Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2014, Page 12
Helgarblað 21.–24. nóvember 201412 Fréttir
„Þessi ásýnd er því
miður óverðskulduð“
Þ
ingflokkur Pírata, þau Helgi
Hrafn Gunnarsson, Birgitta
Jónsdóttir og Jón Þór Ólafs-
son, hafa lagt fram frum-
varp til laga um breytingar
á almennum hegningarlögum. Með
frumvarpinu er lagt til að ákvæðum
almennra hegningarlaga sem setja
tjáningarfrelsinu skorður verði breytt
á þann veg að ekki verði heimilt að
dæma menn til fangelsisvistar fyrir
að tjá skoðanir sínar. Þingmennirn-
ir telja slík ákvæði ekki samrýmast
nýrri viðhorfum til mannréttinda.
Með breytingunum sem þau
leggja til myndu því heimildir til
fangelsisrefsinga falla úr þeim grein-
um almennra hegningarlaga er snúa
að tjáningu skoðana. „Okkur finnst
þetta sjálfsagt og löngu tímabært.
Þó að það séu kannski til eðlilegar
takmarkanir á tjáningarfrelsi, eru
fangelsisrefsingar ekki ein af þeim
og eru ekki við hæfi,“ segir Helgi
Hrafn í samtali við DV. Það sé mikið
áhyggjuefni að slíkar heimildir séu til
í lögum.
Þingflokkurinn leggur til að sjö
greinum almennra hegningarlaga
verði breytt. Um er að ræða grein-
ar er varða meðal annars það að
einstaklingar smána aðra, til dæm-
is erlenda þjóðhöfðingja eða móðga
fólk, lifandi eða látið, og hafa uppi
ærumeiðandi aðdróttanir. Þetta er í
annað sinn sem frumvarpið er lagt
fram, en það kom einnig fram í fyrra
en var ekki rætt og er því lagt fram
óbreytt.
Mikilvægt að breyta lögunum
Helgi Hrafn segir mikilvægt að
breyta lögunum og gæta hagsmuna
almennings. Einnig sé það mikilvægt
utan frá séð enda sé ásjóna Íslands á
erlendum vettvangi sú að hér sé mik-
il virðing borin fyrir tjáningarfrelsinu
og við séum leiðandi á þeim svið-
um. „Þessi ásýnd er því miður óverð-
skulduð,“ segir Helgi Hrafn. Raun-
veruleikinn sé allt annar og bendir
hann á að á sama tíma og Íslandi sé
hampað sé ítrekað verið að fjalla um
dóma eða málshöfðun sem standist
ekki nútíma kröfur um tjáningar-
frelsið.
Samræmist ekki
kröfum lýðræðisríkja
Hann vísar sérstaklega til málshöfð-
unar aðstoðarmanns innanríkis-
ráðherra, Þóreyjar Vilhjálmsdóttur,
gegn tveimur blaðamönnum DV, þar
sem krafist er dóma samkvæmt al-
mennum hegningarlögum. „Þar sjá
menn ekki vestrænt lýðræðisríki,“
segir Helgi Hrafn. Þess má einnig
geta að International Press Institute
hefur einnig varað við því að laga-
ákvæði um meiðyrði séu í hegn-
ingarlögum þar sem hætt sé við að
þau verði misnotuð.
Helgi Hrafn vísar að auki til dóma
mannréttindadómstóls Evrópu sem
hefur dæmt íslenska ríkið skaða-
bótaskylt vegna dóma sem hafa fallið
hér á landi í tjáningarfrelsismálum.
„Þetta frumvarp gengur reynd-
ar miklu skemur en við viljum. Það
er meira sem við þurfum að laga,
en þetta er eitthvað sem við teljum
að allir geti verið sammála um. Ég
held að jafnvel þeir sem eru hlynnt-
ir því að þetta sé í hegningarlögum,
telji það ekki við hæfi að við þessum
brotum liggi fangelsisrefsing,“ segir
Helgi Hrafn. Hann vísar einnig til
þingsályktunartillögu um IMMI,
International Modern Media Institu-
te, alþjóðlegrar stofnunar um upp-
lýsinga- og tjáningarfrelsi sem sett
var á laggirnar á Íslandi árið 2010
að frumkvæði Alþingis. Stofnuninni
er ætlað að vinna að því að Ísland
skapi sér afgerandi lagalega sérstöðu
í að vernda tjáningar- og upplýsinga-
frelsi. „Ef við förum ekki að taka okk-
ur saman í andlitinu missum við af
þeim fjölmörgu tækifærum sem við
gætum haft sem leiðandi afl á þess-
um vettvangi,“ segir hann. n
Íslandi er hampað fyrir baráttu fyrir tjáningarfrelsinu en á sama tíma má dæma fólk í fangelsi
Svona myndu lögin breytast
n Við því getur legið allt að tveggja ára fangelsisdómar ef einstaklingar smána opin-
berlega erlenda þjóð, ríki, fána, ráðamenn eða þjóðhöfðingja og vilja Píratar að „eða
fangelsi allt að 2 árum“ falli á brott úr lögunum. (95. gr. 1. mgr.)
