Jökull


Jökull - 01.10.1998, Side 102

Jökull - 01.10.1998, Side 102
ekki ráð á dýrum bílakaupum. Þess vegna eru bílamál- in enn í biðstöðu en stjómin hefur fullan skilning á áhuga bílanefndar á því að kaupa bíl, hvort sem það yrði torfæmjeppi, sem gæti nýst bæði til flutninga að jökulrönd og á jökli eða beltabíll. Auknum bílakosti fylgir þörf á bílageymslu í Reykjavík, jafnvel í Jökul- heimum, ef snjóbíll yrði keyptur. Þess skal að lokum getið hér að bílanefnd hefur tekið að sér að vinna að viðhaldi ýmissa tækja, t.d. bræðslubors og íssjár Raunvísindastofnunar. HAUSTFERÐ Haustferðin í Jökulheima var farin 10.-12. septem- ber og tókst hún einstaklega vel. Farið var í Heljargjá, gengið að Dómum, nornakatlar skoðaðir, síðan ekið að Fóstrufelli, Grindakvísl og fossinn Fleygir könnuð og að lokum gengið inn í Jökulkrók og rætt um þær miklu breytingar sem þar hafa orðið á jöklinum á undanfömum árum. Alls fóru 43 í ferðina. Fararstjóri var Stefán Bjamason. ÁRSHÁTÍÐ Árshátíð var haldin laugardag 13. nóvember heima hjá Halldóri Gíslasyni, yngri, í Mosfellssveit og tókst hún mjög vel. Stjórnin þakkar Halldóri, hans konu og öllum þeim sem unnu að undirbúningi mjög vel unnin störf. GJÖRFI Skíðagöngufélagar í GJÖRFI fóru sínar venjulegu heilsubótagönguferðir frá Nesti í Ártúnsbrekku. VERÐMÆTI FRÍMERKJASAFNS OG KOSTNAÐUR VIÐ LJÓSPRENTUN JÖKULS Vegna fyrirspurna á síðasta aðalfundi um verð- mæti frímerkjasafns félagsins var það kannað hjá þremur frímerkjasölum og voru þeir sammmála um að það væri verðlítið. Ennfremur var vegna fyrir- spurnar kannað hvað kostaði að ljósprenta elstu ár- ganga Jökuls og kom fram að verð heftanna yrði meira en söluverð hjá fornbókasölum. FYRIRHUGAÐAR RANNSÓKNIR Það er venja í lok þessarar skýrslu að drepa á rann- sóknaverkefni sem framundan eru. I vor mun væntan- lega lokið íssjármælingum á Skeiðarárjökli sem hófust s.l. vor með tilstuðlan Vegagerðar og Landsvirkjunar. Um er að ræða 1000 km2 svæði og að loknum þeim mælingum verður Vatnajökull allur mældur að undan- skildum Öræfajökli, litlu svæði norðan við Esjufjöll og smájöklana sem falla austur frá Breiðubungu. Lang- jökull verður þá einn eftir af stóru jöklunum og hefur stjóm félagsins rætt um að vel færi á því að félagið kæmi að mælingu hans árið 1995. Að lokinni kortagerð af þessum jöklum mun íssjármælingum væntanlega beint að könnun á útbreiðslu öskulaga í jöklum til þess að kanna afkomu jöklanna frá því öskulögin féllu. Þá kann einnig að koma að því að borað verði til botns í einhvern stóru hveljöklanna, m. a. til þess að kanna öskulög og fræðast um eldvirkni og aldur jöklanna. Á næstu árum munu aukast hér á landi mælingar á af- komu jökla og skriði íss niður að jökulsporðum, auk jökulleysingar og sjálfvirkar veðurathugunarstöðvar verða settar á jökulsker. Kæmi vel til greina að þær yrðu við alla skála félagsins. Þessar rannsóknir munu tengjast auknum áhuga manna á áhrifum loftslags- breytinga á afkomu jökla um allan heim. I Grímsvötnum er á næstu árum stefnt að auknum bomnum með bræðslubor gegnum íshelluna og ýmsa sigkatla til þess að mæla hitastig og efnasamsetningu vatns. Það yrði til aukins skilnings á jarðhitasvæðum undir jökli og eðli jökulhlaupa. Þá er rætt um að hefja samfelldar mælingar á vatnshæð Grímsvatna með því að koma fyrir þrýstingsmælum á botni þeirra. Niður- stöður yrðu sendar með fjarskiptum upp á Grímsfjall og síðan til byggða. Þá vil ég enda þessa skýrslu á því að geta þess að hér var í ágúst haldinn vinnufundur á vegum Vísinda- stofnunar Evrópu um ferli við botn jökla. Hann sóttu 15 erlendir jöklafræðingar. Þá er fyrirhugað að halda hér alþjóðlega ráðstefnu um rof jökla árið 1995 þegar 100 ár verða frá fæðingu Jóns Eyþórssonar, stofnanda og fyrsta formanns þessa félags. Færi vel á að minnast þess með slíkri ráðstefnu. Helgi Bjömsson 100 JÖKULL, No. 45, 1998
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.