Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2014, Qupperneq 37
Skrýtið Sakamál 37Helgarblað 21.–24. nóvember 2014
G
enaro „Geno“ Ruiz
Camacho var eiturlyfja
smyglari og nokkuð þekkt
ur sem slíkur á landamær
um Mexíkó að Texas. Sagt
var að þeir sem settu sig upp á
móti Geno kembdu ekki hærurn
ar. En um síðir safnaðist Geno til
feðra sinna, reyndar fyrir tilstilli
yfirvalda í Texas sem töldu senni
lega að veröldin yrði betri án Gen
os og starfa hans.
Mannrán og morð
Þannig var mál með vexti að
David nokkur Wilburn kíkti í
heimsókn til nágranna síns, Sams
Wright, í Pleasant Grove í Dallas,
20. maí 1988. Þá var þar stadd
ur, ásamt nokkrum handbendum
sínum, gæðadrengurinn Geno, en
hann var ekki í kurteisisheimsókn.
Erindi hans var að innheimta
fíkniefnaskuld og til að þrýsta á
skuldunautinn hugðist Geno hafa
á brott með sér áðurnefndan Sam
Wright, Evellyn Banks og Andre,
þriggja ára son Evellyn. Geno var
lítt sáttur við þessa truflun Davids
og lét hann vita það með einu
skoti í hnakkann. Aftakan gerði
Sam hins vegar kleift að komast
undan á hlaupum.
Enginn engill
Svo því sé haldið til haga þá ku
Sam Wright ekki hafa verið neinn
engill. Bandaríska alríkislög
reglan var með handökuheim
ild á hendur honum og vissi hvar
hann hélt til. Hann var eftirlýstur
vegna heróíndreifingar, en FBI
hélt að sér höndum með það fyrir
augum að fá betri yfirsýn yfir við
skipti hans og Genos. Það var svo
Sam sem hafði samband við al
ríkislögregluna, reyndar ekki fyrr
en þremur dögum eftir morðið á
David og ránið á Evellyn og Andre,
og upplýsti hana um morðið á
David.
Skotinn margsinnis
Geno lét þó ekki deigan síga held
ur rændi Evellyn, 31 árs, og syni
hennar. Mæðginin urðu ekki lang
líf í haldi Genos því þau voru skot
in til bana þremur dögum síðar
og grafin í grunnri gröf í Johnson
sýslu í Oklahoma. Síðar lýsti einn
ódæðismannanna því hvern
ig Geno hafði fyrirskipað honum
að skjóta drenginn aftur og aft
ur, því hann gaf sífellt frá sér ein
hver hljóð. Líkin fundust þrem
ur mánuðum síðar. Eftir morðin
lá leið Genos og félaga hans til
Mexíkó þar sem þeir höfðu hægt
um sig um skeið.
Framsalskröfu hafnað
Bandaríska alríkislögreglan, FBI,
komst að því fyrir tilstill uppljóstr
ara að Geno hélt til í mexíkóska
bænum Arcelia í Guerrerofylki.
Bandarísk yfirvöld fóru þess á
leit við mexíkóska kollega sína að
Geno yrði framseldur, en fóru bón
leiðir til búðar hvað það varðaði.
Mexíkósk yfirvöld sögðu að Arcelia
og svæðið þar um kring væri und
ir stjórn eiturlyfjabaróna sem væru
gráir fyrir járnum og allar tilraunir
til að koma böndum á Geno væru
dæmdar til að enda með blóðbaði.
Þess má geta að Guerrerofylki hef
ur verið nokkuð í fréttum undan
farið vegna hvarfs og morða á hátt í
50 námsmönnum.
Veiddur í gildru
Sagan segir að FBI hafi komið
á laggirnar aðgerð með það að
markmiði að narra Geno aftur til
Bandaríkjanna. Alríkislögreglan
bandaríska hafði erindi sem erf
iði því ári síðar var Geno fang
aður í gildru er hann reyndi að
laumast yfir landamærin. Banda
rískum yfirvöldum var ekkert að
vanbúnaði og var Geno ákærður
fyrir þrjú morð og, til að gera langa
sögu stutta, sakfelldur árið 1993 í
Dallas fyrir morðið á David Wil
burn. Þann 26. ágúst, eftir að hafa
notið síðustu máltíðarinnar; steik
ur, bakaðrar kartöflu með salati og
jarðarberjaíss, fékk Geno banvæna
sprautu og yfirgaf jarðlífið.
Fleiri morð á samviskunni
Áður en sagt verður skilið við
Geno þá er vert að geta þess að
hann hafði fleiri morð á samvisk
unni, eins og fyrr sagði. Við rétt
arhöldin kom meðal annars fram
að hann hefði í það minnsta tvö
önnur líf á samviskunni persónu
lega. Í öðru tilfellinu var um að
ræða Pamelu Miller, 23 ára konu
sem sá sér farborða með því að
dansa berbrjósta. Einhver fíkni
efnaviðskipti höfðu ekki gengið
sem skyldi og reiddist Geno svo
heiftarlega að einhverjum varð að
refsa. Hvers vegna Pamela varð
fyrir valinu fylgir ekki sögunni, en
síðustu andartök hennar hafa ver
ið hryllileg. Pamela var barin til
dauða og meðal annars bíl ekið í
tvígang yfir höfuð hennar, síðan
var lík hennar sundurlimað og sett
í timburtætara. „Ég mun bíða ykk
ar í himnaríki. Ókei. Farvel. Fleira
hef ég ekki að segja,“ voru lokaorð
Genaros Ruiz Camancho. n
Banvæn
innheimta
í Dallas
n Skuld kostaði mæðgin lífið„Pamela var barin
til dauða og meðal
annars bíl ekið í tvígang
yfir höfuð hennar, síð
an var lík hennar sundur
limað og sett í timbur
tætara.