n Þá myndi þessi grein falla í heild út úr lögunum: „Sömu refsingu skal hver sá sæta sem
smánar opinberlega eða hefur annars í frammi skammaryrði, aðrar móðganir í orðum
eða athöfnum, eða ærumeiðandi aðdróttanir við aðra starfsmenn erlends ríkis, sem
staddir eru hér á landi.“ (95. gr. 2. mgr.)
n Sá sem dregur dár að eða smánar trúarkenningar eða guðsdýrkun löglegs trúar-
bragðafélags getur sætt fangelsi í allt að þremur mánuðum. Orðin „eða fangelsi allt að 3
mánuðum“ myndu falla brott úr hegningarlögum. (125. gr.)
n Hver sem opinberlega hæðist að, rógber, smánar eða ógnar manni eða hópi manna
með ummælum eða annars konar tjáningu, svo sem með myndum eða táknum, vegna
þjóðernis, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða, kynhneigðar eða kynvitundar, eða breiðir
slíkt út, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum. Hér myndi „eða fangelsi allt að 2
árum“ falla brott (233. gr.a.)
n Sá sem móðgar eða smánar maka sinn eða fyrrverandi maka, barn sitt eða ann-
an mann sem er nákominn geranda, og verknaður verður talinn fela í sér stórfelldar
ærumeiðingar, skal sæta fangelsi allt að tveimur árum. Samkvæmt tillögu Pírata myndi
fangelsisvistarákvæðið falla út og þess í stað yrði sett inn að viðkomandi sæti sektar-
greiðslu. (233. gr.b.)
n Sá sem meiði æru annars manns með móðgun í orðum eða athöfnum geti sætt fang-
elsi allt að 1 ári. Ákvæði um fangelsisvist myndi falla á brott hér. (234. gr.)
n Sá sem drótti að öðrum manni, virðingu hans til hnekkis, þá varði það fangelsi allt að
einu ári. Orðin „eða fangelsi allt að 1 ári“ falla brott. (235. gr.)
n Sé ærumeiðandi aðdróttun höfð í frammi eða borin út gegn betri vitund sæti viðkom-
andi fangelsi allt að tveimur árum. Hér myndi ákvæði um fangelsisvist falla brott og í
staðinn koma ákvæði um sektir. (236. gr.)
n Sé aðdróttun birt eða borin út opinberlega, enda þótt sakaráberi hafi ekki haft senni-
lega ástæðu til að halda hana rétta, geti það varðað tveggja ára fangelsi, eða sekt. Hér
yrði það aðeins að sekt. (236. gr. 2. mlsgr.)
n Sé ærumeiðingum beint að dánum manni getur það varðað árs fangelsisvist. Ákvæði
um fangelsisvist falli brott. (240. gr.)
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
„Þetta frumvarp
gengur reyndar
miklu skemur en við viljum.
Vilja breytingar
Frumvarpið var lagt
fram í fyrra, en fékk
ekki brautargengi.
Nú reyna Píratar
aftur að knýja fram
breytingar á reglum
um tjáningarfrelsið.
Mynd Sigtryggur ari
„Þar sjá
menn
ekki vestrænt
lýðræðisríki
Kortavelta
jókst í október
Allt bendir til þess að vöxtur
einkaneyslu verði einn megin-
drifkraftur hagvaxtar á árinu
2014. Þetta kemur fram á vef
Greiningar Íslandsbanka sem
vísar í nýlega birtar tölur Seðla-
bankans um kortaveltu. Í þeim
sést að raunvöxtur í kortaveltu
einstaklinga var 5,2 prósent í
október miðað við sama mánuð
í fyrra, sem er nokkuð meira en
vöxturinn hefur að jafnaði verið í
mánuði hverjum á árinu, að sögn
Greiningar.
„Líkt og undanfarið var vöxtur
kortaveltu í október mun hraðari
utan landsteinanna en innan
þeirra. Nam vöxtur í kortaveltu
innanlands 3,5 prósentum en
vöxtur í kortaveltu erlendis 17,2
prósentum að raunvirði milli ára.
Vöxtur veltu erlendis skýrist að
stórum hluta af aukningu í utan-
landsferðum Íslendinga í október-
mánuði frá sama tíma í fyrra, en
einnig koma væntanlega til aukin
kaup í erlendum netverslunum,“
segir í umfjöllun Greiningar.
Meintur
níðingur áfram
í varðhaldi
Karlmaður sem grunaður er um
kynferðisbrot gegn tveimur átta
ára drengjum á Akureyri verður í
gæsluvarðhaldi til 14. desember,
eða þar til dómur fellur í máli
hans.
Vikudagur greindi frá þessu
en auk þess að vera grunaður um
brot gegn drengjunum er maður-
inn grunaður um að hafa brotið
gegn þroskaskertri konu fyrr á
þessu ári. Í úrskurði héraðsdóms
kemur fram að sterkur grunur sé
uppi um að maðurinn hafi með
hótun fengið drengina til að fylgja
sér inn í íbúð sína þar sem hann
hafði þá á valdi sínu í stutta stund
um miðjan ágústmánuð.
Maðurinn sem um ræðir er
rúmlega þrítugur en brot hans
geta varðað allt að tíu ára fangelsi.