Jökull


Jökull - 01.10.1998, Page 70

Jökull - 01.10.1998, Page 70
daga með þeim afleiðingum að mestur hluti búnað- arins, ásamt tveimur af fjórum hestum þeirra, tapaðist og máttu þeir þakka fyrir að komast hraktir til byggða á ný 32-33-96-97-111. 1921 21/7 í bréfi dagsettu 8/2 1960 sem Skarp- héðinn Gíslason bóndi á Vagnsstöðum sendi Jóni Ey- þórssyni segir hann „Fyrstu ferð mína hjer inná jökul mun ég hafa farið einn 21. júlí 1921, og þá uppá tind- inn norðvestur af Birnudalstindi, og mun sá tindur vera talinn vera Birnudalstindur af „Generalstaben“ eða dönsku landmælingamönnunum en þetta er skökk staðsetning á Birnudalstindi, og þarf sem fyrst að lagfærast það er staðsetjast rjett á næstu kort af þessum stað.“ "■ 1923 7/8 Guðmundur G. Bárðarson, Pálmi Hannesson og Th. Bjerring Pedersen fóru frá Svartár- koti suður um Ódáðahraun á Vatnajökul til þess að svipast um eftir gosstöðvum Vatnajökulsgossins frá árinu áður. Þeir fóru frá Gæsavötnum á jökulinn og voru komnir á norðanverða Bárðarbungu þegar á þá skall stórhríð með frosti og fannburði. Héldu þeir þá til norðurs og komu af jöklinum á Dyngjuháls. 73 80 1925 16/8 Ruthven Stuart, Jón Pálsson frá Svínafelli og Tómas Snorrason gengu frá Sandfelli á Hvannadalshnúk og sömu leið til baka.6 1926 15/7 Helgi Guðmundsson, Unnar Bene- diktsson og Sigurbergur Ámason, þrír ungir Homfirð- ingar sem ákváðu að fara í ferðalag yfir Vatnajökul því „aumt sé að eyða allri ævi á þann veg, að einskis sé að minnast að æviferli gengnum annars en litlauss hvers- dagslífsins.“ Þeir lögðu á jökul innst á Hálsaheiði, fóm skammt sunnan Kverkfjalla og af jökli vestur undir Kistufellskrika. Eftir dvöl hjá vinum og frændfólki í Eyjafirði héldu þeir til baka sömu leið og komu af jökli á Gæsaheiði þann 28. júlí.31- 1926 2/8 Þann dag héldu þeir Fr. le Sage de Fontenay þáverandi sendiherra Dana á Islandi og Gunnlaugur Briem, laganemi, (síðar ráðuneytisstjóri) úr tjaldstað í Heljargjá við Vatnsleysuöldur og var för- inni heitið að Kerlingum í vestanverðum Vatnajökli. Þeir höfðu komið þangað ríðandi kvöldið áður eftir tíð- indalitla ferð úr Illugaveri og notið leiðsagnar Guðjóns Jónssonar bónda í Ási og áður fjallkóngs Holtamanna. Tilgangurinn með þessu ferðalagi var að kanna hið lítt þekkta svæði sem afmarkast af Köldukvísl, vestan- verðum Vatnajökli og Tungnaá. Þeir lögðu af stað gangandi upp úr klukkan átta um morguninn en Guðjón varð eftir og gætti hestanna. Héldu þeir yfir hraunið, sem Fontenay gaf ýmis nöfn svo sem Galdra- hraun, Gráahraun og Mosahraun, í átt að norður enda Bláfjallanna og þar upp á hæsta hnúkinn því Fontenay hélt að „fjöllin væru áföst jöklinum.“ Svo var ekki heldur tók við hraunslétta „nálægt 5 km breið“ yfir að Jökulgrindum. Rétt áður en að Grindun- um kom varð fyrir þeim upptakakvísl Tungnaár og óðu þeir hana í þremur, rúmlega hnédjúpum álum. Ána kallaði Fontenay Ulfaldakvísl eftir lægri Kerlingunni sem hann nefndi Ulfalda. Við jökuljaðarinn vom tvö allstór vötn sem hann skýrði Gunnlaugsvatn og Sigríðarvatn. Ofan í það fyrmefnda og suður með því að austan, féll skriðjökulstunga sú er rann milli Kerl- inganna. Sameinaðist hún Tungnaárjökli svo að hærri Kerlingin var í raun jökulsker. Þeir gengu á jökulinn, eftir haftinu milli vatnanna, austur og norður fyrir hærri Kerlinguna sem Fontenay kallaði Ljónið. Síðan halda þeir niður Sylgjujökul og eftir Mosahrauni í Heljargjá. Þangað koma þeir svo á öðmm tímanum um nóttina, eftir 15 stunda göngu um eitt allra fáfamasta svæði landsins.25- 1927 7/9 Ef ekki þótti fært yfir Jökulsá á Breiða- merkursandi var það venja að fara fyrir hana á jökli annað hvort á undirvarpi ef svo hagaði til eða hinn lengri jökulveg sem oftar en ekki gat verið erfiður og illfær vegna hryggja og sprungna. Framangreindan dag komu austan að ánni þau Þorlákur Þorláksson, póstur, Jón Pálsson, kennari, Þórhallur Bjarnason, bóndi, Steinunn Þórarinsdóttir og Sveinn Einarsson, frá Breiðabólsstað og Þorsteinn Jónsson, bóndi og Þór- unn Þórarinsdóttir frá Sléttaleiti. Þegar skammt hafði verið farið á jökli varð leiðin torsótt og þurfti því að höggva ísinn. Fóru fjórir karlanna til þess verks en einn gætti hestanna. Stóðu þeir á brattri brún ofan við útfall árinnar og var Jón Pálsson nýkominn til þeirra þegar jökullinn brast. Fór Jón þar niður með hest- 68 JÖKULL, No. 45,1998
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.