Genaro „Geno“
Ruiz Camacho Féll
í gildru bandarísku
alríkislögreglunnar.
Leitin kostaði
1,3 milljarða
Leitin að Bandaríkjamannin
um Eric Frein, sem lagði á flótta í
september síðastliðnum eftir að
hafa myrt lögregluþjón, kostaði
ellefu milljónir dala, 1,3 milljarða
íslenskra króna.
Frein var á flótta undan rétt
vísinni í samtals sjö vikur en
hann skaut lögreglumann til
bana þann 12. september og
særði annan í árásinni. Það var
ekki fyrr en í lok október sem
Frein var handtekinn.
Mjög umfangsmikil leit var
gerð að manninum en talið er
að nokkur þúsund manns hafi
komið að leitinni með einum eða
öðrum hætti. Saksóknarar munu
að öllum líkindum fara fram á
dauðarefsingu yfir Frein.
Ofsafengin
árás vegna
pylsna
Donte Frye, 39 ára karlmaður í
Baltimore í Bandaríkjunum, hef
ur verið dæmdur í 25 ára fangelsi
fyrir að hella sjóðandi heitu vatni
yfir andlit herbergisfélaga síns.
Þetta gerði Frye vegna þess
að hann hélt að herbergisfé
laginn hefði borðað pylsur sem
Frye geymdi í sameiginlegum
ísskáp þeirra. Í frétt Huffington
Post kemur fram að fórnarlambið
hefði hlotið annars stigs bruna í
andliti og verði með ör í andlitinu
um ókomin ár.
Í ljósi þess hversu alvarleg
árásin var, og þeirrar staðreyndar
að Frye hafði tvisvar fengið dóm
fyrir tilraun til manndráps, þótti
hæfileg refsing 25 ára fangelsi.
Skotinn
í höfuðið í
fótboltaleik
Ellefu ára drengur þykir
hafa sloppið vel eftir að hafa
verið skotinn í höfuðið í
knattspyrnuleik á Englandi um
síðustu helgi.
Drengurinn var að keppa
ásamt liðsfélögum sínum í
borginni Newcastle þegar hann
fann skyndilega fyrir stingandi
sársauka fyrir ofan vinstra aug
að. Taldi hann að grjóti hefði
jafnvel verið kastað og lent í
höfði hans. Annað kom þó á
daginn þegar hann fór út af vell
inum en þá tók faðir hans eftir
því að það sem hafði lent í höfði
hans var ekki steinn.
Ljóst er að einhvers konar loft
byssa var notuð og eru þrír fjórt
án ára piltar grunaðir um verkn
aðinn. Drengurinn mun vera á
góðum batavegi eftir árásina.
B
andarísk kona í Missouri
hefur verið dæmd í 78 ára
fangelsi fyrir að beita börn
sín ofbeldi. Upp komst um
málið í október árið 2011 þegar
tíu ára dóttir konunnar sagði
bókasafnsverði í skólanum sín
um að hún væri aum í handleggn
um. Sagði stúlkan að móðir hennar
hefði barið hana með hafnabolta
kylfu fyrir að vinna ekki húsverkin
nógu hratt. Bætti stúlkan við að átta
ára systir hennar hefði einnig verið
barin með kylfunni fyrir að vera of
lengi í sturtu.
Huffington Post greinir frá því
að eldri stúlkan hafi verið flutt á
sjúkrahús eftir að hún sagði til
móður sinnar. Læknir skoðaði
hana og kom þá í ljós að stúlkan var
með mikla áverka á handleggnum.
Þannig væri skert blóðflæði í hand
legginn sem gerði hann kaldan og
harðan viðkomu. Sögðu saksóknar
ar að móðirin, Lakechia Stanley, 34
ára, hefði beitt dætur sínar pynting
um með skipulögðum hætti.
Í viðtölum við stúlkurnar lýstu
þær frekari barsmíðum og pynting
um. Þannig sögðu þær móður sína
hafa notað svokallað vatnsbretti.
Þær hafi verið bundnar við bretti á
meðan móðir þeirra helti vatni yfir
andlit þeirra svo þær áttu erfitt með
að anda. Þá hafi hún neytt þær í ís
kalda sturtu og barið þær með raf
magnsköplum og bitlausum áhöld
um af ýmsu tagi.
Eiginmaður Stanley, Andrew Rui
Stanley, hafði áður verið dæmdur í
160 ára fangelsi fyrir ofbeldi gegn
börnunum sem eru þrjú talsins. n
Pyntaði börnin með vatnsbretti
Lakechia Stanley fékk 78 ára fangelsisdóm en eiginmaður hennar 160 ára dóm
78 ára fangelsi Saksóknarar sögðu að
Stanley hefði beitt börn sín ofbeldi með
skipulögðum hætti.
Eiginmaðurinn Fullyrða má að Andrew
verði bak við lás og slá það sem eftir er.