Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2014, Síða 20
Helgarblað 21.–24. nóvember 201420 Fréttir Erlent
Fra
Hyrjarhöfði 2 - 110, Reykjavík / s: 848 7007 og 776 8600 / www.glerpro.is / glerpro@gmail.com
Allar viðgerðir á framrúðum
eru
bíleiganda að kostnaðarlau
su.
Vinnum fyrir öll tryggingaf
élög.
Íslamska ríkið
nær fótfestu í Líbíu
E
inkennisfáni liðsmanna Ís-
lamska ríkisins blaktir yfir
stjórnarbyggingum. Sömu
sögu er að segja
af lögreglu-
bílum sem merktir
eru Íslamska ríkinu.
Knattspyrnuleikvangur
borgarinnar er notaður fyrir
opinberar aftökur. Þessi lýs-
ing hér að framan á ekki við
borg eða bæ í Sýrlandi eða
Írak. Hér er um að ræða borg
við strendur Miðjarðarhafsins,
borgina Derna í norðurhluta Líbíu.
Nýta sér upplausnina
Uppreisnarmenn hollir Íslamska
ríkinu í Írak og Sýrlandi fara
nú með stjórn borgarinn-
ar sem telur um hund-
rað þúsund íbúa. Borgin
sem um ræðir er skammt
frá landamærum Egypta-
lands og aðeins um þrjú hund-
ruð kílómetra frá eyjunni Krít sem
tilheyrir Grikklandi.
Á undanförnum misserum hafa
liðsmenn samtakanna fært út kvíarn-
ar hægt og rólega og fikrað sig vestar á
bóg-
inn til
svæða þar
sem upp-
lausnarástand
ríkir, eins og í Líbíu. CNN fjallaði um
þessa sókn Íslamska ríkisins í ítarlegri
fréttaskýringu á dögunum.
Heimildarmenn CNN í Líbíu
segja að armur samtakanna í Derna
telji um 800 manns. Þá séu liðs-
menn þeirra búnir að koma sér fyrir
í fjalllendi skammt frá þar sem þjálf-
unarbúðir fyrir uppreisnarmenn
frá ríkjum í Norður-Afríku eru star-
fræktar. Samtökin virðast vera með
tangarhald á borginni og eru þau
búin að taka yfir stjórnkerfið eins og
það leggur sig, allt frá barnaskólum
til dómshúss borgarinnar. „Það má í
raun líkja Derna eins og hún er í dag
við Raqqa,“ segir heimildarmaður
CNN og vísar til borgarinnar Raqqa
í Sýrlandi þar sem Íslamska ríkið fer
með öll völd.
„Alvarleg ógn“
Eins og eðlilegt er eru margir
áhyggjufullir vegna þessarar þró-
unar, að liðsmenn samtakanna séu
búnir að ná fullkominni stjórn á
borg í norðurhluta Afríku. „ Líbíu
stafar alvarleg ógn af samtökunum.
Þau eru vel á veg komin með að
stofna Íslamskt ríki í austurhluta
Líbíu,“ segir Noman Benotman, fyrr-
verandi uppreisnarmaður sem nú
starfar fyrir Quilliam-samtökin sem
meðal annars berjast gegn hryðju-
verkum.
Meðal þeirra sem gerðir hafa
verið að skotmarki liðsmanna sam-
takanna í borginni má nefna dóm-
ara, blaðamenn og hermenn. Hafa
ófáir verið líflátnir opinberlega í
borginni að undanförnu. Þannig
voru þrír afhöfðaðir í borginni í síð-
ustu viku en þeir höfðu opinberlega
barist gegn samtökunum.
Útungunarstöð öfgamanna
Derna hefur verið eins konar út-
ungunarstöð fyrir íslamska öfga-
menn á undanförnum árum. Þeim
var stjakað út á jaðarinn þegar Mu-
ammar Ghaddafi var við völd. Í
umfjöllun CNN kemur fram að
ófáir öfgamenn hafi gengið í raðir al-
Kaída í Írak og Íslamska ríkið í Sýr-
landi.
Um tveir mánuðir eru síðan Ís-
lamska ríkið hóf innreið sína í
borgina fyrir alvöru. Var það fyrir
tilstilli leiðtoga samtakanna, Abu
Bakr al Baghdadi,
að það tókst. Fékk
hann einn af sín-
um nánustu
bandamönnum,
Abu Nabil al An-
bari, til verksins en
þeir höfðu dval-
ið saman í fang-
elsi Bandaríkja-
manna í Írak
fyrir nokkrum
árum.
