur búnaður þeirra á sleða sem hestamir drógu. Á jökli sóttist þeim ferðin seint í fyrstu vegna ösku sem borist hafði þangað frá Kötlugosinu árið áður en þegar á nýsnævi kom gekk allt betur. Á leiðinni á Háubungu gerðu þeir ýmsar athuganir og nú kom öskulagið sér vel því eins og Waddell segir „Af ösk- unni mátti sjá hvað safnast hafði af snjó yfir árið á hjamjöklinum og hversu mikið hafði bráðnað á leys- ingasvæðinu." Á Grímsfjall komu þeir að kvöldi hins 31. ágúst og litu þá yfir Grímsvatnaöskjuna fyrstir manna svo óyggjandi sé. Þessir ungu menn hafa haft ótrúlegan skilning á eðli Vatnanna því Wadell segir „Hin eldvirku upptök jökulhlaupanna voru fundin og þar með megintakmarki ferðarinnar náð.“ Hann getur þess einnig að „ekki sé útilokað að við stöndum hér andspænis sigdæld með eldvirkni sem takmarkast við jaðra hennar“ og „að hér sé ekki um að ræða eitt, heldur nokkur gosop.“ Þar sem matarbirgðir þeirra og hey handa hestunum var orðið af skomum skammti urðu þeir, eftir rúman sólarhring, að halda áfram austur jökulinn. Þann 4. september, þegar þeir voru komnir í drög Heinabergsjökuls var færðin orðin það slæm að þeir urðu að skilja sleðann eftir ásamt öllum þyngsta búnaði þeirra og að morgni þess 5. voru þeir komnir niður af jöklinum. Næstu tvær vikur voru þeir við rannsóknir á jaðarsvæðum Hornafjarðarjöklanna en þann 18. september héldu þeir á ný upp Heinabergs- jökulinn, og nú í fylgd Dagbjarts Eyjólfssonar bónd á Heinabergi, til þess að sækja sleðann og þær föggur sem þeir höfðu skilið eftir þar. Þá vildi ekki betur til en svo að á skall linnulaus stórhríð sem stóð næstu tvo JOKULL, No. 45, 1998 65
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.