Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2014, Side 10
10 Fréttir Helgarblað 21.–24. nóvember 2014
Í
slenska lögreglan hefur verið að
fá allt að 200 kvartanir á mánuði
vegna efnis sem birtist á vefsíð
um svo sem Facebook eða hótana
sem einstaklingar sæta á netinu
eða í rafrænum samskiptum.
Fólkið á það sameiginlegt að telja
á sér brotið eða það ratar á efni sem
það telur vera vafasamt og varða ís
lensk lög.
Á undanförnum árum hefur DV
fjallað ítarlega og ítrekað um það
hvernig margir upplifa sig varnar
lausa gegn ofbeldi á netinu en bent
á að erfitt getur reynst að ná utan
um það lagalega séð. Málið er enda
flókið þar sem tækninni fleygir fram
hratt og örugglega og lögin halda
ekki endilega í við breytingarnar.
Svo eru einnig einstaklingar sem
virðast sérstaklega lunknir við að
finna nýjar leiðir til þess að hrella
aðra. Hótanir og jafnvel ofsóknir á
netinu eða símleiðis eru því erfiðar
viðfangs. Oftar en ekki eru þær nafn
lausar og sendar í gegnum erlend
forrit og því takmarkað hvernig hægt
er að bregðast við.
Úrræðin eru í sumum tilfellum
til staðar, segir Sigrún Jóhannsdóttir
héraðsdómslögmaður og vísar
til almennra hegningarlaga. Þeir
sem hafa til dæmis uppi hótan
ir eiga samkvæmt lögunum að vera
dæmdir samkvæmt refsiramma
sem býður upp á tveggja ára fang
elsi en í mörgum tilfellum eru við
því sektargreiðslur og yfirleitt skil
orðsbundnir dómar. Þessu ákvæði er
mjög oft beitt þegar um er að ræða
heimilisofbeldi. Sigrún segist velta
því fyrir sér hvort íslensk lög nái utan
um þessi mál sem tengjast rafrænum
samskiptum.
Getur ekki verndað hana
Á vefsvæði sem vistað er erlendis er
íslenskt spjallborð þar sem myndir af
íslenskum konum og stúlkum ganga
manna á milli. Mikið er gert úr því að
fá myndir af konunum fáklæddum
eða nöktum. Sumir netverjar leggja
inn pantanir af myndum af ákveðn
um einstaklingum og aðrir nota
svæðið til að ná sér niður á konun
um eða stúlkunum eftir sambands
slit. Í slíkum tilfellum, það er þegar
fyrrverandi elskhugar dreifa efni, er
það kallað hefndarklám.
Móðir 13 ára stúlku segist hafa
fengið veður af því að verið væri að
óska eftir myndum af dóttur sinni
á vefsvæðinu. „Hún er þrettán ára
gömul og þeir eru að biðja um nektar
myndir af henni. Hún þorir ekki í
sund og hún fer ekki í sturtu í leikfimi.
Reyndar hef ég verið að leyfa henni
að sleppa við bæði fögin í skólanum,
þetta reynir svo mikið á hana. En ég
get það ekki til lengdar. Skólinn get
ur ekkert gert og þegar ég fór til lög
reglunnar var mér sagt að þeir gætu
lítið gert; síðan væri vistuð erlend
is og að myndir af stúlkunni hefðu
ekki farið í dreifingu. Ég, sem móð
ir hennar, gat sem sagt ekki verndað
hana nema með því að leyfa henni að
sleppa því að fara í sturtu,“ segir hún.
DV hefur ítrekað fjallað um síður sem
þessa, en hún er ekki nefnd á nafn hér
til að auglýsa hana ekki.
Úrræðin til staðar
– en samt ekki
Víða erlendis er unnið að því að
banna hefndarklám. Sigrún bendir
á að á Íslandi sé það brot á friðhelgi
einstaklingsins, að dreifa slíku efni.
Sá kafli almennra hegningarlaga er
háður því að brotaþoli fari í einka
mál. Vilji brotaþoli höfða einkamál
sjálfur á hendur geranda, eru því úr
ræði til þess, en ekki allir hafa til þess
andlega og fjárhagslega burði. Í ein
hverjum tilfellum væri hægt að fella
það undir 210. gr. hegningarlaga, er
varðar dreifingu á klámi. Þá þyrfti
þó að fara í skoðun á því hvað klám
er og skilgreiningar þess. Það getur
reynst erfitt að skilgreina klám enda
er engin ein íslensk skilgreining á
klámi til staðar og hugtakið hefur tek
ið miklum breytingum í áranna rás.
