Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2014, Qupperneq 2
Helgarblað 21.–24. nóvember 20142 Fréttir
„Þetta
er mitt
fyrsta
brot“
n 18 ára piltur kominn á sakaskrá n tekinn með 0,2 grömm af marijúana
Á
tján ára piltur var tekinn með
0,2 grömm af marijúana á
Menningarnótt í sumar.
Þurfti hann að greiða háa
sekt til ríkissjóðs og er brotið
komið á sakaskrá piltsins. Hann lýs
ir upplifun sinni af samskiptum sín
um við lögreglu sem erfiðri reynslu
og segist hafa orðið verulega ótta
sleginn. Þá hefur hann áhyggjur af
því hvaða áhrif brotið mun hafa á
framtíð hans og atvinnumöguleika.
Helgi Gunnlaugsson, afbrota
fræðingur og prófessor í félags
fræði, segir tilvik piltsins alls ekki
einsdæmi. Hann segir fráleitt að
fara á sakaskrá fyrir þennan skammt
og segir Íslendinga verða að skoða
það af fyllstu alvöru að afglæpavæða
vörslu og neyslu fíkniefna.
Verulega óttasleginn
„Ég var staddur á Ingólfstorgi á
Menningarnótt og ég var með
smá kannabis á mér. Það náði ekki
grammi. Þetta var hálf jóna eða eitt
hvað,“ segir 18 ára piltur í samtali við
DV. Hann segist ekki vilja koma fram
undir nafni af virðingu við móður
sína og ömmu, en lýsir því næst
þegar um tíu björgunarsveitarmenn
og á að giska tíu lögregluþjónar um
kringdu hann og sögðust hafa grun
um að hann væri með fíkniefni í fór
um sínum. Þess vegna mættu þeir
leita á honum.
„Ég reyndi að þræta fyrir það og
sagði að þeir mættu það ekki. Þeir
sögðu við mig að ef þeir fengju ekki
að leita á mér þá myndu þeir taka mig
niður á stöð og það yrði ekki gaman
fyrir mig.“ Pilturinn segist hafa orðið
verulega óttasleginn þegar lögregla
nálgaðist hann með þessum hætti.
„Mér leið bara eins og ég hefði lent í
einhverri klíku eins og Hells Angels
eða eitthvað,“ segir hann.
Fáránlegt atvik
Pilturinn segist hafa verið með fjór
um vinum sínum umrætt kvöld en
um leið og lögreglan kom hafi vinirn
ir látið sig hverfa. „Ég var eigin lega
bara hræddur um líf mitt því ég hef
séð svo mikið um ofbeldi hjá þeim á
netinu. Þannig að ég leyfði þeim að
leita á mér. Þegar þeir fundu þetta
sögðu þeir við mig að þetta yrði í
mesta lagi þrjátíu þúsund krónur
í sekt en síðan fæ ég blað heim og
þá eru þetta 54 þúsund krónur. Mér
finnst þetta bara svakalega dýrt. Ég
er nýbúinn að ráða mig í mína fyrstu
vinnu. Þetta er mitt fyrsta brot. Þetta
mun örugglega eyðileggja fyrir mér
vinnuferilinn og aðra möguleika í
lífinu,“ segir pilturinn. DV hefur um
rædda sektargerð undir höndum.
Þar kemur fram að verði sektin ekki
greidd innan þrjátíu daga sé heim
ilt að fullnægja ákvörðuninni með
fjárnámi eða með afplánun
vararefsingar, fangelsi í fjóra
daga. Þá kemur fram að af
greiðsla málsins færist í saka
skrá.
Pilturinn segist hafa upplifað
sig niðurlægðan og fannst lög
reglan koma fram við sig eins og
glæpamann. „Ég nota ekki einu
sinni svona. Þetta var bara eitt
hvert fáránlegt atvik sem gerð
ist á Menningarnótt,“ segir hann að
lokum.
Talsverður málafjöldi
„Þetta er augljóslega eitthvað sem
hann er að nota sjálfur. Hann er ekki
að selja,“ segir Helgi Gunnlaugsson í
samtali við DV. Hann segir viðmiðin
á neysluskömmtum hjá löndum sem
hafa afglæpavætt fíkniefnaneyslu
ýmist vera á bilinu fimm til þrjátíu
grömm. „Þannig að 0,2 grömm, eins
og þú ert að nefna, er bara ekki neitt.
Að lenda á sakaskrá fyrir slíkt er
eigin lega bara fráleitt og þetta er eitt
hvað sem við þurfum að skoða mjög
alvarlega að breyta,“ segir Helgi.
Hann segir mál piltsins sem hér
er til umfjöllunar fjarri því að vera
einsdæmi. „Málafjöldinn er talsverð
ur,“ segir Helgi en samkvæmt tölum
frá ríkislögreglustjóra koma upp
rúmlega tvö þúsund fíkniefnabrot á
hverju ári og um sjötíu prósent þeirra
fela eingöngu í sér vörslu og meðferð
fíkniefna til eigin nota. Þá segist um
25–35 prósent þjóðarinnar einhvern
tíma hafa prófað fíkniefni. „Hann er
því ekkert einn þessi piltur. Við erum
að tala um að jafnvel á annað þúsund
einstaklingar eigi á hættu að fá á sig
sekt af þessu tagi og fara á sakaskrá.“
Þegar brot eru svona algeng seg
ir Helgi hættuna á því að úr verði
nokkurs konar geðþóttalöggæsla þar
sem lögregla velur nánast af handa
hófi hverjir verði handteknir. Það
verði þá oft breytur á borð við aldur,
kyn og útlit sem stjórni því hverjir
verði fyrir þessu handahófskennda
vali. Þess má geta að brot af þessu
tagi eru á sakaskrá viðkomandi í þrjú
ár en málið getur hins vegar verið að
gengilegt opinberum aðilum í allt að
tíu árum. Þá segir Helgi það hafa færst
í aukana á síðustu árum að beðið sé
um sakavottorð með atvinnuumsókn.
