Jökull


Jökull - 01.10.1998, Síða 97

Jökull - 01.10.1998, Síða 97
VORFERÐ JORFI 1995 Magnús Tumi Guðmundsson Raunvísindastofnun Háskólans, Dunhaga 3, 107 Reykjavík Vorferðin var farin dagana 9. til 16. júní. Ferðatil- högun var í þetta sinn nokkuð önnur en áður því nú var farið austur um sveitir og frá Skálafellsjökli í Gríms- vötn. Einnig má telja til tíðinda að enginn snjóbíll var með í för, farið var á jeppum og vélsleðum. Helstu verkefni leiðangursins voru mæling vatnshæðar og vetrarákomu í Grímsvötnum, uppsetning nýrrar sjálf- virkrar veðurstöðvar á Grímsfjalli, GPS mælingar á stikum á norðanverðum Vatnajökli og mæling vetrar- afkomu á Öræfajökli. Þátttakendur voru 21, en þar af fóru 3 til byggða á þriðjudeginum 13. júní. Hópurinn lagði af stað austur að kvöldi föstudagsins 9. júní og gisti í Freysnesi. Morguninn eftir var haldið austur á Skálafellsjökul og hádegisverður snæddur í Jöklaseli. Fararskjótamir voru 5 vélsleðar og 7 jeppar Bessi Aðalsteinsson í múrverki. Steypt gólf undir skjálfta- mœli við hornið á gamla skálanum á Grímsfjall. og dró jeppi Landsvirkjunar hlaðna kerru meðan Freyr braut slóðina á Grána sínum. Gekk ferðin ágætlega þó færi væri þungt framanaf. Á Grímsfjall kom hópurinn um kvöldið eftir 5 tíma ferð á jökli í björtu veðri. Á sunnudag og mánudag vom sumir við mælingar, m.a. í Grímsvötnum, á Öræfajökli og víðar. Á meðan unnu aðrir baki brotnu að viðhaldi á skálunum undir stjóm Sverris yfirsmiðs. Þriðjudaginn 13. júní var veð- ur fagurt og þar sem verkefnum hafði miðað vel áfram dagana á undan var afráðið að fara í Kverkfjöll og skoða þar hveri og katla. Við skála JÖRFI í Kverkfjöll- um vildi það til að stýrisbúnaður brotnaði í einum bfln- um. Tók bflanefndin með Þorstein í broddi fylkingar til óspilltra málanna og var „hrútshornið“ tekið undan og soðið saman á ný. Þótti okkur óinnvígðum með ólík- indum hve Þorsteinn og félagar voru snöggir. Varð mönnum ósjálfrátt hugsað til lýsingarinnar á fræknleik Gunnars á Hlíðarenda enda sauð Þorsteinn svo ákaft að þótti sem þrír suðuteinar væm á lofti. Á miðvikudeginum mældu þeir Finnur og Freyr inn stikur á Köldukvíslarjökli en aðrir könnuðu Grímsvötn. Um kvöldið var grillveisla. Daginn eftir voru skálar þrifnir og gengið frá á fjallinu. Um hádegi lagði hóp- urinn af stað til byggða í snjómuggu. Veður skánaði eftir því sem austar dró og austur frá Norðlingalægð var sól og víða ágætt skyggni. Um kvöldið var ekið í Freysnes og morguninn eftir til Reykjavíkur með viðkomu í Seljavallalaug. Horft afbungunni norður eftir Vestari Kverkfjöllum 13. júní 1995. Skáli JÖRFI er á kolli hœgra megin á myndinni. JOKULL, No. 45,1998 95
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.