Einnig mætti skoða hvort hægt væri
að kæra fyrir brot á blygðunarsemi.
„Það mætti fara fram umræða um
það hvort lögin nái hreinlega utan
um þetta og hvort það þurfi ekki að
bregðast við þessu,“ segir Sigrún.
Hún segist ekki þekkja dæmi þess að
einstaklingar hafi verið dæmdir fyrir
dreifingu á hefndarklámi hér á landi.
Í þeim tilfellum þar sem um er að
ræða ungar stúlkur eða drengi, sem
verða fyrir því að vafasömum mynd
um er dreift af þeim, er ekki um ann
að að ræða en telja það sem barna
níðsefni. Dreifing á því er brot á
hegningarlögum og getur varðað allt
að tveggja ára fangelsi. Vandinn felst
sem fyrr í því að síðurnar eru oftar en
ekki vistaðar erlendis og erfitt getur
reynst að hafa hendur í hári þeirra
sem deila þar efni.
Lögreglumaður sem DV ræddi
við segir mikinn fjölda af kvörtunum
berast til lögreglunnar vegna mála
sem þessara, það er að myndir gangi
á síðunum eða að óskað sé eftir síð
unum sé lokað vegna efnis sem þar
birtist. Maðurinn segir erfitt að fylgja
eftir öllum málum, en að í þeim til
fellum þar sem efni er dreift af börn
um sé gripið til sérstakra varúðar
ráðstafana. n
„Það mætti fara
fram umræða um
það hvort lögin nái hrein-
lega utan um þetta.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is Notaði Snapchat
Í fyrra sagði DV frá ungri konu sem var ofsótt af fyrrverandi
sambýlismanni og barnsföður. Sá notaði smáforritið
Snapchat til að klekkja á konunni. Hann stofnaði stöðugt
nýja reikninga undir nafni konunnar og sendi í gríð og erg
nektarmyndir af henni sem hann hafði aðgang að. Bætti
hann við notendum Snapchat, fólki sem konan þekkti og
einnig ókunnugum. Konan hafði, eðli málsins samkvæmt, ekki
veitt heimild fyrir dreifingu myndanna. Hún telur sig vera eiganda
þeirra, en maðurinn telur sig vera það líka. Maðurinn sendi konunni líka stöðugt skilaboð,
undir dulnefni, á Facebook, í smáskilaboðum og í tölvupósti. Mörg voru skilaboðin rætin
og ljót en önnur innihéldu misvel dulbúnar hótanir um ofbeldi og líkamsmeiðingar. Allt
var þetta andlegt ofbeldi sem konan hafði þá sætt um árabil án þess að hægt væri að
gera annað en að ræða við manninn sem átti að auki til að sitja um heimili hennar. Konan
hefur ekki höfðað einkamál en hefur ítrekað leitað til lögreglunnar. Eftir því sem DV
kemst næst hefur ekki verið gefin út ákæra á hendur manninum og ekki var sett nálg-
unarbann á hann. Eftir umfjöllun DV hafði maðurinn í hótunum við starfsmenn blaðsins.
Hótað nauðgun
fyrir ögrandi
myndband
Systurnar í sveitinni Hljómsveitt, Anna
Tara og Katrín Helga Andrésardæt-
ur, fengu grófar nafnlausar hótanir
á netinu eftir útgáfu lagsins Næs í
rassinn. Lagið og myndbandið þótti
afar umdeilt. Þeir einstaklingar sem létu
efni þess fara fyrir brjóstið á sér hótuðu
söngkonunum öllu illu, meðal annars
nauðgunum og ofbeldi.
Hrædd við myndirnar Hún þorir ekki í
sund og hún fer ekki í sturtu í leikfimi, segir
móðir 13 ára stúlku. SviðSett Mynd SHutterStock
„Ég
gat ekki
verndað
hana“
n Mál sem varða ofsóknir eða ofbeldi á netinu falla oft á milli skips og bryggju
Verslanir á Laugavegi 182 og í Smáralind · sími 512 1300 · epli.is
iPad Air
Verð frá: 89.990.-