„Sem dæmi þá hafa menn ekki kom
ist inn í Lögregluskólann með brot af
þessu tagi á bakinu. Það sama á við
um aðrar eftir sóttar eða opinberar
stöður. Jafnvel þótt þetta sé dottið út
af formlegu skránni er alltaf hætta á
að einhver dragi þetta fram.“
Brotin fari ekki á sakaskrá
Mikið hefur verið fjallað um
mögulega afglæpavæðingu fíkni
efnaneyslu á Íslandi að undanförnu
í kjölfar þingsályktunartillögu Pírata
þar sem lagt er til að horfið verði frá
refsistefnu í þessum málum og frekar
byggt á lausnamiðuðum og mannúð
legum úrræðum. Í kjölfarið skipaði
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis
ráðherra nefnd sem hefur það hlut
verk að móta stefnu til að draga úr
skaðlegum afleiðingum og hliðar
verkunum vímuefnaneyslu. Gert er
ráð fyrir að nefndin skili niðurstöð
um í upphafi næsta árs.
Helgi segir afglæpavæðingu fíkni
efnaneyslu fyrst og fremst felast í
því að mál af þessum toga fari ekki
á sakaskrá. Hins vegar geti einstak
lingar verið sektaðir enda feli af
glæpavæðing ekki í sér lögleiðingu
efnanna. „Þetta er skref sem við Ís
lendingar verðum að skoða í fyllstu
alvöru, hvort það eigi ekki að koma
í veg fyrir að þessi vörslu og neyslu
brot fari á sakaskrá viðkomandi. Í af
brotafræðinni er talað um brot án
þolanda, þar sem menn eru fyrst og
fremst að skaða sjálfa sig, og það er
umhugsunarvert hvort þessi brot
eigi heima innan hegningarlag
anna,“ segir hann. n
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is „Þetta mun
örugglega
eyðileggja fyrir mér
vinnuferilinn.
„Eiginlega bara fráleitt“ Helgi Gunn-
laugsson, afbrotafræðingur og prófessor í
félagsfræði við Háskóla Íslands, segir umhugs-
unarvert að brot af þessu tagi fari á sakaskrá.
„Ég nota ekki einu
sinni svona“
Pilturinn hefur
áhyggjur af því hvaða
afleiðingar málið mun
hafa á framtíðar-
möguleika hans.
Á sakaskrá Meðfylgjandi sektargerð
sýnir að brot piltsins færist í sakaskrá. Verði
sektin, sem nemur 54 þúsund krónum, ekki
greidd er heimilt að fullnægja ákvörðuninni
meðal annars með fangelsisvist í fjóra daga.
sorpa fær
lengri frest
DV hefur ekki fengið svör við
spurningum sínum til Sorpu um
gas og jarðgerðarstöðina sem
fyrirtækið hyggst reisa í Álfsnesi.
Áætlaður heildarkostnaður er
um 2,7 milljarðar króna með
20 prósenta óvissumörkum en
Sorpa hefur nú þegar samið við
Aikan A/S í Danmörku án út
boðs um svokallaða tæknilausn
gas og jarðgerðarstöðvarinnar.
Íslenska gámafélagið og
Metanorka kærðu nýverið
samninginn til kæru nefndar
útboðsmála sem 29. október
síðastliðinn stöðvaði samn
ingsgerðina. Í niðurstöðu
kærunefndar um stöðvunar
kröfuna segir að Sorpu hafi ekki
tekist að sýna fram á að um
rædd tæknilausn sé sú eina sem
uppfylli skilgreindar þarfir. „Er
því ekki fallist á þau rök varnar
aðila að fyrirhuguð samnings
gerð án undanfarandi útboðs
auglýsingar verði réttlætt með
stoð í Blið 1. mgr. 33. gr. laga
um opinber innkaup að svo
komnu máli.“
Sorpa hafði frest til 19. nóv
ember til að færa frekari rök
stuðning en óskaði eftir fram
lengdum fresti og hefur nú frest
til 26. nóvember.
Í niðurstöðu kærunefndar er
líka bent á að þó að heimilt sé
að gera einstaka samninga án
útboðs fyrir allt að 20 prósent
um heildarfjárhæðar megi slík
ir samningar ekki fara yfir eina
milljón evra samtals. Á meðal
spurninga sem Sorpa hefur ekki
svarað er hver samanlögð upp
hæð samninga án útboðs við
Aikan A/S er.
Í eigendastefnu Sorpu segir
meðal annars um stjórnarhætti:
„Stjórnar hættir Sorpu bs eiga
að tryggja fagmennsku, hag
kvæmni, ráðdeild, gegnsæi og
ábyrgð í rekstrinum.“ Í eigenda
stefnunni segir jafnframt um
upplýsingagjöf: „Sorpa bs skal
vera til fyrirmyndar um upplýs
ingagjöf til almennings.“
DV sendi Sorpu upplýsinga
beiðni fyrir mánuði en hefur
engin svör fengið. Var meðal
annars óskað eftir afriti af þeim
hagrannsóknum sem leiddu
Sorpu að þeirri niðurstöðu að
gera samninga við Aikan. Þá var
spurt um kaup Sorpu á ráðgjöf
og tengdri þjónustu.