Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2014, Qupperneq 36
36 Skrýtið Helgarblað 21.–24. nóvember 2014
Vildi í fangelsi
í Norður-Kóreu
n Bandaríkjamaður á villigötum n Tókst ætlunarverkið og sá þá eftir öllu
Í
apríl á þessu ári fór Bandaríkja-
maðurinn Matthew Todd Miller
frá Suður-Kóreu til Norður-Kóreu
í fremur óvenjulegum erinda-
gjörðum. Þegar til Norður-Kóreu
var komið eyðilagði hann vegabréf-
ið sitt og freistaði þess að sækja um
hæli. Markmið hans var að láta hand-
taka sig í landinu og komast í norður-
kóreskt fangelsi.
Það er síður en svo eftirsóknarvert
að dúsa í norðurkóresku fangelsi. Í
þessu lokaða og sumpart frumstæða
einræðisríki eru refsingarnar í takt við
annað; grimmilegar. Rannsókn Sam-
einuðu þjóðanna hefur afhjúpað að
í fangelsum landsins viðgangist refs-
ingar á borð við aftökur, pyntingar,
nauðganir, fóstureyðingar og annað
kynferðisofbeldi. Fangar eru myrtir og
þeir svívirtir. Líklega mætti fullyrða að
flestir myndu gera hvað sem þeir gætu
til að forðast slíkan stað.
Það var ekki tilfellið í máli Matt-
hews Miller. Hann vildi komast frá
Bandaríkjunum og „festast“ í Norð-
ur-Kóreu. Það var einlægur ásetning-
ur hans að sitja inni í landinu þrátt
fyrir að Norður-Kóreumenn vildu
helst af öllu senda rugludallinn með
fyrstu vél heim.
Vildi líta undir yfirborðið
NK News tók viðtal við manninn
í gegnum tölvupóst yfir nokkurra
daga skeið, eftir að ósk hans rætt-
ist. Vefsíðan sérhæfir sig í fréttum af
Norður- Kóreu. Miller bar að hann
hafi viljað sjá hvernig Norður- Kórea
væri undir yfirborðinu – undir þeirri
falsmynd sem haldið er að ferða-
mönnum. „Ég vildi bara fá svör
við spurningum mínum, augliti til
auglitis, frá Norður-Kóreumönnum
sjálfum,“ skrifaði hann miðlinum.
Hann útskýrði reyndar ekki hvern-
ig það að vera handtekinn í landinu
kæmi honum í samband við heima-
menn. „Ég óttaðist mest að þeir
myndu ekki handtaka mig.“
Ásetningur Millers, sem er fram-
bærilegur myndasöguteiknari og sér-
legur áhugamaður um Lísu í Undra-
landi, var einlægur og ferlið skipulagt.
Hann hafði meðferðis, til að auka lík-
urnar á því að verða handtekinn,
minnisbók sem hann skrifaði þegar
hann dvaldi í Kína. Í henni stóð að
hann væri tölvuhakkari á vegum
WikiLeaks sem hefði það að markmiði
að koma bandaríska hernum burt
úr Suður-Kóreu. „Ef til vill var þessi
skrudda svolítið skot yfir markið. Þeir
komust strax að því að hún var upp-
spuni og vildu vita hvers vegna ég væri
kominn til Norður-Kóreu. Hann sagði
við NK News að hann hefði greint frá
því í yfirheyrslum að hann byggi yfir
hernaðarleyndarmálum og að þeir
mættu að vita að bróðir hans væri
flugmaður í bandaríska flughernum.
Hann segir að þeim hafi staðið á sama.
Hitti annan Bandaríkjamann
Miller, sem er 25 ára frá Bakersfield
í Kaliforníu, segir að þegar Norður-
Kóreumenn hafi ákveðið að senda
hann ekki úr landi hafi hann verið
fluttur á stórt hótel, eða gistiheim-
ili, þar sem hann var læstur inni – á
meðan heimamenn réðu ráðum sín-
um. Á sama stað var meðal annarra
Kenneth Bae, kóresk-bandarískur
ferðamaður sem hefur verið í haldi
frá því í nóvember 2012 vegna áforma
um að steypa stjórnvöldum í landinu
af stóli. Bae þessi var dæmdur til 15
ára þrælkunarvinnu.
Eftir fjögurra mánaða þref var
Miller í september dæmdur til sex
ára þrælkunarvinnu fyrir að hafa
komið til Norður-Kóreu í fjandsam-
legum tilgangi undir því yfirskini að
hann væri ferðamaður. Í kjölfarið
var hann sendur í fangelsislegra um-
hverfi, að eigin sögn. Við hafi tekið
erfiðisvinna á einhvers konar bónda-
bæ. Miller bar að vistin í fangelsinu
hefði verið með ágætum, enda telja
menn að Norður-Kóreumenn hafi
staðið í þeirri trú að raunverulegur
tilgangur Millers væri að rannsaka
og afhjúpa mannréttindabrot í fang-
elsum landsins. BBC greinir frá því
að Miller hafi, eftir skamma vistun,
fengið bakþanka – merkilegt nokk.
Fljótlega rann upp sá dagur að hann
sá eftir öllu saman. Honum tókst að
senda heim hjálparbeiðni og það var
að lokum James Clapper, yfirmaður
leyniþjónustustofnana í Bandaríkj-
unum, sem flaug til Norður-Kóreu
til þess að fá hann lausan. Banda-
ríkjamenn vilja helst ekki að þegnar
þeirra séu fangar í Norður-Kóreu.
