Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2014, Page 16
Helgarblað 21.–24. nóvember 201416 Fréttir
n Þingflokkurinn færist undan vantraustsyfirlýsingu á Hönnu Birnu n Viðkvæmt og umdeilt mál
L
ekinn úr innanríkisráðu-
neytinu fyrir réttu ári hefur
dregið dilk á eftir sér, eink-
um þó fyrir Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur innanrík-
isráðherra. Nú hvílir á henni sú
krafa úr mörgum áttum að axla
pólitíska ábyrgð á málinu með því
að láta af ráðherraembætti. For-
dæmingin á rætur að rekja til kröfu
kjósenda um heiðarleika, gott for-
dæmi og flekkleysi þeirra sem taka
að sér ábyrgðarstörf í þágu kjós-
enda. Ekki bætti það stöðu henn-
ar þegar annar af tveimur póli-
tískum trúnaðarmönnum hennar
í ráðuneyti dóms- og lögreglu-
mála, Gísli Freyr Valdórsson, ját-
aði sök og hlaut dóm. Málið hefur
líka verið íþyngjandi fyrir starfs-
fólk innanríkisráðuneytisins. Það
hefur einnig haft áþreifanlegar af-
leiðingar fyrir embætti lögreglu-
stjóra höfuðborgarsvæðisins, og
embætti ríkissaksóknara og um-
boðsmanns Alþingis hafa dregist
inn í hringiðuna, einkum vegna yf-
irlýsinga Hönu Birnu og annarra
sem til þessa hafa stutt málstað
hennar. Afskipti Hönnu Birnu af
rannsókn Stefáns Eiríkssonar, þá-
verandi lögreglustjóra höfuð-
borgarsvæðisins, á lekamálinu í
ráðuneyti hennar, urðu um síðir
tilefni til frumkvæðisrannsóknar
af hálfu embættis umboðsmanns
Alþingis. Framvinda málsins varð
til þess að hann dró sig í hlé og
starfar nú á öðrum vettvangi. Við
tók Sigríður Björk Guðjónsdóttir,
lögreglustjóri á Suðurnesjum, sem
gæti nú einnig verið í vanda stödd
vegna samskipta við Gísla Frey og
líkast til Hönnu Birnu um það leyti
sem upplýsingum var lekið til fjöl-
miðla um Tony Omos. Þær gátu
aðeins komið frá embætti Sigríðar
Bjarkar þegar hún var lögreglu-
stjóri á Suðurnesjum.
Ábyrgðin eða sektin
Grétar Eyþórsson, stjórn-
málafræðiprófessor við háskólann
á Akureyri, gerði ábyrgð stjórn-
málamanna að umtalsefni í sam-
tali við Fréttatímann 14. nóvem-
ber síðastliðinn: „Það virðist sem
afsögn ráðherra á Íslandi þýði að
það sé verið að viðurkenna ein-
hverja sekt, en ekki að það sé gert
til að axla ábyrgð. Menn hafa sagt
af sér á Íslandi, og menn hafa verið
þvingaðir til þess. En það er enginn
sem virðist ætla að þvinga Hönnu
Birnu úr starfi. Það virðist liggja
alfarið hjá henni sjálfri að meta
stöðuna.“ Spyrja má hvaða áhrif
lekamálið hefur haft á Sjálfstæð-
isflokkinn. Ekki er að sjá að það
hafi valdið sérstöku fylgishruni
flokksins. Í nýlegri fylgiskönnun
Fréttablaðsins og Stöðvar 2 mæld-
ist flokkurinn með um 32 prósenta
fylgi. Sú könnun var reyndar gerð
eftir að formenn stjórnarflokk-
anna höfðu kynnt niðurstöður
skuldaniðurfærslu heimilanna,
sem kann að hafa hnikað fylginu
upp á við, því í fyrri hluta nóvem-
ber mældi MMR fylgi flokksins að-
eins um 23,8 prósent. Hvað sem
þessu líður er ljóst að lekamálið
hefur haft neikvæð og sundrandi
áhrif innan Sjálfstæðisflokksins
þótt ekki hafi verið upplýst neitt
sérstaklega um slíkt opinberlega. Á
þingflokksfundi í síðustu viku var
stuðningurinn við Hönnu Birnu,
varaformann Sjálfstæðisflokksins,
langt frá því að vera alger. Í þing-
flokknum eru 19 þingmenn; að
minnsta kosti þrír þeirra sátu hjá
við atkvæðagreiðslu, nefnd eru
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Vil-
hjálmur Bjarnason og Ásmundur
Friðriksson. Aðrir hafa ekki sann-
færingu lengur fyrir stuðningi;
nefna má framgöngu Brynjars
Níelssonar og heimildir eru fyrir
ólund Jóns Gunnarssonar einnig
vegna framvindunnar.
