Jökull


Jökull - 01.10.1998, Page 71

Jökull - 01.10.1998, Page 71
unum. Er skemmst frá því að segja að sex hestanna náðust, þar af þrír dauðir en Jón og pósthesturinn fundust ekki fyrr en vorið eftir þegar bróðir Jóns Bjöm Pálsson, bóndi á Kvískerjum, sá höfuð pósthestsins standa út úr ísstálinu.15 1928 10/6 Þá gengu þeir Þorsteinn Guðmundsson, Reynivöllum, Þórhallur Bjarnason, Breiðabólsstað, Sveinn Einarsson, Neðribæ, og Ingvar Þorláksson, Hala, frá Reynivöllum upp Þverárfjall um Fellsár- jökul, og vestur eftir jökli þeim er liggur milli Þverár- tindseggjar og Veðurárdals innri, í Mávatorfu sem þeir kölluðu Þorsteinstorfu og dvöldu þar í fjóra tíma við náttúmskoðun og eggjatöku. Síðan héldu þeir sömu leið til baka í byggð. 114 1932 17/6 Guðmundur Jónsson bóndi, Þorsteinn póstur og Jóa vinnukona fylgdu tveimur Þjóðverjum, dr. Helmut Verleger og dr. Max Keil, frá Hoffelli á jökul. Fóru þau inn Hoffellsdal, um Vesturdal og á jökul við Goðaborg. Þar skildu Hoffellingarnir við ferðamennina en áður gengu þau þrjú á Goðaborgina og héldu að því loknu til byggða. Eftir því sem best er kunnugt mun þetta vera í fyrsta sinn sem gengið er á Borgina. Þjóðverjarnir fóru þar upp daginn eftir og rómuðu mjög útsýnið. Síðan gengu þeir að Kverk- fjöllum en þar skall á þá illviðri og eftir fjögurra daga bið ákváðu þeir, meðal annars vegna minnkandi matarbirgða, að snúa aftur. Fóru þeir sömu leið og voru tvo daga suður yfir jökulinn.41 1932 24/6 Þann dag klukkan 8 að morgni lögðu þeir Baldur Johnsen og Þorsteinn Guðmundsson bóndi upp frá Reynivöllum í Suðursveit áleiðis norður yfir Vatnajökul. Gengu þeir upp Hólmafjall, um Gabbródal og jökulinn vestanhallt við Þverártindsegg- ina. Þegar þeir voru komnir á móts við efstu tindana (1554 m) skildu þeir farangurinn eftir og gengu þar upp. Höfðu þeir vítt útsýni yfir sveitir og norður jökul til Kverkfjalla. Eftir því sem gerst er vitað mun þetta vera fyrsta ganga á Háeggina. Vegna sprungna komust þeir ekki niður í Svöludalinn, sem þeir nefndu svo, og höfðu því náttstað í Veðurárdal. Þaðan héldu þeir svo í jökulsker í austurhluta Esjufjalla, hrepptu þar hið versta veður sem að endingu knúði þá til þess að snúa við til byggða.63 1932 26/6 Helgi Arason og Páll Björnsson, Fag- urhólsmýri, gengu þá á Öræfajökul. Fóru að heiman frá sér upp með Sléttubjörgum og á jökulbrúnina við Hnappinn (1851 m). Gengu þeir síðan spölkorn vestur eftir sléttunni þar sem þeir sneru við og héldu sömu leið til baka.39 1932 1/7 B.B. Roberts, F.W. Anderson, J.A. Beckett, P. Falk, W.F.S. Fleming og W.V. Fewis skip- uðu leiðangur Cambridge háskóla. Verkefni hans var að „mæla þykkt Vatnajökuls og gera nákvæmar mæl- ingar og athuganir á strandlengjunni sunnan jökulsins og öræfunum norðan hans.“ Þeir lögðu á jökulinn upp úr Staðardal og lentu í miklum erfiðleikum, fyrst vegna veðurs og síðan krapa. Einnig var flutningur þeirra mikill eða um 100 kg á mann. Því er ekki að undra þótt ferð þeirra að Kverkfjöllum hafi tekið 14 daga. Af ýmsum orsökum fóru vísindaiðkanir þeirra meira og minna úr skorðum, tæki það sem þeir ætluðu að nota til þykktarmælinga bilaði strax í upphafi, og veðurfar var þeim allan tímann frekar óhagstætt. Þegar þeir ætluðu að halda til baka suður yfir jökulinn skall á þá óveður sem tafði brottför þeirra um 5 sólar- hringa. Af jökli komu þeir svo þann 1. ágúst á sama stað og upp var lagt. 45 74 1932 19/7 Síðla dags lagði dr. Helmut Verleger aftur af stað frá Hoffelli en nú með vanan Vatnajökuls- fara, Helga Guðmundsson, og Hlöðver Sigurðsson sundkennara á Höfn sem fylgdarmenn og var förinni heitið á Snæfell. Þeir fóm sömu leið og fyrr að Goða- borg en þaðan austanvert með Goðahnúkum að Eyja- bakkajökli. Ekki treystu þeir sér eftir honum vegna sprungna heldur fylgdu mótum hans og Brúarjökuls á fast land. Að lokinni velheppnaðri göngu á Snæfell fóm þeir til baka á sama stað á jökul en nú vestar yfir jökulinn og komu niður á Hoffellsjökul milli Nýju- núpa og Múlaskerja.4Z 1932 31/7 Skarphéðinn Gíslason á Vagnsstöðum, fylgdarmaður Cambridge leiðangursins, fór þennan dag ríðandi úr Staðardal 6-7 km inn á jökul til móts við leiðangursmenn. Undruðust þeir það mjög því upp- hafleg áætlun þeirra var að koma í byggð 10 dögum síðar og þá af Öræfajökli. Ekki varð undrun þeirra minni þegar Homfirðingurinn sagði að sig hefði dreyrnt JOKUFF, No. 45, 1998 69
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.