James Clapper tókst þann 8. nóv-
ember að ná Bandaríkjamanninum
unga, ásamt áðurnefndum Kenn-
eth Bae, heim frá Norður-Kóreu,
enda þungavigtarmaður í utanríkis-
málum. Miller iðrast uppátækisins
og má teljast heppinn. „Ég sé eft-
ir þessu. Ég braut af mér og sóaði
tíma bæði Norður-Kóreumanna og
Bandaríkjamanna.“ Á hinn bóginn
bendir hann á að honum hafi tekist
ætlunarverk sitt. Hann dvaldi í fimm
mánuði í Norður-Kóreu og gaf sig
á tal við marga heimamenn. Hon-
um tókst að upplifa Norður-Kóreu, á
þann hátt sem hann vildi. „Þetta voru
mistök en þetta gekk samt upp,“ segir
hann. n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Frambærilegur
teiknari Miller
þráði að gægjast
undir yfirborðið
í Norður-Kóreu.
Honum varð að
ósk sinni.
Dómurinn Miller var dæmdur til sex ára
þrælkunarvinnu. Réttarhöldin þóttu vera
sýndarleikur.
Laganna vörður Norðurkóresk fangelsi
þykja ekki eftirsóknarverður staður að
vera á.
„Ég
sé
eftir þessu
J
enya Bolotov, 26 ára Rússi, hef-
ur róið að því öllum árum, síð-
astliðin sjö ár, að líkjast spen-
dýrinu breiðnef, sem frekast
hann má. Bolotov hefur teygt og
togað andlit sitt til þess að verða
„eins og ég hef alltaf viljað vera. Í
útliti er ég nú eins og breiðnefur en
að innan líkist ég meira fugli. Fugl-
ar veita mér innblástur og birt-
ast mér í draumum,“ hefur Orange
News eftir þessum einkennilega
manni.
Bolotov hefur með plaststykkj-
um útbúið nokkurs konar gogg
á andlitið og er hinn sérkenni-
legasti í útliti. Hann segir að þær
breytingar sem hann hafi ráðist í
hafi gert honum gott. Lífið hafi fyll-
ingu – svolítið eins og nefið, sem
hann treður út með stífum gúmmí-
hring. „Ég elska breiðnefi; útlit
þeirra og meira að segja nafnið (e.
duck-billed platypus). Ég kann að
meta hvernig andlit mitt breytist
og varirnar teygjast. Núna lít ég út
eins og breiðnefur.“
Hann segist alltaf hafa hrifist
af þessu dýri og útlitið hamli hon-
um ekki neitt. Hann geti borðað og
talað eins og aðrir. „Ekkert hefur
breyst,“ segir hann en viðurkenn-
ir að hann fái stundum óumbeðn-
ar athugasemdir varðandi útlit sitt
á götum úti. „Ég er orðinn vanur
þessum athugasemdum og reyni
bara að hlusta ekki á þær.“ n
Breytir sér í breiðnef
n Sérkennilegur Rússi fer ótroðnar slóðir n Segist vera fugl að innan
Breiðnefur Dýrin lifa einungis í Austur-
Ástralíu.
Óvenjulegur Bolotov fær stundum mein-
legar athugasemdir á götum úti.
Samkyn-
hneigðum
bola bjargað
Sam Simon, skapari
þáttaraðanna um Simpson-fjöl-
skylduna, lagði að mestu til fé,
ígildi einnar milljónar króna, til
bjargar „samkynhneigðu“ nauti
á Írlandi. Nautinu Benjy átti að
slátra eftir að í ljós kom að dýr-
ið gagnaðist ekki kvígum. Dýra-
verndunarsinnar hófu þá að
safna peningum svo flytja mætti
nautið til Hillside Animal Sanct-
uary í Norfolk, en þar er griðar-
staður um 2.000 skepna sem
bændur hafa ekki viljað af ýms-
um orsökum.
Simon, sem er mikill dýravin-
ur, greiddi stærstan hluta upp-
hæðarinnar en fyrir söfnun-
inni stóðu samtökin TheGayUK.
„Flest dýr eru nýtt til manneldis,
en að fella þessa skepnu vegna
samkynhneigðar hefði verið tvö-
faldur harmleikur,“ er haft eftir
Simon.
Eltir af hákörlum
Tveir kajakræðarar komust í
hann krappan úti fyrir strönd-
um Flórída í Bandaríkjunum
á dögunum. Um tvo kílómetra
frá ströndu urðu þeir þess var-
ir að þeir voru eltir. Tveir stórir
sleggjuháfar fylgdu ræðurun-
um eftir. Þeir hertu róðurinn
til muna og freistuðu þess að
róa til lands. Hákarlarnir fylgdu
þeim eftir um tveggja kílómetra
leið og rákust í eitt skipti í kajak
annars þeirra. Mennirnir sluppu
hins vegar ómeiddir, en með
hjartað í buxunum, í land. Þeir
náðu myndbandi af eftirförinni
en þessi tegund hákarla ræðst
sjaldan að fólki. Orange News
greinir frá þessu.
Fór heim á
jarðýtu
Þrítugur karlmaður í New Jersey
í Bandaríkjunum skildi eftir sig
slóð eyðileggingar eftir að hafa
ekið heim til sín á jarðýtu. Meðal
þess sem eyðilagðist þegar mað-
urinn ók á vinnuvélinni til síns
heima má nefna tré, drykkjar-
brunn, trébekki og stóra gras-
flöt. Það þarf vart að taka fram
að maðurinn var dauðadrukk-
inn þegar lögregla hafði hend-
ur í hári hans. Að sögn lögreglu
á maðurinn yfir höfði sér ákæru
fyrir að aka undir áhrifum áfeng-
is. Auk þess verður honum gert
að standa straum af kostnaði
vegna skemmda sem uppátæki
hans olli.