Jökull


Jökull - 01.10.1998, Page 106

Jökull - 01.10.1998, Page 106
FRÉTTABRÉF ÁRSHÁTÍÐ Oddur Sigurðsson, ritari félagsins, annaðist útgáfu Fréttabréfsins og kom það reglulega út. SKÁLAMÁL Skálanefnd vann að því stórvirki að smíða hús og koma því upp á Grímsfjall. I þessu húsi er nú komið langþráð salemi, auk gufubaðs, geymslu og afdrepis til viðgerða á tækjum. Fjölmargir aðilar styrktu smíði hússins og hefur stjórn félagsins sent þeim skrautritað þakkarskjal. Skálarnir í Jökulheimum, Kirkjubóli, Kverkfjöllum, Goðahnúkum og Esjufjöllum eru í mjög góðu lagi. Borið var á skálann á Goðahnúkum. Húsnæðismál félagsins í Reykjavík eru nú í sama lagi og fyrr í húsi Ferðafélags Islands. Þar leigjum við fundarherbergi á efstu hæð og í geymslu í kjallara eru birgðir okkar af Jökli og ýmis gömul skjöl félagsins. Auk þess höfum við aðgang að 60 manna sal með eld- húsi í risi hússins. Alexander Ingimarsson er fulltrúi félagsins í húsnefnd og eru félagar sem hafa áhuga á áð nýta sér húsnæði þar hvattir til þess að hafa samband við hann. Samningur okkar við Ferðafélagið rann úr í árslok 1994, en hefur verið endumýjaður. BÍLAMÁL OG FARARTÆKI Síðastliðið vor keypti félagið af Ríkiskaupum sex manna snjóbíl, Canadair Flextrac CF 20 árgerð 1975. Um er að ræða bíl sem oft fékkst í ferðir félagsins á árunum 1975 til 1985, Jaka Landsvirkjunar. HAUSTFERÐ Haustferðin í Jökulheima var farin 9.-11. septem- ber og tókst hún einstaklega vel. Farið var að sporði Tungnaárjökuls og m. a. skoðaður íshellir (450 m langur og allt að 2,3 m hár) sem myndast hafði í gömlu útfalli Tungnaár. Alls fóru 27 í ferðina. Fararstjóri var Alexander Ingimarsson. Árshátíð var haldin laugardag 12. nóvember og tókst hún mjög vel. Samkoman hófst í Mörkinni 6 og síðan í sal Flugleiða í Síðumúla. Að þessu sinni sá bílanefnd félagsins um þessa hátíð og stjómin þakkar öllum þeim sem unnu að undirbúningi mjög vel unnin störf. GJÖRFI Skíðagöngufélagar í GJÖRFI fóru sínar venjulegu heilsubótagönguferðir frá Nesti í Ártúnsbrekku. FYRIRHUGAÐAR RANNSÓKNIR Það er venja í lok þessarar skýrslu að drepa á rann- sóknaverkefni sem framundan eru. Það verður þó með styttra móti nú. Vegna framhlaups Tungaárjökuls er enn nokkur óvissa um hvernig rannsóknum á Grímsvötnum verður háttað í vor. Ur því mun ráðið á næstu vikum. Þá vil ég nefna að nokkuð hefur verið rætt í stjóminni að Langjökull er nú einn eftir af stóru jöklunum og vel færi á því að félagið aðstoðaði við mælingar á honum, ef ekki reynist unnt að fá opinbera aðila til þess að kosta verkið með svipuðu sniði og á öðrum meginjöklum landsins. Enn hafa engar ákvarð- anir verið teknar um mælingar á jöklinum. Þá vil ég minna á að 20. ágúst á þessu ári hefst hér alþjóðlega ráðstefnu um rof jökla, sem er tileinkuð Jóni Eyþórssyni, stofnanda og fyrsta formanns þessa félags. Ráðstefnan er haldin hér á landi í tilefni af því að 100 ár eru frá fæðingu Jóns. Helgi Bjömsson 104 JÖKULL, No. 45, 1998
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.