Þá losnar ráðherrastóll
Á það er að líta að komi til afsagn-
ar Hönnu Birnu losnar ráðherra-
staða innan ríkisstjórnarinnar.
Líklegt þykir að með nýjum ráð-
herra Sjálfstæðisflokksins verði
dómsmál sameinuð aftur und-
ir hatti innan ríkisráðuneytisins.
Þessi staða getur skýrt fylgispekt
einstakra þingmanna við for-
manninn eða varfærnislegar
yfir lýsingar þeirra eftir þing-
flokksfundinn 12. nóvember síð-
astliðinn. Sá „breiði“ stuðn-
ingur við hana, sem
Bjarni Benediktsson
talaði um þennan
dag, getur á end-
anum verið skil-
yrtur og breyti-
legur og nær varla
nema til liðlega
helmings þing-
mannanna þegar á
reynir. Nokkuð þyk-
ir halla á konur innan
þingflokksins – þær eru
sex, eða vart þriðjung-
ur hans – en um leið eru
þær tiltölulega óreyndar
ef frá eru taldar Ragnheið-
ur Ríkharðsdóttir og Unnur
Brá Konráðsdóttir. Auk þess
hefur flokksráð flokksins ný-
verið áréttað að jafna
skuli kynja-
hlutföll
eftir
föngum í ábyrgðarstöðum flokks-
ins. Ragnheiður verður því að
teljast líklegt ráðherraefni. Hún
hefur þó það á móti sér að vera
Evrópusinni sem er viðkvæmt
mál í forystu flokksins. Víst þyk-
ir einnig að hvorki Guðlaugur
Þór Þórðarson, nýbakaður rit-
ari flokksins, né Brynjar Níelsson
myndi slá höndinni á móti ráð-
herraembætti.
Í hennar höndum?
Vera má að Bjarni sé í þröngri stöðu
gagnvart Hönnu Birnu, sem nýtur
stuðnings nokkurra
gamalreyndra áhrifamanna inn-
an flokksins; nefna má Kjartan
Gunnarsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokks-
ins í aldarfjórðung og læriföður
Hönnu Birnu innan veggja Val-
hallar, og Björn Bjarnason, fyrr-
verandi ráðherra. Það kann því að
vera klókt af honum að reiða ekki
hátt til höggs gegn henni nú þótt
hún hafi bæði farið gegn honum í
formannskjöri 2011 og stuðnings-
menn hennar á Viðskiptablað-
inu (Gísli Freyr Valdórsson) hafi
skömmu fyrir þingkosningarn-
ar 2013 birt könnun sem sýndi
meira fylgi við Sjálfstæðisflokkinn
ef Hanna Birna leiddi hann í stað
Bjarna. Málið er einnig persónu-
legt einkum í þingmannahópnum.
Þeim þætti erfitt að þurfa að taka
af skarið með samþykktum gegn
Hönnu Birnu. Að þessu leyti hent-
ar þeim best nú að bíða niðurstöðu
umboðsmanns Alþingis um sam-
skipti hennar við Stefán Eiríks son
eftir að hann hóf rannsókn leka-
málsins. Verði álit hans mjög mót-
drægt Hönnu Birnu verður að telj-
ast líklegt að hún leggi niður vopn
af sjálfsdáðum og kæmi eins konar
vantraustsyfirlýsing af hálfu þing-
flokksins eða flokksformannsins
þá ekki til álita. n
„Málið er einnig
persónulegt eink-
um í þingmannahópn-
um. Þeim þætti erfitt að
þurfa að taka af skarið
með samþykktum gegn
Hönnu Birnu.
Beðið er eftir niður-
stöðu umBoðsmanns
Frekari athugun Tryggvi Gunnarsson,
umboðsmaður Alþingis, og hans fólk hefur
tekið sér frekari frest til þess að kanna ný
gögn í lekamálinu. Margir sjálfstæðismenn
vona að álit embættisins geti skorið á
pólitískan rembihnút lekamálsins.
Jóhann Hauksson
johannh@dv.is
Valhöll Lekamálið virðist
ekki valda sérstöku fylgistapi
Sjálfstæðisflokksins enn sem
komið er. Málið er eldfimt innan
flokksins og biðlundin eftir
lausn málsins er senn á þrotum.