Jökull


Jökull - 01.10.1998, Side 96

Jökull - 01.10.1998, Side 96
Guðlaugur Gunnarsson segir um jöklana vestur úr Örœfajökli að þeir hafi minnkað meira á þessu ári en í nokkur undanfarin ár og eru mjög sléttir og þunnir í brúnina. Kvíárjökull-, segir Helgi Björnsson á Kvískerjum í bréfi 17. nóvember, „hefur heldur færst í aukana, því hann er talsvert úfinn og sprunginn víðast hvar að undanskildum fremsta hlutanum, þó sést að jaðarinn hefur sumstaðar hækkað lítilsháttar. Stóri grjótjökul- haugurinn sem hefur verið að færast fram jökulinn er næstum kominn á enda, á móts við mælingastaðinn. Og í sumar hefur sandur og möl hreinsast af honum á stóru svæði, svo að sést í hvítan ísinn. Hrútárjökull- sýnist vera í jafnvægi eða jafnvel hafa lækkað. Fjallsjökull- er að því er séð verður víðast hvar sléttur og við Breiðamerkurfjall hefur hann greinilega hopað og lækkað í sumar. Sama hefur gerst við Ærfjall, því þar hefur hann lækkað og hopað meira en sést hefur síðari ár. Við mælingastaðinn upp af Fitjum, sýndist hann vera sléttur og jafnvel hafa lækkað þar, því að lónið sem er þar við jaðarinn í sömu hæð og áður - flæddi upp í sprungur og lægðir, allt að 200 m inneftir frá jaðrinum. Mér kom því á óvart að þar hefur hann skriðið fram. Ég kom þangað aftur 11. þ.m. Þá virtist framskriðið vera hætt, því að þá hafði jökullinn hopað um 2 m frá því í september.... Það er reyndar sérkenni- legt að sjá hvemig þunn jökulbrúnin skríður sumstaðar upp á sandöldur og sveigist uppávið á öldubrúninni, svo undir hana sést í allt að 5 m hæð. A mælingastaðn- um upp af Gamlaseli er jökulsporðurinn svo sokkinn ofan í lónið sem hefur verið að myndast þar undan- farið, að ekki er hægt að nota hann framvegis. Breiðamerkurjökull- sýnist enn fara lækkandi, svo langt uppeftir sem séð verður frá láglendinu. Við Breiðamerkurfjall er hann enn að lækka, eftir því sem smalamenn, sem árlega eiga þar leið um, hafa lýst fyrir mér.“ HEIMILDALISTI Helgi Bjömsson, Finnur Pálsson og Magnús T. Guðmunds- son. 1993. Afkoma og hreyfing á vestanverðum Vatna- jökli jökulárið 1991-1992. Raunvísindastofnun Háskól- ans, RH-93-14. Helgi Björnsson, Finnur Pálsson og Magnús T. Guðmunds- son. 1995. Afkoma og hreyfing á vestan- og norðan- verðum Vatnajökli jökulárin 1992-1993 og 1993-1994. Raunvísindastofnun Háskólans, RH-95-2. Jón Eyþórsson. 1963. Variations of Icelandic glaciers 1931- 1960. Jökull, 13,31-33. Oddur Sigurðsson. 1989. Afkoma Hofsjökuls 1987-1988. Orkustofnun, OS-91005/VOD-02 B. Oddur Sigurðsson. 1991. Afkoma Hofsjökuls 1988-1989. Orkustofnun, OS-91052fVOD-08 B. Oddur Sigurðsson. 1993. Afkoma nokkurra jökla á Islandi 1989-1992. Orkustofnun, OS-93032ADD-02. Oddur Sigurðsson. 1995. Síðujökull á flugferð. Jökull, 43, 72. Oddur Sigurðsson. 1996. Tungnaárjökull veltur fram. Jökull, 44,1. Oddur Sigurðsson. 1998. Glacier variations in Iceland 1930-1995. From the database of the Iceland Glacio- logical Society. Jökull, 45,3-25. Abstract Glacier variations 1930-1960, 1960-1990 and 1993-1994 In 1994, glacier variations were recorded at 42 locations, 7 tongues showed advance, one was sta- tionary and 26 retreated. Measurements could not be made at 8 of the visited stations because of snow, debris, rivers, lagoons or lack of reference points. The summer temperature of 1994 was near the 1931-1960 average, except for June which was cold. A one km surge of the Síðujökull outlet glacier from Vatnajökull started at the terminus in January 1994 and was practially over in April. The maximum advance rate was about 100 m/day. A surge of the Tungnárjökull outlet glacier from western Vatnajökull started in the fall of 1994. Surges have started in two outlet glaciers from the Drangajökull ice cap on the Northwest Peninsula, Kaldalónsjökull and Leiru- fjarðarjökull. Results of mass balance measurements that are carried out by the National Energy Authority and the Science Institute of the University of Iceland are reported in Table 1. 94 JÖKULL, No. 45, 1998
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.