Færa út kvíarnar
Aaron Zelin, sem starfar hjá banda-
rísku hugveitunni Washington
Institute for Near East Policy, segir
að áhrif Íslamska ríkisins í Derna
gætu orðið víðtæk og ekki verði
auðvelt að hrekja samtökin þaðan.
Þannig sé borgin vel staðsett í ýmsu
tilliti. Auðvelt sé að smygla varningi
til og frá borginni og selja á svörtum
markaði. Þá má geta þess að miklar
olíuauðlindir eru í nágrenni borgar-
innar.
Íslamska ríkið hefur komið sér
fyrir víðar en í Derna í Líbíu og
látið til sín taka. Þannig eru liðs-
menn hollir samtökunum búnir að
koma sér vel fyrir í Al Bayda, Beng-
hazi, Sirte og jafnvel höfuðborginni
Tripoli þó áhrif samtakanna séu ekki
jafn mikil og sterk og í Derna.
Samtökin hafa verið bendluð við
fjölmargar hryðjuverkaárásir í Líbíu
að undanförnu. Má þar nefna sjálfs-
vígsárás í borginni Tobruk í síðustu
viku þar sem einn lést og fjórtán
særðust. Þá leikur grunur á að sam-
tökin beri ábyrgð á að bílsprengju
sem sprakk í Al Bayda sama dag.
Fjórir létust í þeirri árás. n
Líbía
Alsír
Egyptaland
Ítalía
Grikkland
Frakkland
Spánn
Túnis
Derna
n Nýta sér upplausnina í landinu n Líbíu stafar alvarleg ógn
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Mikil ógn Noman Benotman, sem sjálfur
var öfgafullur íslamisti, segir að Líbíu stafi
alvarleg ógn af Íslamska ríkinu.
Derna Talið er að Íslamska ríkið
sé með um 800 vígamenn á sín-
um snærum í borginni. Samtökin
fara með öll völd í borginni.
Færa sig vestar
Íslamska ríkið hefur hingað til látið mest
til sín taka í Írak og Sýrlandi. Það er að
breytast eins og innreið þeirra til Líbíu
sýnir. Samtökin hafa lagt undir sig
borgina Derna sem er ekki langt frá
Grikklandi. Þá eru samtökin með
deildir í fleiri borgum Líbíu.
Fékk 117 milljóna
króna reikning
Kanadísk kona sem eignaðist
dóttur í Bandaríkjunum níu
vikum fyrir tímann situr uppi
með 950 þúsunda dala reikn-
ing vegna sjúkrahússvistarinnar.
Upphæðin samsvarar 117 millj-
ónum íslenskra króna.
Konan sem um ræðir heitir
Jennifer Huculak-Kimmel en
hún missti vatnið þegar fjöl-
skyldan var í fríi á Hawaii í nóv-
ember 2013. Sjálf var Jennifer
lögð inn á sjúkrahús þar sem
hún lá í sex vikur áður en dóttir
hennar fæddist í desember. Þar
sem dóttirin kom í heiminn níu
vikum fyrir tímann þurfti hún
einnig að vera undir eftirliti
lækna á vökudeild og liðu tveir
mánuðir þar til óhætt þótti að
senda hana heim.
„Við vorum búin að vera í fríi
í tvo daga þegar ég missti vatn-
ið,“ segir Jennifer í viðtali við
CBS. Hún segist hafa reynt að
fá sig flutta með sjúkraflugi til
Kanada en talað fyrir daufum
eyrum. Eitt fyrirtæki hefði ekki
treyst sér til að flytja hana heim
í því ástandi sem hún var og
annað fyrirtæki hefði viljað hafa
skurðlæknateymi með í för sem
ekki reyndist mögulegt.
Jennifer segist alltaf hafa
staðið í þeirri trú að trygginga-
félag fjölskyldunnar, Blue Cross,
stæði straum af kostnaði við
sjúkrahússvistina en orðið furðu
lostin þegar tryggingafélagið
neitaði.
Vísaði tryggingafélagið með-
al annars í það að hún hefði sjálf
tekið þá áhættusömu ákvörðun
að fara í ferðalagið. Líkur hefðu
verið á að hún fæddi stúlkuna
fyrir tímann, meðal annars
vegna blöðrubólgu og blæð-
inga í kjölfarið sem hún fékk
snemma á meðgöngunni. Sjálf
segir Jennifer að hún hefði ráð-
fært sig við heimilislækni fjöl-
skyldunnar sem hefði ekki sett
sig á móti ferðalaginu.
Í frétt CBS kemur fram að
Jennifer og fjölskylda hennar
liggi nú undir feldi varðandi
næstu skref. Annaðhvort muni
þau heyja baráttuna gegn
tryggingafélaginu áfram eða
lýsa sig gjaldþrota.